Alþýðublaðið - 16.12.1986, Qupperneq 10
10
Þriðjudagur 16. desember 1986
Heilaveltur
og vangabrot
1
Hvað er athugavert við fyrir-
sögnina?
Svar:
2Þessi saga gæti sem best verið
sönn — kannski er hún það:
Auðmaður einn kom heim til sin
og sagði við fjölskyldu sína:
— Þvílík dæmalaus heppni sem
kom yfir mig í dag. Ég hitti mann
sem gerði mér svo fáránlega
heimskulegt viðskiptatilboð að
hann kemur til með að stórtapa á
því en ég græði að sama skapi. Rík-
ur var ég fyrir, en eftir þessi við-
skipti kem ég svo sannarlega ekki til
með að vita aura minna tal, — það
er að segja ef þessi mannkjáni getur
borgað mér þessar þrjár milljónir
sem hann lofaði mér fyrir fáeina
aura.
— Hvað segirðu maður, sagði
konan hans, ætlar þessi maður að
borga þér fleiri milljónir fyrir fá-
eina aura?
— Já, sagði maðurinn. Þetta er
allt saman sáraeinfalt. Tilboðið
sem hann gerði mér var þannig að
því var ekki hægt að hafna, enda
tók ég hann á orðinu, — án þess að
hugsa mig um. Hann bauðst til að
koma hingað í heimsókn á hverjum
degi í heilan mánuð og færa mér
hundrað þúsund krónur í hvert
sinn.
— Og hvað vildi hann fá í stað-
inn? spurði konan.
— Ja, það var ekki mikið, svaraði
maðurinn. Hann vildi fá einn eyri
fyrsta daginn og svo tvo aura dag-
inn eftir, þriðja daginn sagðist hann
vilja fá fjóra aura fyrir hundrað-
þúsundkallinn og átta aura fjórða
daginn og þannig koll af kolli, —
alltaf tvöfalt fleiri aura en daginn
áður. — Og hugsaðu þér! — Svo
kemur rúsínan í pylsuendanum:
Hann setti nefnilega eitt skilyrði.
— Hvaða skilyrði var það? spurði
konan.
— Jú, hann setti það skilyrði að
ég mætti ekki segja samningnum
upp fyrr en mánuðurinn væri lið-
inn. Eins og mér dytti í hug að segja
upp þvílíkum samningi.
Og nú er spurningin þessi: Hvor
græddi á þessum viðskiptum?
Svar: ___________________________
3Maður nokkur var nýfluttur
og var að koma sér fyrir í nýju
íbúðinni sinni. Meðal annarra
muna átti hann í eigu sinni 15 for-
láta styttur úr kínversku postulíni
sem hann ákvað að koma fyrir í
fimm hillum. Eftir nokkra umhugs-
un ákvað hann að láta stytturnar
mynda eins konar pýramída, með
því að hafa eina styttu í efstu hill-
unni, tvær í þeirri næstu, þrjár í
miðhillunni, fjórar í næstneðstu og
fimm í neðstu hillunni. Hann var
tiltölulega fljótur að ákveða hvaða
styttur hann ætlaði að hafa í hverri
hillu. Hann byrjaði nú á því að
koma þeirri styttu sem átti að vera
í efstu hillunni fyrir. Næst þurfi
hann að ákveða hvor styttan skyldi
vera til hægri og hvor til vinstri í
næstefstu hillunni. Þetta tók þó til-
tölulega skamman tíma því mögu-
leikarnir voru aðeins tveir. Þegar að
þriðju hillunni kom vandaðist mál-
ið nokkuð, því þar voru möguleik-
arnir fleiri. Hann gat t.d. haft styttu
A til vinstri, styttu B í miðjunni og
styttu C lengst til hægri. En það var
Iíka hægt að raða þeim öðru vísi;
t.d. B—A—C, eða C—A—B, eða
A—C—B, eða B—C—A, eða jafn-
vel C—B—A. Samtals reyndust
þetta vera sex möguleikar.
Okkar maður var skipulagslega
sinnaður og vildi ekki gera neitt af
handahófi. Hann byrjaði því að
skrá skipulega hjá sér alla mögu-
leika og hófst síðan handa um að
virða þessa möguleika fyrir sér. Ef
við sleppum þeim tíma sem fór í að
skrá alla möguleikana niður á blað
og gerum ráð fyrir að það hafi tekið
hann eina mínútu að raða styttun-
um í samræmi við hvern möguleika
og virða þessa uppstillingu fyrir sér,
hversu Iengi var hann þá að raða
styttunum í allar fimm hillurnar?
