Alþýðublaðið - 09.11.1985, Page 19

Alþýðublaðið - 09.11.1985, Page 19
Laugardagur 9. nóvember 1985 19 Áætlun Alþýðuflokksins um neyðaraðstoð við húsbyggjendur Mikill fjöldi þess fólks, sem feng- ið hefur lán til kaupa eða til bygg- ingar á íbúðahúsnæði á sl. 5—8 ár- um á nú í miklum greiðsluerfiðleik- um. Ástæðurnareru fyrst og fremst þær, að hin verðtryggðu lán hafa hækkað miklu meira en kaupið og greiðslubyröi því aukist að sama skapi. Markaðsverð á íbúðahús- næði hefur ekki heldur fylgt verð- hækkunum á skuldunum þannig, að stöðugt hefur gengið á eignar- hluta íbúðareigandans. Mörgum hefur ekki einu sinni dugað að vinna myrkranna á milli til þess að varðveita eignarhluta sinn hvað þá heldur náð að greiða skuldirnar niður. Uggvænlegast er ástandið hjá íbúðareigendum víða úti á landi þar sem markaðsverð húseigna er miklu lægra en bæði matsverð þeirra og endurnýjunarverð — svo ekki sé talað um ástandið þar sem svo háttar til, að íbúðarhúsnæði bókstaflega selst ekki. Þar horfa fjölmargir upp á það í vanmátta ör- væntingu, að eignarhluti þeirra í íbúðarhúsnæðinu rýrnar stöðugt með hækkandi inatsverði skuld- anna án þess að nokkuð sé hægt að , gera. Vinna myrkranna á milli dug- ar ekki til þess að halda í horfinu og sala eða eignaskipti eru bókstaflega ekki á dagskrá því enginn er til þess að kaupa og enginn til þess að skipta við. Rífandi uppboðstekjur Mælikvarðinn á hve mikið neyð- arástand er orðið er sívaxandi flóð nauðungaruppboðsauglýsinga, en þær eru orðnar drjúg tekjulind margra dagblaða. Slíkur er þrýst- ingurinn orðinn, að Lögbirtinga- blaðið, sem margir nefna „málgagn ríkisstjórnarinnar“ er farið að koma út í aukaútgáfum. Haldi fram sem horfir er ljóst, að fjöl- margir landsmenn muni missa eigur sínar og í næsta nágrenni bíða nú hákarlar fjármálaheimsins þess al- sendis reiðubúnir að seðja eigna- hungur sitt. Slíku ástandi mun svo fylgja upplausn fjölskyldulífs og sundrun heimila. Ekkert viðfangsefni er nú meira aðkallandi en að takast á við þetta vandamál. Ráðamenn hafa gefið ádrátt um lausn og loforð í hálf- kveðnum vísum en við fátt eitt hef- ur verið staðið. Við svo búið má ekki lengur sitja. Svo mikil er neyðin orðin og svo fljótt þarf nú að bregða við að tími er vart til fyrir tafsöm vinnubrögð Alþingis með nýjum lagasetning- um, sem venjulega tekur marga mánuði að semja og afgreiða. Ef kostur er verður að byggja aðgerð- irnar á heimildum gildandi laga og spurningin er hvort slíkar heimildir megi finna, sem dugi til þess að gefa stjórnvöldum lagalega stoð fyrir tafarlausri neyðarhjálp til hús- byggjenda. Athuganir hafa leitt í ljós, að slíkar lagaheimildir eru til. Þær eru grundvöllur tillögugerðar urn neyð- araðstoð við húsbyggjendur, sem ég hef samið og flutt á Alþingi ásamt öðrum þingmönnum Alþýðu- flokksins. Þessi áætlun um neyðar- aðstoð við húsbyggjendur er ein- föld og skýr. Hún er þessi: Áætlun Alþýðuflokksins: 1. Tafarlaust verði sett á stofn ráðgjafadeild við Húsnæðis- stofnun ríkisins, sem hefði því hlutverki að gegna að: — áætla fyrir húsbyggjendur greiðslubyrði af lánum og greiðslugetu þeirra. — yfirfara kröfur á hendur þeim m.a. útreikning dráttarvaxta og innheimtukostnaðar en á þeim sviðum eru íbúðakaup- endur og byggjendur iðulega hlunnfarnir, — veita ráðgjöf og aðstoð við skuldbreytingar, Nauöungaruppboð arui „KM <■ _ _..i auglýst hefuT_yeriöXLee] LS'sen‘11 NaUðU' m.oo. tbol' Nauðungaruppboð la AsgeW sonar hdl., Kristjáns Stl fimmtudaginl Tándsbanka islands os sjálfti þriOjudagmn 22. c annað og siðasta á Flú eftir kröfu Gjaldheimtu 23. okt6ber1985l^jJ annaö og slðara; sem auglýst v" birtingablaðsins 19h ^ermanns T,Xka#-di Owegsf. október 1 sem auglví geröi, þinl icöfu Garíl r veriö i J |n Sigurö ■aröarssoi N sem aúd eigninnjj ur og f* Land* x 42. og 44. tölub fraut 11 - hluta - .1 Indssonar, fer framj Ts og skattheimtu tj [24. októbet1985kl l ö3BiSgáb'4°sins 1- t. eign Hrannar Páturs löfu Bæjarsjóös Kópa' íiðs i Kópavogi á eif [Baajarfógetinn í Kðpi annaö og slö þingl. eign Mí Tryggingastof Landsb. Isl. of I