Alþýðublaðið - 11.07.1985, Side 4
4
Fimmtudagur 11. júlí 1985
alþýdu-
blaðiö
Alþýöublaðið, Ármúla 38, 3. hæð, 108 Reykjavík., Sími: 81866
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjórn: Friðrik Þór Guðmundsson (ábm.)
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson.
Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson, Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsd.
Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent hf, Síöumúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
107. lögzjafarþingið 1984—1985:
Frumvörp og tillögur Alþýðuflokksins
107. löggjafarþing íslendinga
varð hið lengsta í sögunni og voru
alls konar þingmet slegin. 194
frumvörp voru lögð fram, þar af
107 stjórnarfrumvörp og 87 þing-
mannafrumvörp. Ný lög urðu alls
102, 11 frumvörpum var vísað til
ríkisstjórnarinnar, 5 frumvörp voru
felld, en 76 frumvörp urðu ekki út-
rædd — þar af 18 stjórnarfrum-
vörp.
Alls 139 þingsályktunartillögur
voru lagðar fram, en aðeins 25
þeirra voru samþykktar. Þá voru
fluttar 204 fyrirspurnir og voru þær
ræddar eða svarað skriflega, allar
nema ein. Mál til meðferðar á þing-
inu urðu alls 537 en tala prentaðra
þingskjala 1424.
107 þingmál Alþýðu-
flokksins
Þingmenn Alþýðuflokksins
fluttu alls 107 þingmál, en hér er átt
við þingmál þar sem fyrsti flutn-
ingsmaður er alþýðuflokksmaður,
en þingmenn flokksins voru auk
þess meðflutningsmenn að fjölda
annarra þingmála.
Þingmenn Alþýðuflokksins
fluttu 28 frumvörp til laga, 21 til-
lögu til þingsályktunar og 56 fyrir-
spurnir. Þá voru lagðar fram 2
beiönir um skýrslur. 5. frumvörp
flokksins og 3 þingsályktunartil-
lögur voru samþykktar.
Hér á eftir verður gerð grein fyrir
helstu frumvörpunum og þings-
ályktunartillögunum, en skiljan-
lega verður að stikla á stóru, og ekki
verður að þessu sinni fjallað um
fyrirspurnir né ýmis önnur mikil-
væg þingmál, svo sem breytingartil-
lögur við fjárlög, útvarpslög, láns-
fjárlög og fleiri mál.
Lækkun gjalda fyrir lyfja-
og læknisþjónustu
Fyrsta þingmál Alþýðuflokksins
á 107. löggjafarþinginu var þings-
ályktunartillaga Jóhönnu Sigurð-
ardóttur og annarra þingmanna
flokksins um lækkun á gjaldtöku
fyrir lyfja- og læknisþjónustu, með
því að felldar yrðu úr gildi reglu-
gerðarbreytingar heilbrigðisráð-
herra frá 25. maí 1984, enda hafði
þessi kostnaður sjúklinga hækkað
um 300—400% á einu ári, á sama
tíma og grunnlífeyrir almanna-
trygginga hafði einungis hækkað
um 13%.
Endurmenntun vegna
tæknivæðingar í atvinnu-
lífinu
Þetta frumvarp fluttu Jóhanna
Sigurðardóttir og fleiri þingmenn
Alþýðuflokksins, þar sem lagt er til
að skipað verði endurmenntunar-
ráð, sem styrki launafólk á ýmsa
vegu til að auka við og endurnýja
menntun sína og þekkingu. Rót-
tækar breytingar hafa fylgt tilkomu
rafeindatækni og tölvuvæðingu á
vinnumarkaðinum og þörfin á
samræmdri og skipulagðri endur-
menntun fyrir fólk vegna þessarar
þróunar æ ljósari.
Endurmat á störfum
láglaunahópa
Frumvarp þetta var flutt í þeim
tilgangi að lögfest yrði tímabundið
skipan láglaunanefndar sem hafi
það verkefni að framkvæma hlut-
lausa rannsókn og endurmat á
störfum og kjörum láglaunahóp-
anna í þjóðfélaginu.
