Alþýðublaðið - 11.07.1985, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 11.07.1985, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 11. júll 1985 1 hinni árlegu sparaksturskeppni bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur SIGRAÐI Peugeot 205,með meðal eyðslu 4,723 lítra á 100 kílómetrum Kjartan Jóhannsson: Þessir bílar eru með 13603 vélum sem eru 60 DIN hestöfl, framhjóladrifnir, með frábæra aksturshæfni og franska smekkvísi að utan sem innan. Umboð á Akureyri Víkingur s.f. Furuvöllum 11 S.21670 Samningar við Efnahags- bandalagið Á þessum árum var vaxandi áhugi meðal Breta, íra, Dana og Norðmanna á því að gerast aðilar að Efnahagsbandalaginu. Þrjú hin fyrrnefndu gengu síðan í bandaiag- ið. Samhliða þessu voru teknar upp viðræður milli EFTA-landanna og Efnahagsbandalagsins um fríversl- unarsamning til þess að tryggja frjáls viðskipti milli EFTA-land- anna og ríkja Efnahagsbandalags- ins. Þessum viðræðum lauk með undirskrift samninga í júlí 1972. Samningurinn tók gildi að því er ís- land varðaði hinn 1. apríi 1973. Samkvæmt þessum samningi höfðu tollmúrar á iðnaðarvörum milli aðildarlanda bæði EFTA og Efnahagsbandalagsins verið af- numdir hinn 1. júlí 1977. Útvíkkun samstarfsins Seinni árin hefur starfsemin ann- ars vegar verið fólgin í því að fylgj- ast með framkvæmd þeirra samn- inga sem gerðir hafa verið og hins vegar á því að útvíkka samstarfið. Þannig hefur verið stefnt að nánara samráði í efnahagsmálum og á sein- ustu árum hefur athyglin beinst mjög að afnámi viðskiptahindrana á öðrum sviðum svo sem skrif- finnsku á landamærum, breytileg- um stöðlum í hinum mismunandi löndum og reglum sem varða upp- runa varnings og meðferð hans af þeim sökum. Að þessu hafa EFTA og Efnahagsbandalagið unnið sam- eiginlega. Af öðrum atriðum sem nú eru til umfjöllunar má nefna samgöngumál, mengun, ríkisstyrki til atvinnuvega og útvíkkun við- skiptafrelsis. Áhugaverðast af sjón- arhóli íslendinga er vitaskuld aukið frjálsræði í viðskiptum með fiskaf- urðir og ríkisstyrkir í sjávarútvegi. Við verðum að beita okkur fyrir sérstakri umræðu og athugunum á þeim sviðum svo mikið sem þar er í húfi fyrir okkur. EFTA nú samstæðara Samskiptin við Efnahagsbanda- lagið og samningar við það eru sí- vaxandi verkefni fyrir EFTA. Markaður Efnahagsbandalagsins er öllum EFTA-löndunum mjög mikilvægur. Sem sakir standa er hins vegar ekkert sem bendir til frekari sameiningar við Efnahags- bandalagið. Þau lönd EFTA sem ríkastra viðskiptahagsmuna höfðu að gæta í Efnahagsbandalaginu og þá m. a. á sviði landbúnaðarvara hafa sameinast því eða eru í þann mund að gera það. Þótt EFTA hafi smækkað við það er þó margra álit að það hafi að ýmsu leyti styrkst þar eð EFTA sé nú samstæðara. Á hinn bóginn gefur auga leið að jafnframt verða samskiptin við Efnahagsbandalagið þeim mun þyngir á metunum. íslendingar hafa gagn af aðildinni Gagnsemin af því fyrir okkur að vera aðilar að EFTA er ótvíræð. Þátttaka okkar í EFTA hefur tryggt okkur aðgang að mörkuðum í