Alþýðublaðið - 26.03.1987, Side 3

Alþýðublaðið - 26.03.1987, Side 3
Fimmtudagur 26. mars 1987 3 alþýðu- Umsjón: Jón Daníelsson SKAGINN — VESTURLAND Akranes og Borgarfjörður: HITAVEITAN LÆKKAR Nefnd sú sem skipuð var í haust til að gera úttekt á vanda dýrustu hitaveitna landsins og gera tillögur um úrbætur, hefur nú skilað áliti og voru tillögur nefndarinnar ræddar á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag- inn. Nefndin leggur til að skuldum að upphæð 375 milljónum króna verði létt af Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Ekki eru á þessu stigi gerðar tillögur um lausn á vanda veitnanna í Vestmannaeyjum og á Akureyri. Jónas Elíasson, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, sem var formaður nefndarinnar upplýsti í samtali við blaðið að gert væri ráð fyrir að því í niðurstöðum nefndarinnar að Hitaveita Akureyrar sæi um sig sjálf, en hvað varðaði vanda Vest- mannaeyinga hefði tillögugerð ver- ið frestað þar til sérstök nefnd um orkumál í Vestmannaeyjum hefði lokið störfum. Niðurstöður nefndarinnar á þessu stigi varða því aðeins Hita- veitu Akraness og Borgarfjarðar og sagði Jónas að þar hefði nefndin gert tillögu um að skuldabyrði hita- veitunnar yrði létt sem næmi 375 milljónum króna og hefði nefndin bent á þann möguleika að stærra fyrirtæki um héraðsorkuveitu tæki á sig þessar skuldir, eða eigendur hitaveitunnar léttu þessum skuld- um af henni með einhverjum öðr- um hætti. Þess má geta að eigendur hitaveitunnar eru viðkomandi sveit- arfélög og ríkissjóður. Jónas sagði ennfremur að ein af forsendum þeim sem nefndin hefði unnið út frá, væri sú að gjaldskrá hitaveitunnar lækkaði um 20%. Hann kvaðst hins vegar ekki hafa á reiðum höndum svör við því hvað þetta þýddi nákvæmlega í krónu- tölu, þar sem útreikningar nefndar- innar hefðu verið gerðir á föstu verðlagi þess tíma er nefndin hóf störf. Guðmundur Vésteinsson á Akra- nesi sem sæti á í stjórn hitaveitunn- ar sagði þetta afar mikilvægan áfanga. „Okkur hefur tekist að brjóta þennan múr“, sagði hann, „þetta er að vísu ekki nóg, en veru- Hvers vegna kjósum við Alþýðuflokkinn? — Valgeir Ingólfs- son, Borgarnesi, svarar: Fyrir hverjar kosningar eru menn spurðir þessarar spurn- ingar: Hvers vegna kýst þú þennan flokkinn eða hinn, — eða þennan flokkinn frekar en hinn. Margir virðast þeirrar skoðunar að allir séu flokk- arnir eins, lofi þessu eða hinu fyrir kosningar en svíki svo allt saman eftir kosningar. Þetta er einmitt ein af ástœð- unum til þess að ég kýs Al- þýðuflokkinn. Alþýðuflokkurinn hefur á undanförnum árum verið i stjórnarandstöðu og því ekki fengið tœkifæri til að sýna hvort hann stendur við öll lof- orðin eða ekki. Árið 1979 fengu Alþýðuflokksþingmenn tækifœri til að svíkja bœði sannfæringu sína og kjósend- ur í sambandi við efnahagsmál og fleira. Þetta vildu þeir ekki gera og slitu því stjórnarsam- starfi. Síðan höfum við íslending- ar fengið að reyna ýmislegt, svo sem óðaverðbólgu, kaup- ránslög og alls konar óstjórn. Má íþví sambandi nefna land- búnaðarmálin, úrelt kvóta- kerfi í sjávarútvegi, hringavit- leysu eins og í málefnum Út- vegsbankans og margt fleira. Að mínu mati höfum við hér í Vesturlandskjördœmi átt mjöggóðan þingmann undan- farin ár, Eið Guðnason, sem nú skipar efsta sœtið á listaAl- þýðuflokksins. Hann er full- trúi fólksins og nefni ég sem dœmi um samband hans við fólkið að hann kemur mjög oft á minn vinnustað og rœðir við menn, en það er meira en hœgt er að segja um aðra þing- menn og suma hef ég aldrei séð á mínum vinnustað. íöðru sœti listans eigum við jafnaðarmenn verðugan full- trúa landsbyggðarinnar. Ef Sveinn G. Hálfdanarson nœr kjöri á þing í nœstu kosning- um, þá mun hann vinna sínu kjördæmi og landsbyggðinni allri mikið gagn. Kjósum frelsi, jafnrétti og brœðralag! Kjósum