Alþýðublaðið - 26.03.1987, Síða 5
Miövikudagur 25. mars 1987
5
Ólafsvík:
Aukin þjónusta
fyrir ferðamenn
Ólsarar hyggjast í framtíðinni
leggja mjög aukna áherslu á ferða-
mannaþjónustu af ýmsu tagi en
verið hefur. Nú á afmælisárinu
verður af hálfu bæjarins gert mynd-
arlegt átak í þessu efni og hefur
bærinn m.a. gerst aðili að ferða-
skrifstofunni Ferðabæ, ásamt ýms-
um öðrum sveitarfélögum víðs veg-
ar um landið.
Jökullinn hefur löngum þótt
bæði fagur og heillandi og nú er
unnið að því að leggja veg upp að
jökulröndinni og í sumar verður
ferðamönnum sem koma til Ólafs-
víkur boðið upp á sex tíma jökul-
ferðir. Verður þá ekið upp að jökul-
röndinni, en þar _ taka snjósleðar
við og flytja ferðalangana alla leið
upp á topp jökulsins.
I Ólafsvík er nú ennfremur unnið
að endurbótum á gamla pakkhús-
inu og hefur bærinn veitt 1350 þús-
undum til þeirra endurbóta, en í
þessu húsi er áformað að upplýs-
ingaþjónusta fyrir ferðamenn verði
til húsa.
Snæfellsnes hefur frá náttúrunn-
ar hendi upp á margt að bjóða fyrir
ferðamenn og er ætlunin að auð-
velda ferðamönnum að njóta þess
með aukinni þjónustu í sumar.
Nefna má að ferðamönnum sem til
Ólafsvíkur koma verður boðið upp
á bátsferðir og sjóstangaveiði og í
tilefni afmælisársins verður reynd-
ar haldið sérstakt sjóstangaveiði-
mót í sumar.
Hestaleigur eru til víðs vegar á
Snæfellsnesi og í sumar verða
ferðamenn sem þess óska sóttir til
Ólafsvíkur í hestaferðir sem yfir-
leitt munu taka um þrjá tíma.
Sérstakir 1T farmiðar fást nú til
Ólafsvíkur í fyrsta sinn. í þessum
miðum er innifalin gisting á hóteli í
Ólafsvík svo og framhaldsfarmiði
milli staða á Snæfellsnesi.
FráRifi
og Hellis-
sandi
Á Hellissandi eru í smíðum fjór-
ar íbúðir í verkamannabústöðum,
og er ætlunin að afhenda tvær
þeirra fljótlega væntanlega um
næstu mánaðamót, seinni tvær
íbúðirnar á að afhenda í ágúst á
þessu ári.
Stjórn verkamannabústaða
samdi við Bæring Sæmundsson
byggingarmeistara um byggingu
þessara íbúða, og munu þær að
nokkru bæta úr brýnni þörf fyrir
íbúðarhúsnæði í hreppnum. Á veg-.
um einstaklinga eru nokkrar íbúðir
í smíðum, og von er á að hafnar
verði byggingar á þrem til fimm
íbúðum nú í vor.
*
Það sem af er vetrarvertíðar hafa
aflabrögð verið með lakara móti,
og mun minni afli hefur borist á
land á Rifi en á sama tíma og í
fyrra, fjöldi báta sem róa frá Rifi er
þó hinn sami fimmtán til tuttugu
bátar, auk nokkurra aðkomubáta
sem komið hafa á vertíð hingað.
*
Á Rifi er verið að byggja þjón-
Verkamannabústaðir í byggingu á Hellissandi.
ustumiðstöð, þar sem verður versl-
un, sjómannastofa, gistiaðstaða og
aðstaða til matsölu, það eru eigend-
ur söluskálans Traðar sem eru að
byggja þetta hús, og er vonast til að
starfsemi í því geti hafist síðar á
þessu ári.
Neshreppingar hafa eignast sína
eigin sjónvarpsstöð, sem hóf út-
sendingar um miðjan febrúar, ein-
göngu er endurvarpað efni stöðvar
tvö, en útsending stöðvar sést þar
sem sjónvarpsstöð Neshrepps var
reist, íbúar Neshrepps geta því valið
um hvort sem þeir vilja heldur,
horfa á Ríkissjónvarpið eða stöð
tvö.
*
Samkvæmt framlagðri tillögu að
fjárhagsáætlun fyrir Neshrepp,
verða helstu framkvæmdir á vegum
hreppsins næsta sumar, væntanlega
mestar við gatnagerð, þá er samkv.
þessari tillögu áætlað að kaupa
áhaldahús fyrir hreppinn, svo og að
gera endurbætur á félagsheimilinu.
DAGSKRÁ
— hátíðahaldanna í Ólafsvík í
kvöld
kl. 20.00 Hátíðarfundur Bœjarstjórnar
1. mál. Tillaga Afmœlisnefndar að
hátíðarhöldum ársins.
2. mál. Tilnefning heiðursborgara
Ólafsvíkurkaupstaðar.
Fundi slitið.
kl. 20.30 DAGSKRÁ AFMÆLISNEFNDAR
Flutt erindi um Ólafsvík (Helgi
Kristjánsson).
kl. 21.00 Forseti Bœjarstjórnar tekur við há-
tíðarpeningi frá Rotaryklúbb Ólafs-
víkur.
kl. 21.10 Formaður Afmcelisnefndar afhendir
verðlaun vegna afmœlismerkis.
kl. 21.20 Kirkjukór Ólafsvíkur og félagar
frumflytja tvö sönglög eftir Elías
Davíðsson við texta eftir Ottó Árna-
son og Jón Arngrímsson.
kl. 21.45 Sögusýning Grunnskóla Ólafsvíkur
opnuð formlega.
kl. 22. Bœjarstjórn býður öllum bœjarbúum í
kaffi.
Kosningaskrifstofan
á Akranesi
Kosningaskrifstofa Alþýðu-
flokksins á Akranesi er opin
virka daga frá kl. 16—19. Á
laugardögum er opið kl. 14—
19, en á sunnudögum er lokað.
Þessir opnunartímar gilda til
að byrja með en þegar nær
dregur kosningunum verður
opnunartíminn lengdur.
Starfsmaður kosningaskrif-
stofunnar og kosningastjóri er
Sigurbjörn Guðmundsson.
Að sjálfsögðu er jafnan
heitt á könnunni fyrir þá sem
líta inn til að leggja hönd á
plóginn, eða bara til að spjalla
Sigurbjörn Guðmundsson
saman. Líttu inn á kosninga-
skrifstofuna, — þú er velkom-
in(n).
AKRANESKAUPSTAÐUR
KIRKJUBRAUT78 - SÍMI 1211 OC 1320
Frá innheimtu
Akraneskaupstaðar
Þeir síöustu geta orðið fyrstir. Dráttar-
vextir reiknast 15. hvers mánaðar.
Innheimta Akraneskaupstaðar
alþýöu-
i n ftt.it.
SKAGINN —
VESTURLAND
Það er ekki nóg að auglýsa það er líka nauð-
synlegt að sjá til þess að auglýsingin sé lesin
— helst af sem flestum. Þessu blaði er dreift
inn á hvert heimili í kjördæminu.