Svar: _____________________________
— Skákþrautir
Minev
1. Hvftur leikur og heldur jafn-
tefli
£ iibií ?||||||||| 1
1 11 11 1 i
i iii AIIIIIIIIIIM ? 1111 Hl
111 111 II IBI
i II 111 III
iiiiiiii 11 111 g
llllll II iiiini
&
bara sá að skipta borðinu í 64 reiti
með sem fæstum skurðum.
Svar:___________________________
7Stór indíáni og lítill indíáni
gengu saman eftir götu. Litli
indíáninn var sonur stóra indíánans
en stóri indíáninn var ekki faðir
litla indíánans. Hvað var stóri
indíáninn þá?
Svar:
8
Bættu einni tölu við þessa
talnaseríu: 4 16 36 64
Svar:
Hvernig getur helmingurinn af
ellefu verið sex?
Svar:
10
Hvar er þetta að finna?
4Hvernig má skipta hálfmán-
anum á myndinni í 6 hluta með
því að draga tvær beinar línur í
gegnum hann?
5Eldspýturnar á myndinni eru
lagðar þannig að þær mynda
kross. Flatarmál krossins er jafn
mikið og í fimm eldspýtnaferning-
um (fjórum eldspýtum raðað horn-
rétt hverri á aðra). Geturðu raðað
þessum 12 eldspýtum þannig upp
að þær myndi form sem er jafnt
fjórum eldspýtnaferningum að
flatarmáli?
6Skákborð er 64 reitir svo sem
kunnugt er. Setjum svo að við
vildum skera skákborð í sundur
þannig að hver reitur yrði sér. Allir
skurðir þurfa að vera beinir, en eftir
að búið er að skera einu sinni, má
leggja hlutana hvorn ofan á annan
og skera í gegnum báða í einu og
þannig koll af kolli. Galdurinn er
NONDOL
DADRIM
RINLEB_
ANURIK
Vegleg
bóka-
yerðlaun
Fyrir réttar lausnir á þessum
þrautum verða veitt vegleg bóka-
verðlaun frá Bókaútgáfunni
Breiðabliki. Sá sem leysir rétt all-
ar þrautir á síðunni, — bœði
skákþrautir og heiiabrot, fœr í
verðlaun matreiðslubókina „Um-
hverfis jörðina á 80réttum“. Fyrir
flestar rétt leystar skákþrautir
verður verðlaunað með bókinni
„Dómari og böðull“ eftir Mickey
Spillane, önnur verðlaun eru
„Þriðja stúlkan“ eftir Agatha
Christie og þriðju verðlaun eru
„Drekabrúin“ eftir Emmu
Drummond.
Fyrstu verðlaun fyrir heilabrot
er bókin „Snæfálkinn“, eftir
Craig Thomas, önnur verðlaun
„Grímuklœddi riddarinn“ eftir
Caroline Courtney og þriðju
verðlaun „Laun ástarinnar“ eftir
sama höfund.
Athugið að til að fá matreiðslu-
bókina, þurfa allar þrautirnar að
vera rétt leystar, en um hinar
þrautirnar gildir að sá sem leysir
flestar rétt, fœr verðlaunin. Hikið
því ekki við að senda okkur svör-
in, þótt ekki séu allar þrautirnar
leystar. Heppnin getur verið með
þér engu að síður.
Lausnir . sendist til Alþýðu-
blaðsins, Armúla 38, 108 Reykja-
vík. Skrifið „skák“, „heilabrot“
eða „skák + heilabrot“ á umslag-
ið, eftir því sem við á.
Skilafrestur er til 10. janúar
1987og miðast við að umslagið sé
póststimplað í síðasta lagi þann
dag.
Berist margar jafngóðar lausn-
ir verður dregið um verðlaunin.
W. Smyslov
4. Hvltur leikur og vinnur
A. Andersen
7. Hvltur mátar í fjórða leik
A.J. Fink
8. Hvltur mátar I þriðja leik
UMHVERFIS
JÖRÐINA
Á 80 RÉTTUM
AjP " jj
K ■ &
Verðlauna-
bækurnar
£ Új'N*.
ifif* ■ ■ ■ "s
P&rg*
; ...
i Sr
him. . W,