Alþýðublaðið - 04.03.1987, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 4. mars 1987
11
Kosningar í Bretlandi í haust
Stiklað á því stærsta á valdaferli Margrétar Thatcher. Efnahagsstefna
járnfrúarinnar ekki líkleg til að afla henni fylgis.
Þegar Margrét Thatcher varð
forsætisráðherra 1979 átti það sér
nokkurn aðdraganda í pólitískum
sviptingum áranna á undan. Barátt-
an við atvinnuleysið, olíukreppan
og efnahagserfiðleikar af þeim sök-
um reyndust íhaldsstjórn Heaths
erfiður Ijár í þúfu og flokkurinn
beið ósigur í kosningunum 1974.
Heath var kennt um ófarirnar og
áhrifamenn innan flokksins vildu
fá nýjan leiðtoga. Það lá beinast við
að það yrði sir Keith Josepli, einn af
þeim stjórnmálamönnum sem stóð
hvað lengst til hægri í breskum
stjórnmálum. En hann vakti á sér
athygli, miður heppilega, um þetta
leyti og þá bárust böndin að aðstoð-
armanni hans og hægri hönd, Mar-
gréti Thatcher. Nokkrir af þing-
mönnum íhaldsflokksins töluðu
um kjör hennar sem „slys“.
Stjórn Verkamannaflokksins
1974—1979 heppnaðist ekki að ná
tökum á hinni háu verðbólgu, at-
vinnuleysi jókst og umfangsmikil
verkföll veiktu stöðu bæði verka-
lýðshreyfingarinnar og flokksins.
Það var því vandséð hvort kosning-
arnar 1979 báru fremur vott um
fylgi við íhaldsflokkinn eða voru
vantraustsyfirlýsing á Verka-
mannaflokkinn. Slagorð eins og
„Verkamenn vinna ekki“, ásamt-
myndum af löngum röðum at-
vinnuleysingja höfðu sín áhrif og
ennfremur loforð um lækkun
skatta. Með sigri Margrétar og
íhaldsflokksins 1979 fóru í hönd
nýir tímar í Bretlandi og aðaláhersl-
an lögð á að draga úr verðbólgunni.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International hafa lagt í herferð
gegn dauðarefsingum í Bandaríkj-
unum. Herferðin er hluti átaks gegn
dauðarefsingum hvar sem er í heim-
inum — nú er m.a. barist gegn af-
námi dauðarefsinga í Kína, Kúbu,
íran, írak, Nígeríu, Suður-Afríku
og Sovétríkjunum.
Framkvæmd dauðarefsinga í
Bandaríkjunum virðist vera handa-
hófskennd, segir í skýrslu frá
Amnesty International, mótuð af
kynþáttafordómum og brjóta frek-
lega í bága við alþjóðlega samn-
inga, sem Bandaríkin eru aðili að.
Gögn í málinu sína að dauðarefs-
ingin er happdrætti hryllingsins þar
sem stjórnmál, peningar, kynþáttur
og vettvangur afbrotsins vega oft
þyngra en tildrög brotsins, þegar
tekin er ákvörðun um hvort senda
eigi sökunaut í dauðann.
Á síðustu þremur árum hafa 57.
menn verið teknir af lífi í Banda-
ríkjunum í rafmagnsstól, gasklefa,
eða gálga, með eitursprautu eða
frammi fyrir aftökusveitum. Allt
eftir því hvaða aðildarríki Banda-
ríkjanna á í hlut. Á þessari öld hafa
23 saklausir menn verið teknir af
lífi í Bandaríkjunum þar á meðal
hinn sænskættaði Joe Hill og
ítölsku innflytjendurnir Sacco og
Vanzetti.