Hlutlaus úttekt og endurmat er
nauðsynlegt fyrir aðila vinnumark-
aðarins til að geta lagt sanngjarnt
mat á vinnuframlag láglaunahópa
og eðlilega hlutdeild þeirra í tekju-
skiptingunni. Auk þess er sú rann-
sókn, sem hér er gerð tillaga um,
forsenda þess að á raunhæfan hátt
sé hægt að auka tekjur láglauna-
hópanna í þjóðfélaginu. Einnig
mundi slík rannsókn leiða í ljós
hvernig launamisrétti kynjanna er
háttað í einstökum starfsgreinum.
Þetta frumvarp flutti Jóhanna
Sigurðardóttir, en meðflutnings-
menn voru úr öllum hinum stjórn-
málaflokkunum.
Úttekt á málefnum
aldraðra
Þingmenn Alþýðuflokksins, með
Jóhönnu Sigurðardóttur í farar-
broddi, fluttu þingsályktunartil-
Iögu um úrbætur í málefnum aldr-
aðra, þar sem ríkisstjórninni var
falið að gera ítarlega úttekt á fjár-
hagslegri og félagslegri stöðu
þeirra. í framhaldi skyldi gera
heildaráætlun um skipulagt átak í
hagsmunamálum aldraðra sem
tryggi betur en nú félagslegt öryggi
og fjárhagsafkomu aldraðra, sem
og húsnæðisafkomu og einnig hvað
atvinnumálin snertir.
Meðlagsskylda í barna-
lögum
Akveðin gloppa er í barnalögum
hvað varðar meðlagsskyldu til
barna á aldrinum 16—20 ára, sæki
þau framhaldsmenntun. Sé með-
lagsskyldur aðili látinn eða af öðr-
um ástæðum reynist ókleift að inn-
heimta framlög verða þessir ungl-
ingar án meðlaga, sem þeir eiga þó
rétt á samkvæmt lögum. Talið er að
14—15% einstæðra foreldra sé
þannig án stuðnings vegna mennt-
unar barna sinna.
Jóhanna Sigurðardóttir flutti því
frumvarp til breytinga á barnalög-
um, þar sem þetta er leiðrétt. Þá var
samþykkt frumvarp Jóhönnu er
laut að því að meðlag til forræðis-
foreldris, ef foreldrar hafa skiliðer-
lendis.
Tvöfaldur persónuaf-
sláttur í tvö ár
Jóhanna Sigurðardóttir og Jón
Baldvin Hannibalsson fluttu frum-
varp þess efnis að þeim, sem eru að
kaupa sér eigið húsnæði í fyrsta
skiptið skuli veittur tvöfaldur per-
sónuafsláttur í tvö ár, í fyrra skiptið
næsta gjaldár eftir að kaupin fara
fram. Eins og að líkum lætur yrði
þetta ungu fólki mikil stoð nú á
dögum, þegar fólk þarf að vinna
myrkranna á milli til að standa í
skilum.
Veiðileyfastjórn á
fiskveiðum
Kjartan Jóhannsson og aðrir
þingmenn Alþýðuflokksins fluttu
um það þingsályktunartillögu, að
sjö manna nefnd yrði kosin til þess
að gera í samráði við sjómenn, út-
vegsmenn og fiskvinnsluaðila út-
tekt á leiðum við veiðileyfastjórn í
fiskveiðum til að full og hagkvæm
nýting fáist á íslenskum fiskimiðum
og hagstæðustu útgerðarstaðirnir
fái að njóta sín.
Stighækkandi eignar-
skattsauki til tveggja ára
Jón Baldvin Hannibalsson og
nokkrir aðrir þingmenn Alþýðu-
flokksins fluttu þessa ítarlegu til-
lögu. Samkvæmt henni var ríkis-
stjórninni falið að skipa nefnd til að
semja frumvarp til laga um stig-
hækkandi eignarskatt.
1. Eignarskattsútreikningur skv.
83. gr. laga um tekju- og eignar-
skatt, nr. 75/1981 skal óbreytt-
ur, þannig að af fyrstu 780.000
kr. af eignarskattsstofni greið-
ist enginn skattur. Af þeim
hluta eignarskattsstofns, sem
umfram er, skal greiða frá
0,95%, þó þannig að skattur-
inn fari stighækkandi eftir því
sem eignarskattsstofn vex.
