Alþýðublaðið - 23.04.1987, Síða 1
Landbúnaðarráðuneytið styrkir
kosningasjóð Framsóknarflokks!
Kosningasjóður Framsóknar-
flokksins sparar sér sennilega hátt í
hálfa milljón, eða a.m.k. þrjú til
fjögur hundruð þúsund, í kosn-
ingabaráttunni með því að láta
landbúnaðarráðuneytið gefa út
áróðursbækling sem dreift hefur
verið ókeypis til allra bænda í land-
inu. Þegar haft var samband við
landbúnaðarráðuneytið í gær lá
ekki fyrir neitt uppgjör vegna bæk-
lingsins og af einhverjum ástæðum
Sjálfhelda
stjórnarflokkanna:
Binda hendur
hvor annars
Núverandi stjórnarflokkar binda
hendur hvor annars á víxl. Þar sem
annar flokkurinn kynni að hafa
einlægan umbótavilja, strandar á
hagsmunagæslu hins. Þannig lenda
framfaramálin i sjálfheldu helm-
ingaskipta. Að vísu kemur framboð
Borgaraflokksins væntanlega í veg
fyrir óbreytt samstarf þessara
tveggja flokka eftir kosningar.
Þetta kemur m.a. fram í grein
sem Jón Sigurðsson, fyrrum for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar og efsti
maður á lista Alþýðuflokksins í
Reykjavík, skrifar í Alþýðublaðið í
dag. Sjá bls. 6
var heldur ekki tiltæk nein kostnað-
aráætlun í ráðuneytinu. Þó var gert
ráð fyrir að kostnaðartölurnar yrðu
tiltækar „eftir nokkra daga“!
Bæklingur sá sem hér um ræðir,
ber yfirskriftina: „Landbúnaður-
inn 1983-1987/Starf og árangur" og
er gefinn út af landbúnaðarráðu-
neytinu hálfum mánuði fyrir kosn-
ingar. Þótt bæklingurinn virðist
gefinn út undir því yfirskini að
ráðuneytið sé að fræða bændur um
störf ráðuneytisins í þágu þeirra
undanfarin ár, leynir sér þó ekki að
megintilgangurinn með útgáfunni
er að reka flokkspólitískan áróður
fyrir Framsóknarflokkinn. Það er
heldur ekki gerð nein alvarleg til-
raun til að fela þetta atriði, því texti
bæklingsins hefst á þann hátt sem
er dæmigerður fyrir varnarræðu
ráðherra að loknu kjörtimabili;
nefnilega með orðunum: „Þegar
núverandi ríkisstjórn var mynduð
vorið 1983 horfði þunglega i mál-
efnum landbúnaðarinsí*
Fyrir utan þær tvær krónur sem
hvert mannsbarn í landinu leggur
kosningasjóði Framsóknarflokks-
ins til í þessu sambandi er bækling-
urinn athyglisverður um margt, —
þó kannski einkum fyrir það sem
stendur þar ekki.
Svo dæmi sé tekið er framarlega
í bæklingnum birt vandað línurit
yfir birgðaþróun kindakjöts. Þetta
linurit nær þó alls ekki yfir það
tímabil sem bæklingurinn fjallar
um, heldur árin 1979-1983. Línurit-
ið sýnir sem sagt hvernig birgðir
kindakjöts í landinu jukust úr ríf-
lega þúsund tonnum í lok verðlags-
árs 1979 upp í um þrjú þúsund tonn
sumarið 1983. Svo undarlega vlll til
að í lok yfirstandandi verðlagsárs
eru birgðir kindakjöts áætlaðar
mun meiri, en þeirri staðreynd er af
einhverium ástæðum sleDDt í bæk-
lingnum.
Alþýðublaðið hafði í gær sam-
band við Bjarna Guðmundsson,
aðstoðarmann landbúnaðarráð-
herra, en hann er ábyrgðarmaður
bæklingsins. Bjarni sagði að bæk-
lingurinn hefði verið gefinn út í
4600 eintökum og dreift til allra
bænda á landinu, hefði bæklingur-
inn farið í póst á mánudag í síðustu
viku og því væntanlega borist
bændum fyrir páska. Aðspurður
um ástæðuna fyrir þvi að upplýs-
ingabæklingur til bænda væri lát-
inn ná yfir kjörtímabil en ekki eitt,
fimm eða tíu ár, kvað hann þá að
miklar breytingar hefðu orðið á
þessu tímabili og sennilega hefði
ekki meira breytingaskeið gengið
yfir landbúnaðinn sl. fimmtíu ár.
Hefði þótt sérstök ástæða til að
gera grein fyrir þessu, sagði Bjarni.
Hann bætti því við að ekki væri hér
um algera nýlundu að ræða af hálfu
ráðuneytisins, því „álíka dreifibréf"
hefði verið sent bændum um mark-
aðsmál kindakjötsframleiðslunnar
fyrr í vetur.
Hún Guðný I Blómavali óskaröllum landsmönnum gleðilegs sumars. Hið samagerum viðáAlþýðublaðinu um leiö
og við minnum lesendur á aö alþýðuflokksmenn munu I dag færa landsmönnum yfir 50 þús. rósir I tilefni sumars.
Hreínar, fallegar og jafnstórar
PÖKKUN OG DREIFING: ÞYKKVAB/EJARKARTÖFLUR HF, GILSBÚÐ 5, GARÐABÆ.
%