Alþýðublaðið - 04.03.1987, Side 8

Alþýðublaðið - 04.03.1987, Side 8
8 Miðvikudagur 4. mars 1987 Frambjódendur Alþýðu- flokksins kynntir 4. sæti GRETARJONSSON sé í hávegum haft, þannig að þau sjálfsögðu mannréttindi séu tryggð að fólk geti ráðið sínum málefnum sjálft. Núverandi ástand minnir helst á einhvers konar nýlendu- stefnu. Það getur ekki verið eðlilegt að það sem við öflum hér á lands- byggðinni, streymi fyrst í gegnum eitthvert miðstýringarapparat í Reykjavík. Það þarf að breyta pen- ingastreyminu. Þetta álít ég vera stærsta málið í dagí' Kristján Grétar Jónsson er fœddur á Stöðvarfirði 16. júní 1945 og ólst þar upp. Hann lauk skyldunámi á heimaslóðum en hélt síðan vestur í Reykjanesskóla við ísafjarðardjúp þar sem hann dvaldist nœstu vetur og tók gagnfræðapróf frá þeim skóla. Það- an lá leiðin i iðnnám. Grétar hóf iðnnámið á Höfn í Hornafirði en flutti sig heim á Stöðvarfjörð eftir fyrsta veturinn og var eftir það í lœri hjá Ármanni Jóhannssyni rafvirkjameistara, en sat á skólabekk í lðnskólanum í Reykjavík á veturna. Grétar lauk sveinsprófi í rafvirkjun haustið 1968 og öðlaðist meistararéttindi í faginu 1971. Fyrstu árin að námi loknu vann hann áfram hjá meistara sínum, Armanni Jóhannssyni en árið 1970 skipti hann um og gerðist rafveitustjóri á suðurfjörðum hjá Rafmagnsveit- um ríkisins og hefur gegnt því starfi síðan. Það þarf að breyta peningastreyminu „Ætli það hafi ekki verið það, hvað mér ofbauð að sjá hvað menn geta stjórnað þessu landi illa,“ segir Grétar Jónsson, sem skipar 4. sætið á lista Alþýðuflokksins í Austur- landskjördæmi, þegar hann er spurður, hvað hafi fyrst vakið áhuga hans á stjórnmálum. „Aula- gangurinn í því sambandi er nánast ótrúlegur," segir hann einnig. „Annars má segja að jafnaðar- stefnan hafa alltaf heillað mig og ég hafði fyrst opinberlega afskipti af stjórnmálum, þegar ég var í fyrsta sæti á lista Bandalags jafnaðar- manna hér 1 kjördæminu fyrir síð- ustu kosningar" Grétar segir að sér ofbjóði mið- stjórnartilhneigingin í núverandi stjórnkerfi. Hann kveðst vilja að einstaklingurinn fái að njóta sín, án þess að honum sé sífellt stjórnað af einhverju apparati. „Ég vil líka að vald sveitarstjórna Hér skrifar HRANI Það er satt — myndin er alveg meingölluð! Andstæðingar Alþýðuflokks- ins á Austurlandi eru hræddir um þessar mundir. Það sést afar vel á skrifum þeirra bæði í héraðsblöð austanlands og Reykjavíkurblöð- in. Þeir hafa líka fulla ástæðu til að óttast um hag sinn, því eftir áratuga hlé, er nú aftur opinn möguleiki fyrir því að Alþýðu- flokksmenn kunni að fá mann kjörinn á þing í Austurlandskjör- dæmi. Hræddir menn grípa til ýmissa bragða og eru ekki alltaf vandir að meðulum. Það er því ekki hægt að búast við því af þeim að þeir séu alltaf málefnalegir í málflutn- ingi sínum. Allt eins má búast við þvi að þeir grípi til annarra að- ferða, þegar málefnin þrýtur. HRANA langar til að gera hér að umtalsefni í örstuttu máli, eina mynd sem um daginn birtist í Al- þýðublaðinu á Austurlandi og virðist hafa farið fyrir brjóstið á framsóknarmönnum, sem svo vilja kalla sig, þótt mörgum þyki stefna flokks þeirra ekki í sem fyllstu samræmi við heitið. Mynd sú sem hér um ræðir var á sínum tíma tekin á Egilsstaða- flugvelli. Framsóknarmenn þeir sem standa að útgáfu Austra þótt- ust hafa himin höndum tekið þeg- ar þeir sáu þessa mynd, vegna þess að hún var ekki ný, klipptu hana út og birtu úrklippuna, að því er virðist til að sanna fyrir lesendum sinum áhugaleysi Alþýðuflokks- ins fyrir málefnum Austurlands. Fyrir neðan myndina birtist svo þessi texti, sem HRANI leyfir sér að birta í heild: „Já, eins og sjá má af mynda- safni Alþýðublaðsins, þá hafa Al- þýðublaðsmenn ekki verið hér á ferð frá tímum Viscount-vélanna. Alþýðuflokkurinn hefur þó sent okkur frambjóðendur fyrir kosningar öðru hvoru og nú síðast fyrrverandi BJ manninn Guð- mund Einarsson þingmann Reyk- nesinga. Og Guðmundur virðist vera búinn að uppgötva þau sann- indi að hann hafi látið Austurland algerlega afskipt. Þeir ættu nú að nota tímann til að rifja upp aðstæður á Austur- landi í sameiningu, Guðmundur og Alþýðublaðsmenn, en þar sem flugstöðin og flugvöllurinn á Eg- ilsstöðum eiga enn eftir að taka breytingum frá því ljósmyndari AljDýðublaðsins var siðast á ferð, þá tekur því ekkert að endurnýja myndasafnið fyrr en þeim breyt- ingum er lokið" Út af fyrir sig gæti verið gaman að kryfja þennan framsóknar- texta til mcrgjar út frá því sjónar- miði hversu málefnalegt innlegg hann er í kosningabaráttuna. HRANI vill hins vegar biðja les- endur að taka eftir því, á hverju þeir Austramenn sjá að myndin var gömul en ekki ný. Jú þeir þekkja það á flugvélinni sem sjá mátti á myndinni. Og þetta er kannski aðalatriðið í málinu. Egilsstaðaflugvöllur hefur því miður ekki breyst á und- anförnum árum. Þar er enn iðu- lega ófært vegna aurbleytu þótt ekkert sé að veðri. Þrátt fyrir, eða kannski vegna hárrar þingmanna- tölu Framsóknarflokksins í kjör- dæminu, er þessi margumtalaða mynd, enn birtingarhæf. Ef þing- menn kjördæmisins hefðu staðið sig betur á undanförnum árum og áratugum, væri hún það kannski ekki. Og þar með lætur HRANI út- rætt um gömlu myndina af Egils- staðaflugvelli. Hann vill hins veg- ar nota tækifærið til að stinga því að lesendum, hvort ekki væri rétt að þeir legðu sitt af mörkum til að blessuð myndin megi úreldast sem allra fyrst, t.d. með því að skipta um einhverja þingmenn. Gallinn við myndina er ekki sá að hún sé gömul, — heldur hitt að hún skuli enn ekki vera úrelt. HRANI stingur upp á að á því verði ráðin bót — með því að skipta um þingmenn. Alþýöublaðið á Austurlandi fer inn á hvert heimiii í kjördæminu. Auglýsing þin kemur því fyrir sjónir allra íbúa Austurlands ef hún birtist í Alþýðubiað- inu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.