Alþýðublaðið - 29.11.1986, Síða 15
Laugardagur 29. nóvember 1986
15
Jón Bragi
Framh. af bls. 5
dómara. Og sama gildir auðvitað
um öll ráð, nefndir og stofnanir
framkvæmdavaldsins. Það er orðið
svo brýnt að breyta vinnubrögðum
að þessu leyti að það þolir enga bið.
Mörg fleiri atriði af sama toga
mætti nefna, en ég læt þau bíða til
síðari tíma. Ég vil þó vara við að
umræða um siðferði í stjórnsýslu er
vandasöm. Hún má ekki verða
óvægin, því að þá er hætt við að
hún verði sjálf siðlaus.
Hvernig líður lýðræðinu á ís-
landi, einum af hornsteinum jafn-
aðarstefnunnar?
Ekkert alltof vel. Raunar má
segja, að við búum ekki við lýðræði
á Islandi heldur forræði.
Hvenær fékkst þú síðast að
greiða atkvæði um mál sem þig
varðar?
Líklega hefur þú aldrei fengið að
gera það — og þó ef þú ert einn af
þeim heppnu þá hefur þú e.t.v. feng-
ið að greiða atkvæði um hundahald
í þéttbýli eða útsölustaði Á.T.V.R.
og þar með er það upp talið, að ég
hygg.
Þetta er kallað forræði. Þú afsal-
ar þér öllum völdum á fjögurra ára
fresti. Finnst þér þetta rétt? Er þetta
nauðsynlegt? — Nei þetta er hvorki
rétt né nauðsynlegt.
Þetta var nauðsynlegt áður fyrr,
en nú eru samgöngur góðar — fjar-
skipta- og úrvinnslutækni á það
háu stigi að það er vandalítið fyrir
okkur öll að greiða atkvæði um öll
mikilvægustu mál þjóðarinnar og
sum þau.lítilvægari. Til dæmis: Á
að leggja niður launamannaskatt-
inn? A að taka upp staðgreiðslu-
kerfi skatta? Á að taka upp virðis-
aukaskatt? Á að leyfa söíu bjórs á
Islandi? o.s.frv. Þessi og mörg önn-
ur mál snerta okkur með svo bein-
um hætti að við eigum að tjá okkur
um þau í þjóðaratkvæðagreiðslum.
Það er barnfæddur réttur okkar.
Hvað er að frétta af jafnrétti á ís-
landi, öðrum hornsteini jafnaðar-
stefnunnar? Ég á von á því að Lára
segi okkur eitthvað af jafnréttis-
málum kvenna hér á eftir, en mig
langar til að víkja að þeirri hlið sem
að okkur Reykvíkingum lýtur. Hve
lengi ætlum við að þola það að hafa
Vi til 1/5 af atkvæðavægi annarra
Iandsmanna í alþingiskosningum.
Slíkt óréttlæti, sem hér tíðkast í
kosningum til löggjafarþingsins er
þjóðinni til skammar.
Stjórnarskrárnefndin marg-
fræga var með tilburði til þess að
laga þetta og ýmsa aðra þætti í
stjórnarskrá okkar íslendinga, en
það var eingöngu kák og klúður.
Sannleikurinn er sá að við þurf-
um að efna til þjóðfundar um
stjórnarskrána núna, sem sjálfstæð
og fullvalda þjóð en ekki vera sífellt
að reyna að tjasla upp á þá óveru
sem danskur konungur gaf okkur.
Nú er ég búinn að eyða mestu af
mínu púðri í ýmis grundvallaratriði
jafnaðarstefnunnar og ekkert far-
inn að ræða ýmis aðkallandi áhuga-
mál okkar Alþýðuflokksfólks eins
og skattamál, launamál, húsnæðis-
mál og atvinnumál. Ég vil segja
nokkur orð um þessa málaflokka
en árétta samt að ég hygg að við
komumst skammt á veg, ef við tök-
um ekki til og gerum hreint fyrir
dyrum á stjórnsýsluheimili okkar
og í opinberu lífi.