EFTA-löndunum. EFTA-löndin hafa síðan gert fríverslunarsamning við Efnahagsbandalagið og þannig eigum við aðgang að þeim markaði fyrir útflutningsvörur okkar. Þótt við séum ekki að öllu leyti ánægð með þessa samninga hafa þeir þó verið okkur mjög mikils viðri og án þeirra og aðildarinnar að EFTA hefði aðstaða okkar til útflutnings verið mun erfiðari. í öðru lagi er gagnið sem við höf- um af aðildinni fólgið í því að EFTA er góður vettvangur fyrir Kjartan Jóhannsson var nýlega kosinn formaður þing- mannanefndar EFTA — Fríverslunarsambands Evrópu. Af þessu tilefni sneri blaðið sér til hans og bað hann um að segja frá þessum samtökum og hvaða gagn við hefð- um af þeim. EFTA er fríverslunarbandalag sjö ríkja í Vestur-Evrópu. Auk ís- lendinga eru Norðmenn, Svíar, Finnar, Austurríkismenn, Sviss- lendingar og Portúgalir aðilar að EFTA. Aðrar þjóðir í Vestur- Evrópu eru aðilar að Efnahags- bandalaginu eða á leiðinni að verða það eins og á við um Spán. Portúgal mun jafnframt ganga í Efnahags- bandalagið um næstu áramót og þá fara úr EFTA. Stofndagur EFTA telst 3. maí 1960 og varð sambandið því 25 ára í maí sl. Stofnsamningurinn er reyndar eilítið eldri, en frá honum var gengið í Stokkhólmi árið áður. Stofnþjóðirnar voru sjö, þ. e. a. s. núverandi aðilar að frátöldum Finnum og íslendingum en að með- töldum Bretum og Dönum sem síð- ar gengu í Efnahagsbandalagið. ís- lendingar gerðust aðilar að EFTA 1. mars 1970, en Finnar höfðu gert sérstakan samning um stöðu sína og viðskipti þegar á árinu 1961. Aðdragandi og upphaf Upphaf EFTA og Efnahags- bandalagsins má rekja til Efna- hagssamvinnustofnunar Evrópu (OPEC), sem sett var á stofn 1947 til þess að hafa umsjón með Mars- hall-áætluninni svonefndu. Þegar á sjötta áratugnum óx upp úr því samstarfi áhugi á nánari samvinnu Evrópuríkja eða jafnvel samein- ingu þeirra í ríkjabandalag. Þegar 1951 var stofnað Kola- og stálsam- band Evrópu, sem skapaði sameig- inlegan markað fyrir þessar afurðir í aðildarlöndunum. Stærsta skrefið var þó stigið með stofnsamningi Efnahagsbandalagsins í Róm 1957 og stofnsetningu þess 1. janúar 1958. Á árinu 1956 hófust viðræður um sameiginlegt fríverslunarsvæði fyrir alla Vestur-Evrópu, en þær strönduðu. Sigldu nú tveir ríkja- hópar sinn hvora leiðina, annars vegar í Efnahagsbandalaginu og hins vegar með stofnsetningu EFTA skömmu síðar. Af ýmsum ástæðum töldu EFTA-löndin sig ekki geta átt samleið með Efnahagsbandalags- ríkjunum. Skýrist það m. a. af þeim mun sem er á Efnahagsbandalag- inu og EFTA. í Efnahagsbandalag- inu afsala aðildarlöndin miklu efnahagslegu valdi í hendur stjórn- ar bandalagsins, en í EFTA er vald- ið eftir sem áður í höndum aðildar- landa þótt þau setji sér sameiginleg markmið og vinni að þeim. Meginmarkmiðið með stofnsetn- ingu EFTA var að stuðla að frjáls- um og óhindruðum viðskiptum milli aðildarlandanna með því að brjóta niður tollmúra og aðrar við- skiptahindranir. í samræmi við þetta var því markmiði náð þegar á árunum 1966—67 að afnema tolla á iðnaðarvörum