Alþýðublaðið - 11.07.1985, Qupperneq 14

Alþýðublaðið - 11.07.1985, Qupperneq 14
14 Fimmtudagur 11. júlí 1985 Davíð Sch. Thorsteinpson í alsjálfvirkum pökkunarsalnum. fullkomnast Evrópu. Sól hf, Smjörlíki hf „Ég hcf aldrei þurft að segja fólki upp vegna aldurs. Þetta eldra starfsfólk hérna hjá okkur er svo gott starfsfólk, að það er hreint dá- samlegt að vinna með því. Þetta segi ég ekki af því, að þetta á að birtast í Alþýðublaðinu, heldur vegna þess að þetta er heilagur sannleikur og ég get staðið við það hvar sem er. Fyrirtækið er nefnilega ekkert nema fólkið sem vinnur hjá því. Ég er stoltur að segja það, að A'orrœn samvinna í verki á efnastofunni. Tveir efnafrœðingar íslenskurog fólkið hérna er mjög áhugasamt í danskur fylgjast stöðugt með framleiðslunni. starfi. Lán þessa fyrirtækis er „Japani fremur harakíri.. Rœtt við Davíð Schéving Thorsteinsson forstjóra um blómlegt fvrirtœki, sjálfvirkni, gott starfsfólk og Japanann áhugasama . . . starfsfólkið.og fyrirtækið gengur virkilega vel“. Það er Davíð Scheving Thor- steinsson, forstjóri Sól hf. og Smjörlíkis hf., og formaður banka- ráðs Iðnaðarbankans, sem hefur orðið og í miðri setningu grípur hann símann og er óðar kominn í kafasamræður um háalvarlega fjármálastefnu við einhvern banka- stjóra úti í bæ. „Jæja, ég á bankann og þú verð- ur að athuga þetta“. Hann lauk samtalinu, brosti eins og Robert Taylor og bætti svo við yfir skrif- borðið: „Maður verður að sýna áhuga af og til“. „Við erum nýbúnir að kaupa hús Vinnufatagerðarinnar hér við hlið- ina í Þverholtinu og eigum þá lóð og svo erum við að byggja ellefu hundruð fermetra hús á lóð okkar við Einholtið, þar sem Harpa átti“. Hann bandar hendinni og segir að sumir tali um það, að hann eigi orðið 135 lengdarmetra við Þver- holtið. Stendur svo allt í einu upp og segir: „Hvað er ég að tala um þetta, ég skal bara sýna þér þetta“. Skömmu seinna stóðum við ofan í djúpum grunni í Holtunum og fjórar stórar vinnuvélar hömuðust á grjótinu í kringum okkur. „Við veltum nær hálfum millj- arði í ár og þá er ekki talið með það fjármagn, sem við innheimtum fyr- ir ríkið“. Við erum aftur komnir upp á skrifstofu, eftir að hafa gengið í gegnum eina fullkomnustu verk- smiðju sinnar tegundar í Evrópu, þar sem sjálfvirknin og tölvurnar ráða ríkjum. „Hér vinna um fimmtíu manns og við borgum um 30 milljónir í laun á árinu. Fólkið er í sérfræði- og eftirlitsstörfum. Það vinnur hvert á sínu sviði og er einstaklega hæft og gott fólk. Þú tekur ekki bara mann af götunni og setur á þessar vélar. Þetta eru allt eins kon- ar sérfræðingar. „Statussymbólið" hér á skrif- stofunni núna er reyndar að hafa tölvuskerm og fylgjast með öllu frá degi til dags. Sumir renna meira að segja hér við á kvöldin til þess að fá nýjustu tölur. Tölvuvæðingin kost- aði auðvitað margar milljónir, en það margþorgar sig. Stærsti feill- inn, sem fyrirtæki gera í tölvuvæð- ingu er að vanmeta gildi hennar og reyna bara að bæta henni ofan á aðra vinnu starfsfólksins. Þá fá þeir ekkert út úr