Skattakerfi okkar er sprungið. Sá
launamannaskattur, sem nefndur
er tekjuskattur er svo ósanngjarn,
vegna sviksemi hluta þegnanna að
vart kemur annað til greina en að
leggja hann niður. Ef aðrar lausnir
eru til betri þá verða þær að koma
og koma fljótt.
Húsnæðismálin eru ennþá óleyst
og raunar eitt mest aðkallandi
vandamál sem við eigum við að
glíma. Með stóru kerfisbreyting-
unni yfir í raunvexti fyrir um áratug
síðan riðlaðist öll viðmiðun og við
höfum ekki náð áttum síðan. Að
þessu leyti búa tvær þjóðir í land-
inu.
Sú sem byggði fyrir raunvexti og
sú sem byggði eftir raunvexti. Þær
lúta sömu lögmálum hvað tekjur og
skatta varðar, en sú síðarnefnda
borgar raunvexti — hin ekki.
Ég þekki þetta af eigin raun því
ég er sjálfur að byggja.
Á íslandi er rekin láglaunastefna
svo sem margir þjóðfélagshópar
þekkja af eigin raun af biturri
reynslu. Svo þarf ekki að vera.
Tekjumismunur er orðinn ískyggi-
legur á íslandi og hefur raunar auk-
ist hin síðari ár. Þessari þróun mun-
um við snúa við.
En við þurfum einnig að sækja á
fengsælli mið í atvinnumálum. Við
getum ekki umflúið það að okkar
helstu útflutningsafurðir, fiskaf-
urðir, keppa við ódýrustu vörur á
Bandaríkjamarkaði eins og kjúkl-
inga og aðrar landbúnaðarvörur.
Við verðum því einnig að stefna á
önnur mið í ríkari mæli, efla nýjar
greinar á fjölmörgum sviðum, allt
frá ferðamannaiðnaði, sem á geysi-
lega vaxtarmöguleika á íslandi, í
hátækni-iðnað, sem þegar er farinn
að skjóta rótum í íslensku atvinhu-
lífi, þrátt fyrir grýttan jarðveg.
í þessu skyni þurfum við að auka
frelsi til athafna í íslensku atvinnu-
lífi. Við þurfum að leysa úr læðingi
athafnaþrá og athafnaorku hug-
vitsfólks með því að ryðja þrösk-
uldum hafta úr vegi, og með því að
byggja brýr yfir fyrstu erfiðleika-
tímabil.
Ágætu fundarmenn.
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér
í fjórða sæti á lista Alþýðuflokksins
hér í Reykjavík ásamt tveimur öðr-
um ágætum valkostum. Ykkar er
valið! Þannig á það líka að vera. En
hvernig sem fer í prófkjörinu þá
skulum við sameinast að því loknu
til þess að gera sigur Alþýðuflokks-
ins og þar með íslensku þjóðarinn-
ar, sem allra stærstan.
Jón Sig.
Framh. af bls. 6
þýðuflokkurinn hefur átt drjúgan
þátt í að móta þessa stefnu. íslend-
ingar eiga einnig jafnan að skipa sér
þar í sveit á alþjóðavettvangi, sem
stuðningur við frelsi og mannrétt-
indi og málstað fátækra þjóða
þriðja heimsins er einarðastur.
Horft til framtíðar
Stjórnmál snúast um fleira en
skipulag efnahagslífsins og skipt-
ingu lífsgæða. Fyrst og síðast snú-
ast þau um fólkið sjálft. Það hefur
jafnan verið styrkur íslenskrar al-
þýðu, að hún hefur séð lengra —
séð meira — en brauðstritið eitt.
