Alþýðublaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 8
8
Þriðjudagur 16. desember 1986
Verulegt átak að byggja upp
lánstraust Sauðárkróksbæjar
Markviss og samstillt barátta skilaði þeim
árangri að sæti jafnaðarmanna í bæjarstjórn
Sauðárkróks endurheimtist í síðustu kosning-
um. Flokkurinn bætti verulegu fylgi við sig mið-
að við úrslit kosninganna 1982. Strax eftir kosn-
ingarnar var myndaður nýr meirihluti sem sam-
an stendur af 3 Sjálfstæðisflokksfulltrúum, 1
fulltrúa óháðra kjósenda og 1 fulltrúa Alþýðu-
flokksins.
— Björn Sigurbjörns-
son, skólastjóri og
fulltrúi Alþýðuflokks-
ins í bœjarstjórn á
Sauðárkróki, skrifar.
Eitt fyrsta verk nýja meirihlutans
var að gera úttekt á fjárhagsstöðu
Bæjarsjóðs, Hitaveitu og Vatns-
veitu. Um leið var gerð greiðslu-
áætlun til áramóta 1986/87.
Mikil vanskil
í ljós kom að heildar vanskil
Bæjarsjóðs og stofnana voru tæpar
36 milljónir og stefndi í rúmar 45
milljónir um áramót. Kostnaður
vegna þessara vanskila var um 1
milljón á mánuði.
Þegar haft er í huga að brúttó-
álagning útsvara árið 1986 er tæpar
50 milljónir er greinilegt hve hér er
við mikinn vanda að etja.
í sjálfu sér þarf þessi staða ekki
að koma á óvart. Um síðustu ára-
mót námu heildarskuldir Sauðár-
króksbæjar og stofnana hans 153
milljónum króna, þar af voru
skammtímaskuldir tæpar 80 mill-
jónir króna, þá var einnig ljóst að
fjárhagsáætlun fyrir árið 1986 sem
raunar var ekki samþykkt fyrr en 22
april var ekki allskostar raunhæf
sérstaklega hvað rekstrargjöld og
fjárfestingar varðaði. Þegar um
kosningar var búið að ráðast í stór-
an hluta þeirra framkvæmda sem
voru á fjárhagsáætlun og sumar þá
þegar komnar langt fram úr áætl-
un.
Það verður að segjast að fyrri
meirihluta hafði ekki tekist að út-
vega lánsfé til að mæta útgjöldum
eða afborgunum lána fram til kosn-
inga, hvað þá eftir þær. Þegar búið
var að gera úttekt á fjárhagsstöð-
unni hófst núverandi meirihluti
þegar handa við að leita nýs láns-
fjár til að koma vanskilunum í skil
og semja um skuldbreytingar þar
sem hægt var. Má segja að það hafi
gengið vonum framar. M.a. hefur
fengist heimild til lántöku að upp-
hæð alls kr. 40 milljónir og mun
Búnaðarbanki íslands hafa milli-
göngu um þá lántöku. Það er Ijóst
að veruiegs átaks er þörf við að
byggja upp lánstraust Sauðár-
króksbæjar að nýju. Þær fjárhags-
legu byrðar sem Bæjarsjóði hafa
verið bundnar á síðustu árum verða
ekki bornar af öðrum en bæjarbú-
um. Þrátt fyrir að gætt verði svo
sem kostur er, aðhalds í rekstri og
framkvæmdir verði í algeru lág-
marki er ljóst að fullnýta verður
alla tekjustofna. Öðru vísi verður
ekki snúið af þeirri óheillabraut að
fjármagnskostnaður gleypi stærst-
an hluta tekna Bæjarsjóðs.
Fjárhagurinn er mjög bágborinn
eins og að framan greinir og gefur
ekki fyrirheit um miklar eða stór-
brotnar framkvæmdir á næstunni.
Beina verður spjótum að því að
rétta við stöðu bæjarsjóðs.
Astæðulaust er að blása í glæður
illinda milli flokka eða manna og
kenna einum um frekar en öðrum,
heldur viðurkenna þann vanda sem
blasir við og vinna sameiginlega að
lausn mála.
Mörg mál eru aðkallandi og bíða
úrlausnar. Fyrir bæjarfélag sem er í
örum vexti er í mörg horn að líta.
Undanfarin ár hefur verið unnið
mikið og gott starf í mennta-, félags-
og atvinnumálum.