Fangar
febrúarmánaðar
Mannréttindasamtökin Amnesty
International vilja einnig vekja at-
hygli almennings á máli eftirfarandi
samviskufanga í febrúar. Jafnframt
vonast samtökin til að fólk sjái sér
fært að skrifa bréf til hjálpar þess-
um föngum og sýna þannig í verki
andstöðu sína við að slík mannrétt-
indabrot eru framin. íslandsdeild
Amnesty gefur einnig út póstkort
til stuðnings föngum mánaðarins,
Dregið úr ríkisumsvifum
Eitt af fyrstu verkum Margrétar
Thatcher sem forsætisráðherra var
uppgjör við þá þjóðnýtingarstefnu
sem stjórn Verkamannaflokksins
hafði rekið. Ríkið var eigandi og
meðeigandi í allmörgum fyrirtækj-
um sem stóðu illa fjárhagslega,
m.a. vegna kreppuástandsins á
þeim tíma og ekki þótti fært að
leggja þau niður og auka með því á
atvinnuleysið, sem var ærið fyrir.
Thatcher er þeirrar skoðunar að
framleiðni aukist með minnkandi
ríkisafskiptum og að aukin þjón-
usta komi öllum til góða. Hún vill
að markaðslögmálin ráði sem
mestu í efnahagslífinu og í sam-
ræmi við það hefur hún selt ríkis-
fyrirtæki jafnt og þétt þann tíma
sem hún hefur verið við völd. Það
hefur fært henni álitlegar fjárhæðir
í ríkiskassann, sem var galtómur
fyrir, en það kann að vera skamm-
góður vermir því að mörg þessara
fyrirtækja hafa skilað hagnaði, sem
nú taoast.
Olía í Norðursjó
Á árunum 1970—71, þegar stjórn
Heaths var við völd fannst allmikið
af olíu í breska hluta Norðursjávar-
ins. Nýting olíusvæðanna var
kostnaðarsöm, en þegar olíukrepp-
an varð 1973 varð hagnaður af
rekstrinum. Sú fjárfesting sem lagt
var í þá og næstu ár á eftir, hefur
fyrst og fremst skilað sér aftur í tíð
Thatcher og létti henni róðurinn.
Hagnaður af olíusölunni hefur veg-
ið þungt fyrir efnahagsafkomu
landsins síðustu 7—8 árin og ekki
og fást áskriftir á skrifstofu sam-
takanna.
Júgóslavía: Destan AIiu er 28 ára
gamall veitingasali af albönskum
ættum, sem flutti frá Júgóslavíu til
Bandaríkjanna árið 1974. Hann
hafði fengið fullt búsetuleyfi og var
að sækja um borgararéttindi árið
1982 þegar hann fór frá Bandaríkj-
unum til Júgóslavíu til að giftast
unnustu sinni og heimsækja föður
sinn sem var veikur. Þrem dögum
eftir giftinguna var hann handtek-
inn á heimili föður síns í Zajas í V-
Makedóníu og ákærður fyrir aðild
að albönskum innflytjendasamtök-
um í Bandaríkjunum og fyrir þátt-
töku í mótmælaaðgerðum i
Chicago, New York og Washington
til stuðnings albanska þjóðarbrots-
ins í Júgóslavíu; svo og fyrir að hafa
mætt á þjóðhátíðarfagnaði í Chic-
ago 1974—81 þar sem Júgóslavía
og þarlend stjórnvöld voru gagn-
rýnd. Ákæran byggðist á 131. grein
almennra hegningarlaga, sem kveð-
ur á um allt að 15 ára dóm fyrir
„þátttöku í fjandsamlegum aðgerð-
um“. Destan Aliu hlaut 7 ára fang-
elsisdóm, og er vistaður í Idrizovo
fangelsi í Makedóníu.
Dóminíkanska lýðveldið: Pablo
Liberato Rodriques, 24 ára stúdent,
var handtekinn 9. ágúst 1974 í San
Francisco de Macoris og fluttur til
lögreglustöðvar bæjarins, þar sem
hann sást síðast með blæðandi
auga og sár á hálsi sem benti til bar-
smíða. Ættingjum var sagt frá
handtökunni, en daginn eftir var
þeim sagt að hann hefði sloppið, en
,yrði skotinn ef hann fyndist“.
