Alþýðublaðið - 11.07.1985, Side 2

Alþýðublaðið - 11.07.1985, Side 2
Fimmtudagur 11. júlí 1985 SUMAR- TŒBŒ) SKEUUNGS Autostar áklæðin eru einlit, teygjanleg, úr 100% polyakrýlefni. Fást í 5 litum og passa á flest sæti. Verð kr. 1.695.- Áður kr. 2.415,- Britax bílbelti fyrir börnin. Sérhannað, stillan- legt, öruggt og þægilegt fyrir krakka á aldrinum 4-11 ára. Verð kr. 1.329.- Áður kr. 1.709,- 5 lítra eldsneytisbrúsi úr plasti með sérlega þægilegum stút til að hella á (tóman) tankinn. Verð kr. 187.- Áður kr. 267,- Ultraflame spritt- töflurnar eru tilvaldar í útigrillið og í arininn. 64 töflur í pakka. Verð kr. 25.- Áður kr. 90,- Blue Poly gljáhjúpur- inn er þón- og hreinsiefni sem gengur í samband við bílinn og ver hann gegn óhreinindum. Verð kr. 150.- Áður kr. 198,- TILBOÐIÐ GILDIR MEÐAN BIRGÐIR ENDAST BENSÍNSIÖÐVAR SKEUUNGS ■RITSTJÓRNARGREIN . Að lifa um efni fram n inn árlegi fundur Seðlabankans var haldinn snemma í vor. Þar söfnuðust sam- an prúðbúnir, alvarlega hugsandi, ábúðar- miklirmenn fuilirábyrgðartilfinningár. Þeir komu til þess að hlýða á „einn af bestu sonum þessa lands“ flytja boðskapinn. Boðskapurinn kemur ekki á óvart. Menn eru farnir að kunna hann utanað, en aldrei er góð vísa of oft kveðin. Efnahagur þjóð- arinnar er sem sagt ( rúst að vanda. Nú verður að sýna aðhald og ráðdeild. Þjóðin iifir um efni f<am. Verið harðir og kaldir, hafnið öllum kaupkröfum lýðsins og þá mun ykkurvel farnast. Hinirábyrgðarmiklu meðtaka boðskapinn. Það vaknar engin spurning, enginn efi, engin gagnrýni. Þeir vitasem er, að góðirdrengirfá leyfi til þess að skipa hverjir aðra f nefndir og ráð og geta jafnvel ráðið sig til ráðgjafar hjá sjálf- um sér fyrir svona hálfa til eina milljón króna áári. Það má bara helst ekki fréttast. Það er því ekki úr vegi að spyrja: Hvernig getur þjóð lifað um efni fram? Og svarið virðist augljóst. Með því að eyða meiru en aflað er og mismunurinn er sleginn að iáni í útiöndum. En hver stundar sláttinn? Er það sjómaöurinn, sem sækir björg í bú all- an ársins hring til þess að halda þessu samfélagi gangandi? Er það fiskverkunar- konan, sem stendur allan daginn ( bónus- þrælkun? Er það barnakennarinn, sem leggur grunninn að menntun þjóðarinnar fyrir smánarlaun? Erum það við, hinir al- mennu launamenn f þessu landi eða eru það þeir, sem sitjahinn árlegaSeðlabanka- fund? Erum það við eða þeir, sem eru þess valdandi, að íslendingar búa við eitt hæsta raforkuverð í heiminum, að íslendingar eru með skuldugustu þjóðum heimsins? Svona mætti lengi spyrja. tn verum sanngjörn og daémum ekki of hart. Lítum ( eigin barm og könnum, hvort við eigum ekki einhverja sök á þvi hvernig komið er. Við höfum nefniiega veitt höfð- ingjunum á Seðlabankafundinum völdin og þarmeð leyfiðtil þess að lítillækkaokk- ur, meta vinnu okkar Iftils og saka okkur um óráðsíu og bruðl. Og við höfum valdið til þess að svipta þá umboðinu. Við höfum afl og þrek til þess að hreinsa út úr must- erinu ef samstaöan er næg. Lausnin er ekki fólgin I stöðugum stéttaríg og metingi heldur samvinnu og jöfnuði. Lausnin er ekki fólgin f fjölgun stjórnmálaflokka held- ur frekar fækkun þeirra. Við höfum reynt Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn og Alþýðubandalagið sfðasta hálfan ann- an áratug og þeir hafa allir brugðist. Fram- sóknarflokkurinn hefur meira að segja átt aöild að öllum rfkisstjórnum frá 1971. Erum við ekki búin að fá okkur fullsödd af skammtfmalausnum og mistakayfirlýsing- um? Launafólk í landinu hefur fyllst biturð og samkvæmt nýlegri skoðanakönnun hefur um þriðjungur ungs fólks á aldrinum 18 til 22 ára hug á að flytjast af landinu til frambúðar. íslenskt launafóik hefur þvf allt að vinna og engu að tapa þó það gefi fram- sóknarmönnum allra flokka langt frf og setji við stjórnvölinn á þjóðarskútunni karla og konur, sem starfa ( anda frelsis, jafnréttis og bræðralags. — B.P. AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ 10.000 GKR. SKÍRTEINI 1971- 1. fl. 1972- 2. fl. 1973- 1. fl.A 1974- 1. fl. 1977- 2. fl. 1978- 2. fl. 1979- 2. fl. 15.09.85 15.09.85-15.09.86 15.09.85-15.09.86 15.09.85-15.09.86 10.09.85-10.09.86 10.09.85-10.09.86 15.09.85-15.09.86 kr. 23.782,80 kr. 17.185,51 kr. 12.514,96 kr. 7.584,97 kr. 2.605,31 kr. 1.664,34 kr. 1.085,03 INNLAUSNARVERÐ ÁRGREIÐSLUMIÐA 1973-1. fl.B 15.09.85-15.09.86 10.000 gkr. skírteini 50.000 gkr. skírteini kr. 719.00 kr. 3.595,00 Innlausn spariskírteina og árgreiðslumiöa fer fram í afgreiðslu Seðlabanka (slands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Sérstök athygli skal vakin á lokagjalddaga 1. flokks 1971, sem er 15. september n.k. Reykjavík, júlí 1985 SEÐLABANKI ÍSLANDS — 1 1 ■ 1 .... i . .

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.