Alþýðuflokkinn! Setjum X við A og þá mun vel fara! lega stórt skref í áttina. Við settum fram þá aðalkröfu að gjaldskráin færi niður í það verð sem gildir um raforku til húshitunar frá RARIK. Það myndi samsvara því að verðið á hverjum mínútulítra af vatni frá Hitaveitu Akraness og Borgarfjarð- ar, færi niður í 1400 krónur" Guðmundur sagði að heita vatn- ið kostaði nú 1640 kr. hver mínútu- lítri, en að beiðni sveitarstjórna á hitaveitusvæðinu hefði fyrir ára- mót verið frestað gjaldskrárhækk- un upp í 1880 krónur. Guðmundur kvað það ekki hafa mátt seinna vera að nefndin skilaði áliti, því ekki hefði verið unnt að fresta því lengur að taka ákvörðun um gjaldskrárhækkunina að óbreyttu ástandi. Ingólfur Hrólfsson, hitaveitu- stjóri á Akranesi, sagðist ekki hafa fengið skýrslu nefndarinnar í hend- ur og væri hann því vanbúinn að svara spurningum um þetta efni. Hann sagði hins vegar um þá hug- mynd nefndarinnar að eigendur hitaveitunnar tækju á sig 375 mill- jónir af skuldum veitunnar, að hann sæi ekki verulegan mun á því hvort fólk borgaði þessar skuldir úr „hægri eða vinstri vasa“. Þess má að lokum geta að skuldir Hitaveitu Akraness og Borgarfjarð- ar nema nú í heild ríflega 1400 mill- jónum króna og mundu því áfram nema rúmum milljarði króna, þótt skuldirnar verði lækkaðar sam- kvæmt tillögum nefndarinnar. "jviuiri vaui l af hitaveitunni. Unnið útfrá þeirri forsendu að gjald- skrá lcekki um 20%. Rétt er einnig að fram komi að þótt nefndin hafi nú skilað áliti hef- ur ekki verið tekin endanleg ákvörðun í málinu, en þess má geta að í lánsfjárlögum er fjármálaráð- herra veitt heimild til lántöku er- lendis í því skyni að greiða úr vanda hitaveitunnar. Hellissandur: Nýtt listaverk eftir Jón Gunnar Árnason „Skipiö“ heitir nýtt listaverk á Hellissandi eftir Jón Gunnar Árna- son, myndlistamann. Þetta verk „skipið“ er 9 metra hátt og vegur eitt tonn á þyngd og unnið úr ryð- fríu stáli. Listaverkið stendur við ána gegnt félagsheimilinu Röst á Hellissandi. Verkið sem reist var síðastliðið sumar er fjármagnað af varasjóði Sparisjóðs Hellissands og nágrennis en Sparisjóðurinn var yf- irtekinn af Landsbanka íslands fyr- ir 10 árum eða 1976. Sjóðurinn var þá kr. 5.000.000.00 gamlar krónur eða kr. 50.000.00 og hefur verið ávaxtaður í útibúi Landsbanka á Hellissandi. Fimm manna stjórn er yfir sjóðnum og formaður hennar er Hilrnar Vigg- ósson. Fólk hér í Neshreppi utan Ennis fagnar því að verkið „skip“ er risið hér á Hellissandi og verður lista- verkið afhent hreppsfélaginu til eignar og varðveislu um ókomin ár. Jón Gunnar Árnason myndlista- maður segir um vinnu sína við verk- ið: „En það hefur verið ánægjulegt fyrir margra hluta sakir að vinna að skipinu. Ekki bara vegna þess að viðfangsefnið er heillandi, heldur vegna þess að það er svo gaman að vinna fyrir þetta fólk þarna fyrir vestan. Að finna þennan lifandi áhuga í 600 manna sjávarplássi. Það gefur manni orku og maður verður kátur og glaður og fer að trúa á fólkið og framtíðina. Hellis- sandur er einstakt menningarpláss og mér er sannur heiður að því að vinna fyrir þetta ágæta fólk og eignast listaverk í plássinu" Kosningaskrifstofa opnuð í Borgarnesi A-listinn á Vesturlandi hefur nú opnað kosningaskrifstofu í Borgar- nesi. Hún er til húsa í Svarfhóli við Gunnlaugsgötu og kosningastjóri er Sæunn Jónsdóttir. Kosningaskrifstofan í Borgarnesi verður fyrst um sinn opin kl. 20, 30 til 22.00 á kvöldin frá mánudegi til föstudags, en um helgar verður op- ið kl. 14—18. Síminn á skrifstof- unni er 7412. Áhugamenn um velgengni Al- þýðuflokksins í kosningunum í vor eru sérstaklega hvattir til að líta inn á opnunartímum skrifstofunnar, enda í mörg horn að líta í þeirri kosningabaráttu sem nú fer í hönd. Sœunn Jónsdóttir

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.