2. Við það skal miða að skatt-
byrði eignarskatts fjölskyldu
með meðaltekjur, eigin íbúð og
bifreið, hækki ekki frá því sem
nú er.
3. Við það skal miða að tekjur
ríkissjóðs af eignarskatti ein-
staklinga og lögaðila skv. frum-
varpi til fjárlaga 1985 þrefaldist
a. m. k.
4. Þessi nýi skattstofn geti kom-
ið í stað niðurfellingar tekju-
skatts á launþega, sbr. þings-
ályktun um það sem samþykkt
var á síðasta þingi. Tekjuauki
ríkissjóðs af hækkuðum eign-
arskatti má að nokkru leyti
miða við ákvarðanir Alþingis
um tekjuskattslækkun við af-
greiðslu fjárlaga.
5. Það er ætlun flutningsmanna
að nýjum tekjum ríkissjóðs af
þessum skattstofni verði, a. m.
k. að hluta til, varið til að stór-
auka framlög ríkissjóðs til
byggingarsjóða ríkisins og
verkamanna til þess að styrkja
fjárhag sjóðanna og létta
greiðslubyrði húsbyggjenda og
íbúðarkaupenda.
Frelsi í útflutnings-
verslun
Kjartan Jóhannsson flutti ásamt
öðrum þingmönnum Alþýðu-
flokksins tillögu til þingsályktunar,
þar sem viðskiptaráðherra var falið
að gefa útflutning á vörum frá land-
inu frjálsan.
„Ráðið til að stuðla að grósku í
útflutningsverslun er því ekki að
binda útflutninginn í duttlunga
skömmtunar, leyfisbindingar og
skrifræðis heldur hitt, að útflutn-
ingurinn sé frjáls þannig að hug-
kvæmni og áræði njóti sín“.
Jöfnun á skattbyrði hjóna
Magnús H. Magnússon ásamt
öðrum þingmönnum Alþýðu-
flokksins fluttu þingsályktunartil-
lögu þess efnis að fela fjármálaráð-
herra að undirbúa breytingu á lög-
um um tekju- og eignarskatt, sem
feli í sér að skattbyrði hjóna verði
jöfnuð hvort sem annað þeirra eða
þau bæði vinna fyrir tekjum, enda
er óverjandi að hjón, þar sem annar
makinn treystir sér ekki til að vinna
utan heimilis, skuli greiða mun
hærri skatta af sömu tekjum og
hjón sem bæði vinna utan heimil-
is“.
Frelsi í olíuinnflutningi
Kjartan Jóhannsson og aðrir
þingmenn Alþýðuflokksins fluttu
þingsályktunartillögu um að frelsi
ríkti í innflutningi á olíuvörum;
viðskiptaráðherra næmi úr gildi
ákvæði í reglugerð frá 1980 er bind-
ur leyfum innflutning á óhreinsuð-
um jarðolíum, bensíni, gasolíu og
brennsluolíu.
Framleiðslustjórn í
landbúnaði
Þetta er tillaga Kjartans Jó-
hannssonar og annarra þingmanna
Alþýðuflokksins, þar sem gert er
ráð fyrir því, að nefnd undirbúi og
semji frumvarp um skipan fram-
leiðslustjórnar, verðlagningar- og
sölumála í landbúnaði. Markmiðið
væri að auka frjálsræði í viðskipt-
um, tryggja viðskiptalegt aðhald að
vinnsluaðilum og að sem stærstur
hluti af hinu endanlega söluverði
afurðanna skilaði sér til bænda.
Endurskoðun kaupa-
laganna
Sighvatur Björgvinsson flutti
ásamt nokkrum öðrum þingmönn-
um frumvarp til laga um breytingu
á kaupalögunum svokölluðu frá
1922, þess efnis að ákvæði kæmi í
lögin er tryggðu að ef gallar kæmu
í ljós innan eðlilegs endingartíma
söluhlutar, þá eigi ákvæði um tak-
mörkun á ábyrgð seljanda ekki við.
Þak á tækifærisgjafir
Jóhanna Sigurðardóttir og fleiri
þingmenn fluttu þingsályktunartil-
lögu þar sem ríkisstjórninni var fal-
ið að setja reglur er kveði á um að
takmörkuð verði notkun almanna-
fjár til tækifærisgjafa hjá stofnun-
um í eigu ríkisins.
