Alþýðublaðið - 29.11.1986, Side 16
Laugardagur 29. nóvember 1986
Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 681866, 681976
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján
Þorvaldsson,
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Askriftarsíminn
er 681866
Kraftur í Hafnfirðingum:
Fyrsta skóflu-
stungan tekin
í fyrradag
— og nýr fiskmarkaður opnar 1. apríl 1987!
„Fyrsta skóflustungan að nyju
40002 húsi fyrir nýjan fiskmarkað
var tekin í fyrradag, við Óseyrar-
bryggju í Hafnarfirði. Stefnt er að
því að hinn nýi fiskmarkaður verði
tekinn í notkun þann 1. apríi n.k. í
þessu mikla húsi er fyrirhugað að
bjóða upp nýjan fisk. Þess má geta
að húsið kostar fullbúið 35,2 millj-
ónir og inn í þeirri tölur er kostnað-
ur við nauðsynlegar uppfyllingar,
sem þarf að gera á hafnarsvaeðinu“,
sagði Þorsteinn Steinsson, fjár-
málastjóri hjá Hafnarfjarðarbæ, í
viðtali við Alþýðublaðið í gær.
„Búið er að stofna félag um
rekstur á þessu húsi og fyrirhugað
er að sérstakt félag verði stofnað
um byggingu hússins sem heitir
Háigrandi. Gert er ráð fyrir að
þetta félag, Háigrandi, sem stóð
fyrir þessari skóflustungu í fyrra-
dag, komi til með að leigja viðkom-
andi rekstrarfélagi húsnæðið.
„Aðdragandinn að þessari
ákvörðun er ekki ýkja gamall, þetta
hefur allt saman borið nokkuð
brátt að. Ég held ég fari rétt með að
þessi ákvörðun hafi tekið um það
bil tvo mánuði.
Við erum einnig með hús að
Melabraut 18, og þar er allt til reiðu
til þess að byrja með fiskmarkað á
meðan á byggingu hins nýja húss
stendur. Það hús er um það bil
12002.
Það hefur verið mikill kraftur í
þessu máli og búið að vinna mjög
vel og örugglega að öllum þáttum
málsins, sem sést best á því að við
erum ákveðnir í að taka nýja húsið
í notkun 1. apríl 1987“, sagði Þor-
steinn Steinsson, fjármálastjóri hjá
Hafnarfjarðarbæ.
FRIÐUR —
Hvað getur skólinn
gert og hvernig?
Dagskrá um friðarfræðslu í skól-
um verður haldin í Kennslumiðstöð
Námsgagnastofnunar að Lauga-
vegi 166 n.k. þriðjudag. Þessi dag-
skrá er haldin í tilefni af friðarári
Sameinuðu þjóðanna og er yfir-
skrift hennar:
FRIÐUR — HVAÐ GETUR
SKÓLINN GERT OG HVERNIG?
Dagskráin hefst klukkan 14 með
því að Sigurður Pálsson, deildar-
stjóri, Guðrún Agnarsdóttir, al-
þingiskona, dr. Þórir Kr. Þórðar-
son, prófessor, og Guðríður Sigurð-
ardóttir, skólaráðgjafi, flytja ávörp
og leitast við að svara ofangreindri
spurningu. Að því loknu verða um-
ræður og fyrirspurnir.
Klukkan 16 greina þau Margrét
Ólafsdóttir, Erling Ólafsson, Berg-
ljót Ingvadóttir og Aðalbjörg
Helgadóttir frá reynslu sinni varð-
andi friðarfræðslu á dagvistunar-
stofnunum og í skólum.
Einnig liggur frammi til kynning-
ar erlent efni með ábendingum og
hugmyndum um friðarfræðslu.
Kennarar, foreldrar og aðrir áhuga-
menn um friðarfræðslu eru hvattir
til að koma.
Ekkert
í tékkhe
og öll helgin
ðublað
€L v '»ofivÍ
„Blessaður vertu, - kveiktu á perunni. Farðu í næsta Hraðbanka og taktu reiðufé út af
tékkareikningnum þínum, þú getur tekið út allt að 10 þúsund krónum. Ekkert mál.
Afgreiöslustaðir Hraöbankans eru á eftirtöldum stöðum:
• Borgarspitalanum • Landsbankanum Breiöholti • Landsbankanum Akureyri • Landspltalanum
, • Búnaðarbankanum, aöalbanka • Búnaöarbankanum viö Hlemm • Búnaðarbankanum Garöabæ
• Sparisjóði Vélstjóra Samvinnubankanum Háaleitisbraut • Útvegsbankanum Hafnarfiröi
• Sparisjóöi Reykjavíkur og nágrennis, Skólavörðustlg • Sparisjóði Keflavfkur
• Landsbankanum, aðalbanka.
1 t
framundan
mmíl
npNi ’ m
m *$§£ 1 *
■■
m m ■
jýRA&EsANI$
NOTAÐU SKVNSEMINA - NOTADU HRAÐBANKANN!
Leiðbeiningabæklingar liggja frammi hjá öllum aðildarbönkunum