þessu. Svona mikil sér- fræði krefst heils starfsmanns hið minnsta og það algerlega óskiptan. Við höfðum mann hér eingöngu í þessu verkefni í tvö ár, áður en við byrjuðum að keyra þetta og honum var stranglega bannað að skipta sér að rútínu-verkefnum. Enda er ár- angurinn eftir því. Framlegðarkerfi það, sem við hönnuðum sjálfir, gaf ég svo Iðn- rekendafélaginu og eru þeir núna búnir að selja þetta nokkrum tug- um iðnrekenda. Ég vona svo sann- arlega að það verði þjóðinni til mik- illa hagsbóta. Við vorum fyrstir með tvö tölvukerfi og ég sé ekki af hverju fyrirtæki megi ekki hanna sinn hugbúnað sjálf. Alla vega var okkar reynsla góð af því. Áhuginn hérna í fyrirtækinu smitar út frá sér. Við höfum auðvit- að talsvert alþjóðlegt starfslið hérna, t. d. þegar uppsetning á nýj- um vélum er í gangi. M. a. aðstoð- uðu Japanir okkur við uppsetningu og prufukeyrslu á plastvélunum okkar. — Jæja, þegar plastvélin var sett í gang boðuðum við til blaða- mannafundar og ég sagði við frétta- menn sjónvarpsins að fullar plast- flöskur þyldu að detta ofan úr 6 metra hæð án þess að sæist á þeim“. „Sýndu mér það“, sagði frétta- maðurinn. „Ég bað þá einn Japanann að standa við tækniundur sitt, sem kleif með það sama upp í rjáfur og lét flöskuna húrra niður á steingólf- ið. Flaskan var auðvitað stíheil eft- ir, en kvikmyndatökumaðurinn æpti, að hann hefði misst af þessu. Við endurtökum þetta þá bara aftur“, sagði ég og henti flöskunni aftur til Japanans sem hékk þarna uppi í rjáfrinu. Hann sá náttúrlega að eitthvað mikið var að ske, brosti út undir eyru og kallaði, hæ. Hann hélt sum sé að nú ætti að fullreyna gripinn fyrir kvikmyndaiðnaðinn og grýtti flöskunni af öllu afli í gólfið, með þeim afleiðingum að tappinn losnaði af og allt sykur- og vökvagumsið spýttist yfir sjón- varpsmennina. „Þetta er frábær frétt“, sögðu þeir sjónvarpsmenn og sá undir ilj- ar þeim út. Ég rétt náði að gauka því að þeim, að stærri yrði fréttin um Japanann sem fremdi harakíri í Reykjavík, ef frammistaða hans í málinu færi út á öldum ljósvakans. Japanir eru jú mjög „loyal“menn. Mikið eru þeir sjónvarpsmenn al- þjóðlega ábyrgir, því aldrei kom fréttin og eitt get ég fullvissað þá um, að þeir eiga góðan vin í Japan, fyrrverandi áhugasaman starfs- mann þessa fyrirtækis", sagði Davíð Scheving Thorsteinsson að lokum. Æ’ • • ORYGCI I ONDVEGI Monroe Cas Matic höggdeyfar MONROE hefur í áratugi verið leiðandí fyrirtæki í hönnun og framleiðslu á vönduðum höggdeyfum. Nú er komin á markaðinn ný kynslóð höggdeyfa frá Monroe, sem... • eru eínstaklega fljótvirkir, traustir og endingargóðir • haida eiginleikum sínum við hin erfiðustu skilyrði • stuðla að minna sliti á dekkjum, stýrisbúnaði, hjöruliðum, hjólalegum, skiptingu, kúplingu o.fl. • tryggja öruggan og þægilegan akstur og þannig leikur bíilihn í höndum þínum. Áratuga reynsla af Monroe höggdeyfum við íslenskar aðstæður tryggir þér og þínum meira öryggi. ®naust kt Síðumúla 7-9 sími: 82722 fMONROEl

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.