Alþýðublaðið - 16.12.1986, Page 5

Alþýðublaðið - 16.12.1986, Page 5
Þriðjudagur 16. desember 1986 5 ÍmHÍI ; I» fj*] ff ■■■ i*, 1 flij ! , 'Áí'- ifi Hverjir eiga jólin? — Jólahug- vekja eftir séra Hjálmar Jóns- son, prófast á Sauðárkróki Vítt um heimsbyggðina er verið að undir- búa jól. Ihinum vestrœna heimi a.m.k., vex viðbúnaðurinn með hverju árinu. En hverj- ir eiga jól? Með þá spurningu þarf að fara um alla heimsbyggðina. Allt frá því í nóvember hefur orðið ,Jóla“ hljómað. Það er einkum notað sem forskeyti til áherslu í auglýsingum. Boð berast um það hvaðanæva, að jólséu í nánd og hvatt er tilþess af mikilli hugkvæmni, að menn hafi nokkurn viðbúnað af þessu til- efni. Rásir og bylgjur fjölmiðlanna spila jólapoppið og verslunargöturnar óma af jólalögum til þess að það hendi engan eitt augnablik að gleyma því að jólin eru alveg að koma, — og sitthvað ókeypt ennþá. Æ oftar kemur mér í hug ævintýrið um það „þegar tröllið stal jólunum“. Af þeim sökum raskaðist jólahaldið þótt allt færi vel að lokum. Það liggur við að þarna sé ekki ævintýrið eitt á ferðinni. Jólunum er stolið löngu áður en að þeim kemur. Hvar- vetna eru haldin „lítil jól“ og jólafundir. Jólaguðspjallið er lesið, helgustu jóla- sálmarnir sungnir og viðbúnaður allur hafður eins og jól séu þegar komin og ekki síður íþví sem varðar mat og glögg. Það er svo í hæsta máta broslegt þegar fólk undr- ast óþreyju barnanna, sem ganga þó sjald- an lengra en að hrista jólapakkana. Við höldum fyrirburðarjól. Viljum fá hana strax, jólahátíðina, eins og allt annað, sem við viljum. Við erum herrar jarðarinn- ar, — eigum landið og lífið með öllum þess gæðum. Þess vegna er óþarfi að bíða með hátíðahöldin þangað til Jrelsari heimsins fæddur er“. Hann kemur þó í fyllingu tím- ans og gefur sjálf jólin og frelsar þar með frá gervijólum aðventunnar. „Sjá hann stendur við dyrnar og knýr á“, sásem vill gefa hin sönnu og heilögu jól. Sá sem vill rækta Guðs ríki innra með mönn- unum og láta birtuna frá dýrð hans Ijóma í hugum manna og lýsa í orðum þeirra og störfum. Jesús er að sönnu alltaf á ferð og leitast við að leiða mennina á guðsríkis- braut. Best er hlustað á sjálfum jólunum, vegnaþess að Guð hefur gert mönnum sér- stakt jólatilboð. Orðið jól er sérstakt áhersluorð hvað varðar kærleika Guðs. Þetta eina og sanna jólatilboð er á hreint ótrúlegu verði. Taka má tilboði Guðs án fjárútláta og án verðleika. Jólatilboðið byggist á því að mennirnir trúi á jólin og þann sem gefur þau. Það fer ekki eftir fjármunum eða vits- munum hverjir eignast jól. Stétt eða staða skiptir heldur engu máli. Það fer yfirleitt ekki eftir neinu þekktu lögmáli hver heldur sönn og gleðileg jól og hver ekki. Forsenda jóla ersú að boðskapnum sé trúað og menn viðurkenni þá leið, sem Drottinn hefur val- ið þeim til hjálpræðis. Sjálfir setja menn ekki skilyrðin ogþað sanna dæmin, að þeir geta gert sig of breiða og mikilláta fyrir jól- in. „Sælir eru hógværir því að þeir munu landið erfa“ stendurþar. Þeirsem taka jól- unum í auðmýkt hjarta síns og í þökk til skapara síns og endurlausnara, þeireru bet- ur viðbúnir jólum og að hlusta á það, sem Drottinn vill viðþásegja með jóla-gjöfinni. Þeir eiga jól í hjarta sínu, — hina einu sönnu jólagleði. Guð gefi þér og þínum heilög, gleðileg jól, — í Jesú nafni sr. Hjálmar Jónsson

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.