Tillaga þessi var samþykkt í apríl
síðastliðnum.
Hækkun elli- og örorku-
lífeyris
Kjartan Jóhannsson og fleiri
fluttu frumvarp um sérstaka hækk-
un elli- og örorkulífeyris.
10% skattaafsláttur til
fiskverkunarfólks
Sighvatur Björgvinsson flutti
ásamt Guðmundi J. Guðmunds-
syni frumvarp til laga þess efnis að
fiskvinnslufólk fengi þegar í stað
skattaafslátt, sem næmi 10% af
beinum tekjum af störfum við fisk-
vinnslu, það er ófaglært verkafólk,
faglært og fólk í verkstjórastörfum.
Sérfræðingar rannsaki
sóllampanotkun
Eiður Guðnason og Jóhanna
Sigurðardóttir fluttu um það til-
lögu að fram færi rannsókn á hugs-
anlegum tengslum sóllampanotk-
unar og húðkrabbameins.
Hækkun makabóta
Jóhanna Sigurðardóttir flutti
frumvarp til laga um að makabætur
yrðu hækkaðar til þeirra, sem
bundnir eru heimavið vegna örorku
eða langvinns sjúkdóms maka og
geta ekki af þeim sökum aflað sér
tekna, þannig að ekki væri miðað
við 80% einstaklingslífeyris, heldur
80% af samanlögðum grunnlífeyri
og tekjutryggingu. Hækkunin yrði
þá 3.394 kr. í 8.154 kr. Þetta frum-
varp var samþykkt.
Neikvæður tekjuskattur
Magnús H. Magnússon og Eiður
Guðnason fluttu frumvarp um
breytingu á tekju- og eignarskatts-
löggjöfinni, þess efnis að persónu-
afsláttur yrði 29.500 krónur og ef
hann næmi hærri upphæð en reikn-
aður skattur af tekjustofni ráðstafi
ríkissjóður mismuninum til
greiðslu annarra skatta eða útsvars.
Sé um hjón að ræða er hér gert ráð
fyrir því að mismunurinn hjá öðr-
um makanum komi hinum til góða.
Sá hluti persónuafsláttar sem enn
kann að vera óráðstafaður skuli
greiddur skattaðila, nema hann sé
undir 20 ára aldri eða að hann hafi
meiri samanlagðar tekjur af at-
vinnurekstri og reiknuð laun, en
sem nemur 10% af tekjuskatts-
stofni.
Frumvarp til útvarpslaga
Þegar sýnt þótti að ný útvarpslög
yrðu knúin í gegn með stuðningi
minnihluta alþingismanna greip
Eiður Guðnason til þess ráðs að
flytja eigið frumvarp til útvarps-
laga; til að sýna fram á að með því
að breyta núgildandi útvarpslögum
væri unnt að skapa aukið frelsi og
ná markmiðum sem stefnt hefði
verið að. Lagði Eiður til að inn í lög-
in kæmi ákvæði til bráðabirgða um
staðbundinn útvarpsrekstur á
þriggja ára tímabili, þar sem heim-
ildin yrði bundin skilyrðum út-
varpsréttarnefndar og leyfishafar
gætu ýmist leigt dreifikerfi ríkisút-
varpsins, leigt rásir á boðveitum
sveitarfélaga eða notast við eigin
senditæki með takmarkaðri sendi-
orku. Tekna skyldi aflað með af-
notagjöldum eða auglýsingum er
miðuðust við verslun og þjónustu á
starfssvæði leyfishafa.
Lífeyrisréttindi heima-
vinnandi fólks
Sighvatur Björgvinsson flutti
ásamt nokkrum öðrum þingmönn-
um frumvarp til laga, þar sem tekið
var á lífeyrisréttindum heima-
vinnandi húsmæðra; þ. e. réttinda-
leysi, því þær eru eina atvinnustétt-
in í landinu sem engra lífeyrisrétt-
inda nýtur. Þetta frumvarp var sam-
þykkt.
Réttarstaða heima-
vinnandi fólks
Maríanna Friðjónsdóttir og Jó-
Framh. á bls. 8