Alþýðublaðið - 15.05.1986, Blaðsíða 1
alþýðu
BORGARBLAÐ
Fimmtudaqur 15. maí 1986
91. tbi. 67.
Jóhanna Sigurðardóttir:
NÝ LAUSN SEM MARKAR TÍMA-
MÓT í HÚSNÆDISMALUM
Jóhanna Sigurðardóttir.
6000 kaupleiguíbúðir á
næstu 10 árum
Á Alþingi hafa þingmenn Al-
þýðuflokksins lagt fram tillögu um
nýja lausn í húsnæðismálum. Ef
þessi tillaga nær fram að ganga
markar hún algjör tímamót í hús-
næðismálum. Fólki verður gert
kleift að koma sér þaki yfir höfuð-
ið, án þess að binda sér þunga
skuldabagga, sem oft verða að
drápsklyfjum eins og dæmin
sanna.
Engin útborgun
Sú nýja lausn sem Alþýðuflokk-
urinn nú boðar í húsnæðismálum
eru kaupleiguíbúðir, sem þekktar
eru víða í okkar nágrannalöndum,
ekki síst þar sem jafnaðarmenn
fara með völd.
Kaupleiguíbúðir sameina kosti
íbúða í verkamannabústöðum,
eignaíbúða, búsetuíbúða og leigu-
íbúða. íbúðir í verkamannabústöð-
um er sá kostur sem hagstæðastur
er í húsnæðismálum hér á landi.
Tiltölulega fáir hafa þó aðgang að
slíkum íbúðum. Bæði er það vegna
þess að fáar íbúðir eru byggðar í
verkamannabústöðum og einnig
vegna ýmissa skilyrða sem sett eru
s.s. að viðkomandi þarf að vera inn-
an vissra tekjumarka ef hann á að
hafa möguleika á íbúð í verka-
mannabústöðum. Svo er þó komið
að þó íbúðir í verkamannabústöð-
um sé hagstæðasti kosturinn sem
býðst, þá ráða margir ekki við þá
útborgun sem krafist er, sem getur
verið 350—500 þúsund krónur eftir
stærð íbúðar.
Kaupleiguíbúðir eru því hag-
stæðari kostur en íbúðir í verka-
mannabústöðum; í fyrsta lagi
vegna þess að fólk getur valið um
leigu eða kaup á slíkum íbúðum og
í öðru lagi þarf fólk ekki að leggja
fram neina útborgun heldur ein-
göngu fastar mánaðarlegar greiðsl-
ur. Verkamannaíbúðir ollu byltingu
í húsnæðismálum íslendinga á sín-
um tíma. Tillagan um kaupleigu-
íbúðir felur í sér róttækustu um-
bætur í húsnæðismálum allt frá því
að lög um verkamannabústaði voru
sett fyrir hálfri öld síðan.
6000 kaupleiguíbúðir
Þingmenn Alþýðuflokksins hafa
lagt til á Alþingi að á næstu 10 árum
verði árlega byggðar eða keyptar
600 kaupleiguíbúðir. Við leggjum
til að félagsmálaráðherra hafi
frumkvæði að því að leita til sveit-
arfélaga, launþegasamtaka eða
annarra félagasamtaka um að hefja
byggingu og/eða kaup á 6000 kaup-
leiguíbúðum á næstu 10 árum.
Heimilt yrði að ráðstafa 4 fyrstu ár-
in tilteknum fjölda íbúða á hverju
ári til þeirra sem byggðu eða keyptu
húsnæði eftir 1980 og að mati ráð-
gjafaþjónustu Húsnæðisstofnunar
geta ekki haldið húsnæði sínu
vegna mikilla greiðsluerfiðleika.
Fjármögnun verði með þeim
hætti að byggingarsjóðirnir leggi
fram 80% byggingarkostnaðar, en
framkvæmdaaðilar (sveitarfélög,
launþegafélög eða önnur félaga-
samtök) 20% af byggingarkostn-
aði. Lagt er til að kaupleiguíbúðir
verði annarsvegar félagslegar
íbúðabyggingar fjármagnaðar úr
Byggingarsjóði verkamanna með
1% vöxtum fyrir láglaunafólk.
Hinsvegar kaupleiguibúðir á al-
mennum markaði fjármagnaðar úr
Byggingarsjóði ríkisins með 3.5%
vöxtum.
