Alþýðublaðið - 26.03.1987, Blaðsíða 4
4
Fimmtudagur 26. mars 1987'
Æfingar í barlóms-
fræði. Svartsýnisraus
sveitamanna. Ákall
um ölmusu og fleiri
slík lýsingarorð nota
stjórnarsinnar, margir
hverjir, samanber for-
mann S.U.S., þegar
rætt er um byggða-
röskun og vanda
landsbyggðarinnar. —
Stuðningsmenn ríkis-
Að fortíð
stjórnar Steingríms
Hermannssonar virð-
ast ekki skilja að
nauðsynlegt er að
viðurkenna að ástand
mála er að miklu leyti
pólitískum mistökum
að kenna. Og til að
unnt sé að koma við
úrbótum þarf að
skoða málin í því
Ijósi, hvort sem
mönnum líkar betur
eða verr.
Byggðastofnun gaf fyrir
skömmu út skýrslu, sem heitir
„Byggð og atvinnulíf 1985“. Þar
koma fram margar athyglisverðar
staðreyndir um stjórnarstefnu síð-
ustu ára. í inngangi þessarar
skýrslu segir m.a.:
„Örar og afdrifaríkar breytingar
eru að gerast í undirstöðuatvinnu-
vegum iandsbyggðarinnar, land-
búnaði og sjávarútvegi. í skýrslu
byggðanefndar þingflokkanna,
„Þróun byggðar, atvinnulífs og
stjórnkerfis“, sem út kom í júlí
1986, er dregin upp sú mynd að
þáttaskil séu að verða í byggðaþró-
un hér á landi. Niðurstaða nefndar-
innar er að misvægi á milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðisins
verði varanlegt ef ekki veröur
brugðist við þeirri þróun sem hag-
tölur undanfarinna ára sýna. Þær
upplýsingar sem koma fram hér í
þessu riti styðja það álit“.
Þetta eru staðreyndir sem menn
verða að viðurkenna. Þetta er dap-
urlegur dómur um kolvitlausa
byggðastefnu íhalds og Framsókn-
ar. Hvort sem flokkar eru að huga
að byggðastefnu fyrir vissa aldurs-
hópa (Sbr. Byggðastefna unga
fólksins hjá S.U.S. Ætli það verði
ekki næst t.d. byggðastefna rauð-
hærðra eða eitthvað svoleiðis) eða
fyrir þjóðina alla eins og við jafn-
aðarmenn stefnum að, verðum við
að skoða þróun mála undanfarin
ár. Læra af mistökunum mörgu. 1
Nú þegar þessu kjörtímabili lýk-
ur hefur Framsóknarflokkurinn
farið með völd í þessu landi svo til
óslitið sl. 16 ár. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur setið með honum í stjórn,
heill eða að hluta (ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsen) mestan part
þess tíma. Alþýðubandalagið einn-
ig um nokkurra ára skeið (einnig
ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen).
Að fortíð skal hyggja er framtíð
skal byggja. Það verða allir þeir sem
í pólitík ætla sér að starfa að vita.
Kjósendur verða að geta gert sér
grein fyrir því hverjir séu líklegir til
að standa við kosningaloforðin. Ef
fortíðin er skoðuð virðast það ekki
vera fráfarandi stjórnarflokkar. Því
vilja þeir ekki ræða fortíðina, ekki
skoða staðreyndir.
Alþýðuflokkurinn vill snúa við á
þessari óheillabraut. Ég vil hér
nefna nokkra þætti úr stefnu
flokksins, sem stuðlað gætu að
gjörbyltingu hvað byggð í landinu
varðar.
• Hann vill endurskoða hlutverk
ríkisins og færa það í nútímalegra
horf.
Hann vill jafnframt endurskoða
allan ríkisbúskapinn og stöðva
hallarekstur ríkissjóðs.
• Hann vill endurskipulagningu
banka- og sjóðakerfisins, ekkert
Útvegsbankakák.
• Hann vill sveigjanlegt veiðileyfa-
kerfi í fiskveiðum — í stað kvóta
á hvert skip.
• Hann vill svæðaskipulag um
landbúnaðarframleiðsluna — í
stað kvóta á hvert býli.
• Hann vill að ríkisvaldið veiti að-
stoð við erlenda markaðssetn-
ingu og vöruþróun.
• Hann vill stórefla rannsóknir í
þágu atvinnuveganna, sérstak-
lega i þágu nýrra útflutnins-
greina.
• Hann vill stuðning við uppbygg-
ingu smáfyrirtækja, sérstaklega á
landsbyggðinni.
• Hann vill endurskoða verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga,
með það að Ieiðarljósi að saman
fari ábyrgð og ákvarðanataka.
• Hann vill að jafnhliða lækkun
skal hyggja ...
skulda ríkissjóðs lækki vextir á
almennum markaði. Og að tekju-
öflun ríkissjóðs verði ekki til að
lánskjaravísitalan hækki.
• Hann vill einn sameiginlegan líf-
eyrissjóð fyrir alla landsmenn.
Sjóðurinn verði deildarskiptur
eftir landshlutum, stjórn og
ávöxtun verði á heimaslóðum
sjóðsfélaga.
• Hann vill að allt skattkerfið verði
endurskoðað með það að megin-
markmiði að allir greiði réttláta
skatta til samfélagsins og að
skattsvik verði upprætt.
Hér að framan hef ég rakið í
stuttu máli nokkra málaflokka sem
Alþýðuflokkurinn mun beita sér
fyrir endurbótum á. Þetta eru allt
grundvallarþættir í uppbyggingu
réttláts þjóðfélags, sem hafi það að
meginmarkmiði að hér ríki réttlæti
og velmegun í landinu öllu.
Kjósendur góðir, berið saman
þessar tillögur okkar Alþýðu-
flokksmanna annars vegar og hins
vegar afrekaskrá fráfarandi stjórn-
arflokka. Ég er þess fullviss, að þið
verðið mér sammála um að hægt er
að snúa við á þessari braut og að
með bjartsýni og jákvæðri ríkis-
stjórn, með þátttöku Alþýðu-
flokksins verður þessari þróun snú-
ið við.
Sveinn G. Hálfdánarson
Þetta er dapurlegur dómur um kol-
vitlausa byggðastefnu íhalds og
Framsóknar.
Kjósendur verða að geta gert sér
grein fyrir því hverjir séu líklegir til
að standa við kosningaloforðin.
. . . berið saman þessar tillögur
okkar Alþýðuflokksmanna annars
vegar og hins vegar afrekaskrá frá-
farandi flokka.
Atvinna
Óskum eftirað ráða járniðnaðarmenn, plötusmiði,
vélvirkja, rafvirkja og verkamenn til skipaviðgerða.
Nánari upplýsingar veittar í síma 93—8400
SKIRASMÍÐASTÖÐIN SKIPAVÍK HF.
AKRANESKAUPSTADUR
KIRKJUBRAUTJ8 - SÍMI 121 t OG 1320
Frá innheimtu
Akraneskaupstaðar
Þeir síöustu geta oröið fyrstir. Dráttar-
vextir reiknast 15. hvers mánaðar.
Innheimta Akraneskaupstaðar