Hún hefur aldrei gleymt tungu sinni
eða sögu; aldrei misst sjónar á
framtíðinni. Það hefur hins vegar
viljað brenna við í íslenskum
stjórnmálum mörg undanfarin ár,
að menn hafi verið ofurseldir vanda
líðandi stundar á hverjum tíma —
ekki séð fram á veginn. Á þessu
þarf að verða breyting, þannig að
meiri framsýni ráði ferð. Við þurf-
um að hugleiða vandlega, hvað gera
þarf til þess að ísland haldi sínu
fólki í samkeppni þjóðanna á
næstu áratugum. í þessu felst í
reynd spurningin um það, hvað gef-
ur lífinu gildi. Við þurfum ekki að-
eins að bæta skilyrði til hagvaxtar
og treysta innviði velferðarsamfé-
lagsins, meðal annars með umbót-
um í menntakerfi, og heilsugæslu,
heldur ekki síður að efla sjálf-
stæða, íslenska menningu í þeim
mikla straumi erlendra áhrifa, sem
leikur um þjóðlífið. Við þurfum
einnig að vera vel á verði og gæta
þess, að náttúrulegt umhverfi spill-
ist ekki hér á landi. Á báðum þess-
um sviðum hefur hið opinbera
skyldum að gegna, sem helgast af
samkennd þjóðarinnar, sameigin-
legum menningararfi og ást á land-
inu og síðast en ekki síst af skyldum
við komandi kynslóðir. Þetta eru
mikilvæg verkefni á sviði þjóðmála
á næstu árum og áratugum.
Alþýðuflokkurinn er
í sókn
Á síðustu misserum hefur fylgi AI-
þýðuflokksins farið ört vaxandi.
Öllum er í fersku minni sá mikli sig-
ur, sem flokkurinn vann i sveitar-
stjórnarkosningum síðastliðið vor.
Síðustu skoðanakannanir benda til
þess, að flokkurinn njóti nú stuðn-
ings nær fjórðungs kjósenda. En
við finnum líka á annan hátt, að
flokkurinn er i sókn meðal almenn-
ings. Almenningsálitið er með okk-
ur. Þótt sá stuðningur og velvilji
verði ekki veginn á vog eða talinn í
tölum, er hann ekki síður mikilvæg-
ur fyrir það.
En um leið og við fögnum þessu
góða fylgi, þurfum við að hafa hug-
fast að enn er langt til kosninga. Nú
ríður á að halda verkinu áfram. Hér
er ekki til setu boðið, heldur miklu
fremur til meiri starfa.
Olof Palme lauk einni af ræðum
sínum með orðunum: Pólitík er að
vilja. Og það er vissulega rétt, en
vilji er ekki allt sem þarf, því pólitík
er líka að velja: Velja leiðir að því
marki, sem menn vilja ná, og velja
menn til að berjast fyrir málstaðn-
um.
Ég er sannfærður um það, að
jafngóð samstaða næst um skipan
allra sæta á framboðslistanum í
Reykjavík og tókst um fyrstu þrjú
sætin. Þrír góðir frambjóðendur
keppa nú um fjórða sætið, og ég
vona, að flokksmenn fjölmenni á
prófkjörstað um næstu helgi. Hver
sem niðurstaðan verður í prófkjör-
inu, veit ég, að listi Alþýðuflokks-
ins í Reykjavík í næstu þingkosn-
ingum verður sigurstranglegur.
Björgvin
Framh. af bls. 7
Góðir fundarmenn!
Ég hef nú nefnt helstu stefnumál
Alþýðuflokksins í næstu alþingis-
kosningunum. En að sjálfsögðu
berst Alþýðuflokkurinn fyrir mörg-
um fleiri málum, svo sem nýskipan
sveitarstjórnarmála, er tryggi aukið
lýðræði, raunhæfu launajafnr'étti
karla og kvenna og fleiri málum.