Varaflugvöllur
við Sauðárkrók
Nefnd á vegum samgöngumála-
ráðuneytisins hefur skilað áliti
varðandi uppbyggingu flugmála á
Islandi. I álitinu kemur m.a. fram
að aðstæður við Sauðárkrók eru
lang vænlegastar til að byggja vara-
flugvöll fyrir millilandaflug. Er hér
um að ræða framkvæmdir fyrir um
2—300 milljónir kr.
Samstaða ríkti milli allra flokka í
síðustu bæjarstjórn Sauðárkróks
um mikilvægi þess að varaflugvöll-
ur yrði byggður við Sauðárkrók.
Þar sem Alþýðuflokkurinn átti
ekki fulltrúa í bæjarstjórn s.l. kjör-
tímabil birti núverandi bæjarfull-
trúi hans yfirlýsingu þess efnis að
Alþ.fl. tæki að fullu þátt í að vinna
að framgangi málsins.
Miklir hagsmunir eru í húfi bæði
fyrir Skagfirðinga og alla aðra
landsmenn. Öryggi flugvéla og
flugfarþega og stórkostlegur sparn-
aður flugfélaga vega þar mest. Hér
í héraði mundi verða mikii tíma-
bundin atvinna við byggingu vallar-
ins, fjölgun starfsmanna í slökkvi-
liðinu og ný atvinnutækifæri
myndast t.d. í flugumsjón.
Með tilkomu varanlegs flugvallar
skapast möguleikar á flutningum
beint erlendis t.d. með fisk og aðrar
afurðir.
í dag er mest rætt um á hvern hátt
eigi að fjármagna byggingu fyrir-
hugaðs flugvallar, reyndin er sú að
bæjarstjórn Sauðárkróks ræður
þar engu um heldur Alþingi íslend-
inga og þeir sem þar sitja hverju
sinni.
Sjálfsagt er að halda vöku sinni
og fylgjast grannt með framgangi
mála og reyna að hafa áhrif á þann
veg sem heppilegastur mætti ætla
að verði fyrir byggðarlagið okkar.
Við í Alþýðuflokknum teljum að
varaflugvöllur eigi að sjálfsögðu að
vera undir íslenskri stjórn annað
kemur ekki til greina.
Útgeröarfélag
Skagfirðinga
Megin markmið með stofnun
Ú.S. var að tryggja atvinnu fisk-
vinnslufólks í landi. Sá háttur hefur
verið hafður á að skip félagsins
hafa landað nær öllum afla sinum
heima.
Á þessu ári fóru fram miklar end-
urbætur á Drangeynni og einnig var
mikið unnið við Skapta m.a. skipt
um vél. Þetta voru mjög kostnaðar-
samar framkvæmdir og óskaði
bæjarstjórn Sauðárkróks upplýs-
inga frá stjórn Ú.S. um hvernig
staðið var að verki og einnig um fyr-
irkomulag rekstrar í nánustu fram-
tíð.
Skuldbindingar Sauðárkróks-
kaupstaðar eru miklar hvað Ú.S.
viðkemur og mikið fjármagn hefur
runnið úr bæjarsjóði síðustu ár til
félagsins.
Það er erfitt að þurfa að taka
ákvörðun sem gæti haft í för með
sér að vinna í landi dragist saman,
en það verður að leita allra leiða til
þess að tryggja áframhaldandi
rekstur Ú.S.
Þó svo að breyting verði á rekstri.
Ú.S. t.d. á þann veg að Drangey
verði gert að alfrystiskipi og t.d.
20% afla hinna tveggja togaranna
verði settur í gáma er ekki þar með
sagt að frystihúsin i Skagafirði
þurfi að vera verkefnalaus.
Steinullarverksmiðjan
Alþýðuflokkurinn átti sinn þátt í
að Steinullarverksmiðjan var reist á
Sauðárkróki. Jón Karlsson bæjar-
fulltrúi flokksins vann vel að frá-
gangi þess máls ásamt öðrum bæj-
arfulltrúum á árunum 1978—82.
Einhugur rikti og ríkir enn um að
Séð yfir gamla bœ-
inn á Sauðárkróki.
•Æmdí4
Alþýðublaðið á Norðurlandi-Vestra er borið í
hvert hús. Auglýsing þín í Alþýðublaðinu nær
því tilætluðum árangri.