Skömmu síðar spurðist að hann
hefði verið fluttur í fangelsi bæjar-
ins, og þar fengust þær upplýsingar
að hann væri í haldi samkvæmt
varðhaldsúrskurði. í kjölfar þess-
ara upplýsinga var yfirmaður fang-
elsisins rekinn, og lögreglustjórinn
lét svo ummælt að Pablo hefði
örgrannt um að sú áhersla sem hef-
ur verið lögð á olíuiðnaðinn hafi
verið á kostnað annarra þátta efna-
hagslífsins. Sumir hafa kallað þetta
„ensku veikina"
Enska veikin lýsir sér í þróun, þar
sem fjármagn dregst út úr starfs-
greinum sem ekki teljast yfirmáta
gróðavænlegar og til einnar eða
fárra atvinnugreina sem miklar
gróðavonir eru bundnar við. And-
virði olíunnar hefur að miklu leyti
farið til að kaupa neysluvarning og
jafnframt hefur iðnaðurinn dregist
mjög aftur úr, því að ekki hefur ver-
ið sinnt um endurnýjun og nauð-
synlegar endurbætur á gömlum og
úr sér gengnum vélakosti.
Orkumálaráðherra Bretlands tel-
ur að olíuframleiðslan muni fara
minnkandi héðan í frá og að eftir
10—15 ár muni olíuvinnslan rétt
nægja Bretum til eigin þarfa.
Margréti Thatcher er vel kunnugt
um minnkandi olíubirgðir í Norð-
ursjó og þær afleiðingar sem það
kann að hafa fyrir efnahag lands-
ins. En hún segir að með minnkandi
olíuframleiðslu muni gengi punds-
ins fara lækkandi og við það styrk-
ist hagur útflutningsiðnaðarins,
auk þess sem það dragi úr innflutn-
ingi, þar eð innfluttur varningur
verði þá dýrari en áður. Gagnrýn-
endur hafa Iýst miklum efasemdum
á því að sambandi minnkandi olíu-
útflutnings og gengis breska punds-
ins sé þannig varið, þó að frú
Thatcher vilji svo vera láta.
En Thatcher hefur óneitanlega
tekist að ná niður verðbólgunni,
„náðst aftur“, en neitaði því síðar.
Hann hefur ekki sinnt fyrirmælum
yfirmanns ríkislögreglunnar um að
birta upplýsingar um málið, og
habeas corpus beiðni frá lögfræð-
ingum hefur heldur ekki borið ár-
angur. Nokkur viðurkenning
fékkst árið 1981 á að Pablo Rodig-
ues hafi horfið á meðan hann var í
vörzlu lögreglunnar, en ríkisstjórn
Joaquín Balaguer sem var við völd
1974 og var endurkjörin í fyrra hef-
ur ekki svarað fyrirspurnum AI um
málið.
Kamerún: André Beyegue Yak-
'ana, öryggisvörður og meðlimur í
Vottum Jehóva, var handtekinn í .
des. 1984, að því er virðist eftir fund
Votta Jehóva að heimili hans í
þorpinu Limbe. Háttsettur stjórn-
arstarfsmaður er borinn fyrir því að
a.m.k. 80 Vottar Jehóva hafi verið
handteknir á sama tíma, vegna þess
að þeir neiti að hylla þjóðfánann og
kjósa. Vottar Jehóva voru bannaðir
með ríkistilskipun 1970, og virtist
ástæðan sú að margir þeirra hafa
neitað að kjósa í forsetakosningum
af trúarástæðum. Framámaður í
eina stjórnmálaflokknum sem
leyfður er ásakaði sértrúarsamtök-
in árið 1975 um að „dreifa röngum
upplýsingum" og kvað þau hafa
orðið að „skjóli fyrir alla sem eru á
móti stofnunum ríkisins“. Samtök-
in hafa þó ekki verið talin andvíg
ríkisstjórninni, og meðlimir þeirra
virðast einungis lifa í friði í sam-
ræmi við trúarskoðanir sínar.
