Alþýðublaðið - 09.11.1985, Side 1
alþýóu-
Laugardagur 9. nóvember 1985 214. tbl. 66. árg.
25
þúsund
eintök
ídag kemur Alþýðublaðið út í 25 þúsund eintökum. Því
verður dreift ókeypis um Reykjavíkursvœðið, Hafnarfjörð,
Akureyri og víðar. Hluti blaðsins er helgaður flokksstarfi
Alþýðuflokksins og hluti atvinnulífinu. Nœsta stóra blað
kemur út að hálfum mánuði liðnum.
Ivíikið átak gert í öllu innra starfi flokksins
Við mótum stefnuna í sameiningu
— Taktu þátt í breytingunni!
Þetta tölublað Alþýðublaðsins er að
hluta helgað nýrri áætlun um stefnu-
mótun í starfi Alþýðuflokksins undir
kjörorðinu: „Við mótum stefnuna í
sameiningu“. Gífurlegt átak hefur verið
gert í öllu innra starfi flokksins, sem
beinist að því, að opna flokkinn meira
en áður hefur þekkst, og virkja fleiri til
starfa og stefnumótunar.
í þessu blaði er gerð grein fyrir
helstu þáttum þessa átaks. Birt er skrá
yfir starfshópa, sem vinna að því að
skapa raunsæja og fastmótaða stefnu
í helstu málaflokkum. Birt er almanak
flokksstarfsins, fundaáætlun flokks-
stjórnar, nöfn formanna flokksfélaga,
áætlun um söfnun nýrra félaga, viðtal
við formann flokksins, grein eftir for-
mann Framkvæmdastjórnar flokksins
og fleira.
Þá vill flokkurinn einnig vekja athygli
á útgáfustarfsemi, en á flokksskrif-
stofu er nú hægt að fá ýmsa bæklinga
og rit, sem fjalla um jafnaðarstefnuna
og flokksstarfið. - Mikil fjáröflun er nú
í gangi ávegum Alþýðuflokksins. Efnt
hefur verið til happdrættis, og eru mið-
ar til sölu áflokksskrifstofu. Þá er unn-
ið að aukinni blaðaútgáfu Alþýöu-
blaðsins, sem m.a. mun felast í útgáfu
sérblaða um ýmsa þá málaflokka, sem
nú er fjallað um. Næsta blað verður
húsnæðis- og skattamálum.
helgað h
Taktu þátt í baráttunni
Enginn dregur í efa, að Alþýðuflokk-
urinn er í mikilli sókn. Hann skorar á
alla jafnaðarmenn að taka þátt í barátt-
unni svo sú ósk megi rætast, að hér á
landi verði eitt voldugt sameiningarafl
jafnaðarmanna undir merkjum Alþýðu-
flokksins. Nú er lag, og þjóðin þarfnast
þess að það verði notað.
ÁST VIÐ FYRSTU KYNNI
Renault 11 hefúr fenglð margar vfðurkenningar fyrlr ftábæra hönnun og flöðrunin er engu lík. Rými og þæglndi koma öllum
í gott skap. Komdu og reyndu hann, það verður ást vlð fyrstu kynni. Þú getur reltt þig á Renault
KRISTINN GVDNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 686633