íbúð fyrir 6.754 kr. á
mánuði
Kaupleiguíbúðir gefa fólki val
um hvort heldur sem er að Ieigja
slíkar íbúðir eða kaupa þær. — Ef
fólk kýs leigu þá yrði leigugjald
4.670 krónur á mánuði fyrir lág-
launafólk eða aðra sem af félagsleg-
um ástæðum þarfnast aðstoðar við
húsnæðisöflun, en leiga á almenn-
um markaði yrði 7.180. Þessi leiga
fer til að greiða niður afborganir og
vexti af lánum úr byggingarsjóðun-
um. — Kjósi fólk að eignast kaup-
leiguíbúðir þá greiðir það viðbótar-
gjald við leiguna. Viðbótargjaldið
yrði frá 2.084 krónum á mánuði
upp í 4.909, allt eftir því hvað við-
komandi kýs að eignast íbúðina á
Iöngum tíma, en greiðslutími getur
staðið í allt að 30 ár.
Viðbótargjaldið fer til að greiða
niður hluta sveitarfélagsins eða
framkvæmdaaðilans sem er 20% af
byggingarkostnaði. — Þegar að
fullu er uppgert við framkvæmda-
aðilann fær viðkomandi afsal fyrir
íbúðinni og yfirtekur eftirstöðvar
af áhvílandi lánum við byggingar-
sjóðina.
Sem dæmi má nefna að greiðsla
leigu og viðbótargjalds fyrir lág-
launafólk yrði samtals 6.754 krónur
á mánuði, ef viðkomandi kýs að
eignast hluta sveitarfélagsins á 30
árum og 9.578 krónur á mánuði ef
hlutur framkvæmdaaðilans yrði
greiddur niður á 10 árum.
Heildargreiðslur (leiga og við-
bótargjald) vegna kaupleiguíbúða á
almennum markaði yrði samtals
9.264 krónur ef hlutur fram-
kvæmdaaðilans er greiddur niður á
30 árum og 12.089 ef viðkomandi
kýs að eignast íbúðina á 10 árum.
Fjármögnun
Framlög sveitarfélaganna miðað
við þá framkvæmdaáætlun að
byggðar yrðu 600 kaupleiguíbúðir á
hverju ári næstu 10 árin yrði 276
milljónir króna á ári. Ætla verður
að hlutur sveitarfélaga á hverju ári
yrði ekki svo mikill, því hér er um
svo hagstæðan kost að ræða fyrir
launafólk, að nokkuð víst má telja
að launþegasamtök, lífeyrissjóðir
eða önnur félagasamtök hefðu
áhuga á að gerast framkvæmdaað-
ilar, sem þá minnkaði hlut sveitarfé-
lagsins. Að auki má benda á að út-
gjöld sveitarfélaga minnka árlega í
hlutfalli við endurgreiðslu viðbót-
argjalds frá kaupendum en endur-
greiðslan gæti þá runnið til áfram-
haldandi framkvæmda við bygg-
ingu eða kaup á kaupleiguíbúðum á
næstu árum, eins og framkvæmda-
áætlunin gerir ráð fyrir.
Erfiðleikar sveitarfélaganna við
fjármögnun yrðu því mestir í byrj-
un meðan verið væri að hrinda
áætluninni af stað. Til að auðvelda
sveitarfélögum framkvæmdir gerir
tillaga Alþýðuflokksins því ráð fyr-
ir að eignaskattsauki verði lagður á
félög og fyrirtæki, svo og á stærri
eignir eða nettó skuldlausar eignir
yfir 7 milljónir króna næstu tvö ár-
Framhald á bls. 22
BENIDORM
Beint flug í sólina
Brottfarardagar og okkar ótrúlega hagstæða verð 16. mai 9. okt. 5.júní 26.júni 18. sept. 17. júli 7. ágúst 28. ágúst
2 í smáibúð, 3 vikur 20.460,- 24.640,- 26.780,-
Hótel með morgunverði
og kvöldverðarhlað-
borði 29.590,- 33.840,- 36.240,-
COSTAdel SOL
Gerið sjálf
verðsamanburð
Íbúðir og hótel á eftirsóttustu stöðunum.
Brottfarardagar og okkar
Atrúlega hagstæða verð
Ibúðahótel xxx
2 i ibúð, 3 vikur
Hótel xxx
með morgunverði
16. mai 9. okt. 5.júni 26. júni 18. sept. 17. júli 7. ágúst 28. ágúst
24.800 27.900 30.900
27.200 30.700 31.900
Íslenskir fararstjórar og fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir.
Ennfremur leiguflug á þriggja vikna fresti til annarra eftirsóttra sólskinsstaða.
MALLORCA - COSTA BRAVA