Þeir sem vilja leggja málum þess-
ara fanga lið, og þá um leið mann-
réttindabaráttu almennt, eru vin-
samlegast beðnir að hafa samband
við skrifstofu íslandsdeildar Amn-
esty, Hafnarstræti 15, Reykjvík,
sími 16940. Skrifstofan er opin frá
16:00—18:00 alla virka daga. Þar
fást nánari upplýsingar sem og
heimilisföng þeirra aðila sem skrifa
skal til. Einnig er veitt aðstoð við
bréfaskriftir ef óskað er.
sem var eitt af meginmarkmiðun-
um í upphafi stjórnarferils hennar.
Árið 1986 var árleg verðbólga að-
eins 3°/o, en hafði verið um og yfir
20% á 7. áratugnum. Hún hefur
notið góðs af hagstæðri alþjóða-
efnahagsþróun á þessu tímabili,
lækkandi verði á hráefnum og
lækkandi gengi dollarans.
Rökin fyrir nauðsyn þess að ná
niður verðbólgunni voru einkum
tvenns konar; að bæta samkeppnis-
aðstöðuna og að draga úr atvinnu-
leysinu. Atvinnuleysið hefur meira
en tvöfaldast í tíð Thatcher. Árið
1979 var 5% atvinnuleysi, en nú er
það 11.5%, sem sýnir að tilraunir til
að bæta atvinnuástandið hafa ger-
samlega mistekist. Hins vegar
stendur efnahagur landsins traust-
ari fótum en áður, þó að tæplega sé
hægt að tala um bætta samkeppnis-
aðstöðu.
í því felst að öðru jöfnu að út-
flutningur eykst, en innflutningur
minnkar. Sú er ekki reyndin. Síð-
ustu viðskiptatölur sýna að í heild
hefur útflutningur dregist saman,
en innflutningur aukist. Hagnaður
af vöruskiptum reyndist mun minni
en áætlað hafði verið.
Eitt af helstu kosningaloforðum
Thatcher var það að lækka skatta
af tekjum. Það loforð hefur hún
ekki staðið við þrátt fyrir batnandi
efnahag landsins. Aukið atvinnu-
leysi hefur leitt af sér stöðnun í
framleiðslunni, sem dregur mjög úr
skattatekjum ríkisins. Það er ein
meginástæðan fyrir því að ekki hef-
ur verið dregið úr launasköttum.
Á þessu ári verða haldnar kosn-
ingar í Bretlandi. Það má búast við
að margir hugsi sig um tvisvar áður
en þeir fella sinn dóm yfir frammi-
stöðu stjórnar Margrétar Thatcher.
Samt er ekki gott að segja hvernig
fer. Hún hefur áður sýnt að hún
hefur mikla hæfileika til að snúa
vörn í sókn.
Auglýsing
frá landbúnaðarráðuneytinu um
innflutning á kartöfluútsæði.
Frestur til að skila umsóknum um leyfi til inn-
flutnings á kartöfluútsæði rennur út 13. april
1987.
Landbúnaðarráðuneytið,
2. mars 1987.
Kosning fulltrúa
í Fulltrúaráð Alþýðuflokksins í Reykjavík frá Al-
þýðuflokksfélagi Reykjavíkur fer fram laugard. 7.
mars kl. 13.30—18.00.
Kosið verður í Kosningamiðstöö Alþýðuflokksins
að Síðumúla 12.
Listi með nöfnum liggur frammi á skrifstofu Al-
þýðuflokksins við Hverfisgötu. Þeir sem vilja
bætavið nöfnum á listann þurfaað skilaþeim inn
fyrir kl. 15.00 á fimmtud. 5. mars.
Stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavikur.
Vinnustaðafundur
Fyrirtæki sem óska eftir frambjóðendum Alþýðu-
flokksins á vinnustaðafundi hafi samband við
kosningamiðstöð Alþýðuflokksins, Síðumúla 12
sími 689370.
Amnesty International:
Herferð gegn dauða-
refsingum í Bandaríkjunum