kl. 10.45. JUo % 4i sem auglýl tbl. þess 11, Rúnars Daö í 109. tölublL^. Jeigninni Marai I Inar, fer fram eft i ftnrftakaupstí | 2. gæta hagsmuna íbúðareig- andans ef sala er óhjákvæmi- leg. Vegna ríkjandi neyðarástands verði slíkri ráðgjafardeild taf- arlaust falið að hafa að eigin frumkvæði samband við þá íbúðareigendur, sem annað og siðara nauðungaruppboð hef- ur verið auglýst hjá og bjóða þeim aðstoð sína. Aðstoðin verði í því fólgin: A. Að sjá íbúðareigandanum fyr- ir sérfræðilegri ráðgjöf lög- fræðings eða löggilts endur- skoðanda til þess að endur- skipuleggja fjármál hans þannig að koma megi við ákvæðum 2. kafla laga nr. 6 frá 5. maí 1978 um grciðslu- stöðvun til 3ja mánaða. Slík aðgerð felur í sér: Eftir Sighvat Björgvinsson ...Hunaaruppboi' — 3ja mánaða frest á uppboð- inu, — bann við því að taka bú við- komandi til gjaldþrotaskipta á meðan, — bann við því að selja eigur hans á nauðungaruppboði, — bann við því að gera lögtak í eigum hans, — bann við því að gjaldfella á hann skuld vegna vanskila. íbúðareigandanum er sem sé gef- ið stormahlé og veittur friður til þess að geta skoðað mál sín í ró og næði með aðstoð sér- fræðings. B. Þessi 3ja mánaða friðarstund verði síðan nýtt til þess að end- urskipuleggja fjármál íbúðar- eigandans. Komi í ljós, að hann geti staðið undir íbúða- lánunum með lánalengingum og samningum við lánastofn- anir aðstoði ráðgjafardeildin hann við það m.a. með því að leggja mál hans og rökstuðn- ing fyrir lánastofnanir. Bygg- ingasjóður rikisins veiti at- beina sinn og fyrirgreðslu samkvæmt heimild í 6. tölulið 11. greinar laga nr. 51/1980 um Húsnæðismálastofnun ríkisins með síðari tíma breyt- ingum. Þar er gefin heimild til veitingar viðbótarlána til ein- staklinga með sérþarfir. Þessi lán eru: — til viðbótar við önnur lán sjóðsins, — til 16 ára, — með 1% ársvöxtum. C. Komi í ljós, að skuldamálin séu íbúðareigandanum óvið- ráðanleg jafnvel þó hann fái aðstoð til lengingar lána og samning um vanskil þá verður ekki hjá því komist að ibúðar- eigandinn fái ráðrúm til þess að selja og leita að kaupanda áður en hann glatar algerlega eign sinni vegna vanskilanna og stöðugt vaxandi skulda. Einnig í þessu tilviki verður hann að fá aðstoð og líta þarf eftir því, að hagsmuna hans sé gætt við söluna og uppgjör skulda. Lagt er til, að ráðgjaf- ardeildin við Húsnæðisstofn- un ríkisins veiti einnig slíka að- stoð. Þetta er áætlun Alþýðuflokks- ins um neyðaraðstoð við íbúðar- eigendur, sem hótað hefur verið nauðungaruppboði. Þessa áætl- un er tafarlaust hægt að fram- kvæma og lagaheimildirnar hefur Alþýðuflokkurinn fundið. Þetta er kjarni þeirrar tillögu, sem ég flyt nú á Alþingi ásamt öðrum þingmönnum Alþýðu- flokksins. Atak tll söfriunar riýrra félaga: Vertu virkur! - Vertu með! Taktu þátt í breytingunni! Á síðasta flokksþingi Alþýðuflokksins var samþykkt, aö gera átak til söfnunar nýrra félaga. Ákveðið var, að veita ein- staklingum og félögum, sem best stæðu sig í söfnunarstarfinu, viðurkenningu og verðlaun. Þetta átak er nú hafið. Flokks- menn, áhugamenn og flokksfélög geta fengið eyðublöð fyrir inntökubeiðnir í flokksskrifstofu, en nöfn nýrra félaga má einnig skrá á annan þann hátt, sem lög- mætur getur talist. Þá er hægt að til- kynna nöfn nýrra félaga til flokks- skrifstofunnar. ’ i 1. Sá einstaklingur, sem safnar flestum nýjum félögum, fær sérstök verðlaun. 2. Það félag, sem safnar flestum nýjum félögum í hlutfalli v:ið íbúafjöldaá fé- lagssvæði, fær sérstaka viðurkenn- ingu. / 3. Miðað er við tímabilið frá 1. nóvember til 15. mars á næsta ári. \ 4. Flokksfélögin eiga að senda mánaðar- lega skýrslu til skrifstofunnar um gang mála, og verða upplýsingar um , árangurinn birtar í Alþýðublaðinu. 5. í lok þessa átaks verða vegleg vérð- laun veitt, svo og viðurkenningar. Það er skorað á alla stuðningsmenn Alþýðuflokksins að taka þátt í þessu átaki. Það er mikilvægt að fjölga'virkum félögum. Á því bygglst allt framtíðarst^rf flokksins. i Verið með - flokkurinn þarfnast þess.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.