milli landanna í meginatriðum en að vísu með fáein- um undantekningum. Sérákvæði fyrir Island Um ísland giltu sérákvæði, enda gerðumst við ekki aðilar fyrr en 1970. Samkvæmt þessum ákvæð- um nutu iðnaðarvörur okkar toll- frelsis í hinum aðildarlöndunum frá upphafi. Á hinn bóginn var okkur veittur 10 ára aðlögunartími til þess að afnema tolla okkar á iðn- aðarvörum frá EFTA-löndunum. Jafnframt stóðu hin Norðurlöndin að stofnsamningi Iðnþróunar- sjóðsins með okkur til þess a hvetja til iðnþróunar hér á landi. 4- ** HAFRAFELL Vagnhöfða 7 Reykjavík símar 685211 og 685537 Við höfum notið góðs af EFTA okkur til þess að koma á framfæri sjónarmiðum okkar 1 viðskiptamál- um bæði innan EFTA og gagnvart Efnahagsbandalaginu. SaltfisktoIIur Efnahags- bandalagsins Sem dæmi um hvernig EFTA nýt- ist sem vettvangur fyrir málflutning má nefna saltfisktoll Efnahags- bandalagsins og málarekstur okkar í því sambandi. Eins og kunnugt er ákvað Efnahagsbandalagið á fyrra ári að frá og með 1. júlí nk. yrði lagður tollur á innflutning til þeirra á saltfiski og skreið. Nú verður Portúgal aðili að Efnahagsbanda- laginu frá næstu áramótum, en í Portúgal er mikilvægasti saltfisk- markaður okkar. Auk þess erum Kjartan Jóhannsson, alþm. ogfor- maður þingmannanefndar EFTA. við með saltfisk- og skreiðarút- flutning til nokkurra annarra landa í Efnahagsbandalaginu. í mars sl. sat ég fund þingmannanefndar EFTA með fulltrúum þingmanna Efnahagsbandalagsins. Þann fund ávarpaði framkvæmdastjóri utan- ríkisviðskipta hjá Efnahagsbanda- laginu. Ég notaði tækifærið strax til þess að mótmæla fyrirætlunum þeirra Efnahagsbandalagsmanna um að leggja á þennan saltfisk- og skreiðartoll. Bæði á fundi EFTA í Vín í maí sl. og á fundi EFTA hér í Reykjavík á dögunum var áfram hamrað á þessu máli af hálfu okkar íslend- inganna, bæði af hálfu viðskipta- ráðherra og þingmanna. Nú hefur sá árangur náðst að öll EFTA-lönd- in hafa komið til liðs við okkur í þessu máli með því að EFTA hefur sent formleg mótmæli til Efnahags- bandalagsins og óskað er eftir við- ræðum um viðunandi lausn. Þarna náðist okkar málstaður í gegn hjá EFTA og það er nú orðinn formleg- ur bandamaður okkar í málinu. Ríkisstyrkir í sjávarútvegi og aukið frjálsræði í viðskiptum með fisk- afurðir Annað atriði, sem varðar okkur miklu er aukið frjálsræði í viðskipt- um með fiskafurðir og ríkisstyrkir annarra þjóða til sjávarútvegsins. Þetta hef ég oft gert að umræðu- efni, bæði hér heima og á erlendum vettvangi innan EFTA og Evrópu- ráðsins. Á fundinum, sem haldinn var hér á landi nú á dögunum náðist sá áfangi að samþykkt var að fela aðalskrifstofu EFTA að vinna skýrslu um þessi mál sem lögð verð- ur fyrir þingmannanefndina. Það er okkur íslendingum mjög mikils virði að fá umræðu um þessi mál, vekja skilning annarra og vinna stuðning við málstað okkar. Á þessu sviði er mikið í húfi fyrir okkur. Á Reykjavíkurfundinum náðist þannig ákveðinn áfangi í þessu mikilsverða máli.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.