Stefna Alþýðuflokksins er rót-
tæk. Stefna Alþýðuflokksins er
skýr. Alþýðuflokkurinn er í dag rót-
tækastur allra flokka. Alþýðu-
flokkurinn vill gera meiri breyting-
ar á íslensku þjóðfélagi en aðrir
flokkar. Hann vill skapa réttlátt
þjóðfélag. Hann vill afnema allt
misrétti.
Undanfarin ár hefur setið við
völd í landinu samstjórn Sjálfstæð-
isflokksins og Framsóknarflokks-
ins. Þessi stjórn hefur verið sann-
kölluð afturhaldsstjórn. Eins og
alltaf þegar þessir tveir flokkar
vinna saman ná íhalds- og aftur-
haldsöflin undirtökum í flokkun-
um.
Oft áður hafa þessir flokkar ráð-
ist gegn launafólki og gegn þeim
umbótamálum, sem Alþýðuflokk-
urinn hefur knúið fram og eru
hornsteinar velferðarþjóðfélagsins.
En að þessu sinni hefur keyrt um
þverbak.
í tíð núverandi ríkisstjórnar hafa
ýmsir postular nýfrjálshyggju látið
mjög á sér kræla og engu er líkara
en að þeir hafi oft ráðið ferðinni.
Postular nýfrjálshyggjunnar
hafa ráðist beint gegn ýmsum stofn-
unum velferðarríkisins. Þeir vilja,
að hinir sjúku greiði fyrir sjúkra-
húsvist úr eigin vasa. Sjúkrahúsvist
og læknishjálp á að veita þeim fyrst
og fremst sem hafa næga peninga.
Hinir eiga að mæta afgangi. Þannig
er nýfrjálshyggjan.
Svo virðist sem verkalýðshreyf-
ingunni og Alþýðuflokknum hafi
tekist að stöðva framsókn nýfrjáls-
hyggjunnar, a.m.k. í bili. En við
skulum vera vel á verði. Þessir menn
geta hvenær sem er ráðist á al-
mannatryggingarnar. Það voru
þessir menn sem lögðu niður Bæj-
arútgerð Reykjavíkur. Og á sama
hátt geta þeir afnumið almanna-
tryggingarnar, ef við erum ekki vel
á verði, ef við höldum ekki vöku
okkar.
Góðir fundarmenn — Kæru
samherjar!
Alþýðuflokkurinn leggur stefnu
sína fyrir kjósendur í alþingiskosn-
ingunum næsta vor. Alþýðuflokk-
urinn treystir dómgreind íslenskra
kjósenda.
Ef allt fer sem horfir munum við
kolfela afturhaldsstjórn ihalds og
framsóknar í kosningunum í vor.
Og Alþýðuflokkurinn mun þá
storma inn í stjórnarráðið. Að því
ber að vinna. Gerum sigur. Alþýðu-
flokurinn sem glæsilegastan í
næstu kosningum. Fram til sigurs.
Ertu hættulegur
í umferðinni
án þess að vita það?
Mörg lyf hafa svipuö áhrif
og áfengi.
Kynntu þér vel lyfiö
sem þú notar.
3Aon
Ljóma smjörlíki........%m%m p m
Strásykur, 1 kg . 16,30
Golden síróp, 500 g 55,90
37 50
Finax hveiti, 2 kg......\m m
2i m
Hagvers kókosmjöl, 250 g . .émM mm
Jarðarberjasulta, 454 g 38,90
Dansukker flórsykur, 500 g . 15,90
1000
Dansukker púðursykur, 500 g afti W | W %m
Odense | 1 jjl 00
Odense QC) QO
konfektmarsipan, 200 g .... m ÆF p Æ%m
Konsum ÖHF
suðusúkkulaði, 200 g...M f p / %jr'
41 60
Mónu súkkulaðispænir .... Jk ák ^%m%m
Klijnoot
döðlur án steina, 250 g.%m m j%m%m
Dökkar rúsínur, 400 g 52.80
HAGKAUP
REYKJAVÍK AKUREYRI NJARÐVÍK
ÓSA/SlA