Alþýðublaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 23. apríl 1987 MEYDIIMM Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavlk Sími: 681866 Útgefandi: Blað hf. Ritstjórar: Árni Gunnarsson og Ingólfur Margeirsson Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þorvaldsson og Jón Daníelsson Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Áskriftarsíminn er 681866 Siðleysi Framsóknarflokksins Sá flokkur sem einna mest virðist verja fé til kosn- ingaáróðurs er Framsóknarflokkurinn. Allt frá því að daprar tölur um fylgi flokksins tóku að birtast, virðist öflug peningavél hafa verið sett í gang til að fjár- magna glæsiumbúðir um flokk miðstýringar og sér- hagsmuna. Menn hafavelt því fyrirsérhverborgi brús- ann. Varla getur það verið galtómur flokkskassinn. Varla getur það verið málgagnið með um 100 milljón króna skuld eftir NT—ævintýrið. Varla geta það verið bændur sem snúa æ fleiri baki við flokknum eftir að hann sneri baki við þeim. Skyldi það vera SÍS—veldið og kaupfélögin? Eitt er þó víst. Framsóknarflokkurinn lét sér ekki nægja að ganga með betlistaf til fjársterkra aðila fyrir kosningar. Hann hefur ennfremur nýtt sér aðstöðu sína sem stjórnarflokkur og misnotað ráðuneyti og stofnanir til að gefa út áróðursbæklinga fyrir Fram- sóknarflokkinn á kostnað skattgreiðenda í landinu. Dæmi um þetta siðleysi er að finna í frétt á forsíðu Alþýðublaðsins í dag þar sem segir frá vönduðum bæklingi sem landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út nokkrum dögum fyrir kosningar. Bæklingnum er dreift til allra bændaheimila í landinu. Áróðursbækl- ingur Framsóknarflokksins og Jóns Helgasonar ráð- herra heitir „Landbúnaðurinn 1983—1987, Starf og ár- angur.“ Það er skrýtin tilviljum að landbúnaðarráðu- neytið skuli gefa út bæklinginn sem spannar einmitt þetta kjörtímabil sem nú er á enda. Það er enn skrýtn- ara að ráðuneytið sendi frá sér texta í áróðursstíl á borð við: „Trygging í stað óvissu,“ „Uppbygging í stað samdráttar," „Lækkun framleiðslukostnaðar,11 „Hærra hlutfall launa,“ o.s.frv. Það er ennfremur einkennileg uppákoma að ráðuneyti skrifi í ávarpsorðum til bænda eftirfarandi skilaboð: „Þegar núverandi ríkis- stjórn var mynduð vorið 1983 horfði þunglega í mál- efnum landbúnaðarins." Síðan kemur upptalning í geislabaugastíl yfir afrek ráðuneytisins undir stjórn Jóns Helgasonar. Og textinn að sjálfsögðu í besta áróðursstíl. Það er enn undarlegra að „upplýsinga- bæklingurinn" skuli „gleyma" ýmsum staðreyndum sem eru hvorki ráðuneytinu til uppdráttar né Jóni Helgasyni ráðherra. Dæmi: Framarlega í bæklingnum er birt vandað línurit yfir birgðaþróun kindakjöts. Línuritið nær þó alls ekki yfir það tímabil sem bækl- ingurinn fjallar um, heldur árin 1979—1983. Línuritið sýnir hvernig birgðir kindakjöts í landinu jukust úr ríf- lega 1000 tonnum í lok verðlagsárs 1979 upp í um 3000 tonn sumarið 1983. Svo skemmtilega vill til að í lok yf- irstandandi verðlagsárs eru birgðir kindakjöts áætl- aðar mun meiri. En ekki orð um það i „upplýsinga- bæklingnum". Annað dæmi um siðleysi Framsóknarflokksins í kosningabaráttunni: Nýverið var borinn í hús áróðurs- bæklingur gefinn út af Húsnæðisstofnun ríkisins sem ber heitið „Nýtt lánakerfi — breyttir tímar.“ Að nafninu til er hann kynning á nýja húsnæðislánakerf- inu. í stórfróðlegri grein eftirStefán Ingólfsson verk- fræðing sem birtist í DV í gær segir: „Útgáfan er greinilega þáttur í kosningabaráttunni. í bæklingnum eru ósannindi. Upplýsingar eru falsaðar og öðrum hagrætt. Bæklingurinn er dæmi um grófa og ósvífna misnotkun á opinberum stofnunum. Það verður að fordæma þau vinnubrögð sem hér eru viðhöfð. Menn verða að gera þá lágmarkskröfu til stjórnmálaflokk- anna að þeir greiði sjálfir fyrir prentun áróðursbækl- inga sinna og gefi þá út í eigin nafni... Framsóknar- flokkurinn hefði sjálfur átt að gefa út bæklinginn. Til- gangur hans er að reka áróður fyrir nýja húsnæðis- lánakerfinu sem nú ereitt af heitustu kosningamálun- um. Eini tilgangurinn með útgáfu ritsins á þeim tíma sem það er borið í hús, er að fegra kerfið og svara gagnrýni sem beinst hefur að félagsmálaráðherra.“ Kosningabaráttarr. Jón Baldvin og Þorsteinn í návígi íkvöldverðaJónBaldvinHanni- Návígisþættirnir eru kærkomin ystumenn flokkanna að svara beint balsson, formaður Alþýðuflokks- tilbreyting í eintóna kosningabar- út gagnrýni andstæðinganna og ins og Þorsteinn Pálsson formaður áttu sem hingað til hefur fyrst og leggja þannig máflutning sinn á Sjálfstæðisflokksins í þættinum „í fremst miðast við beinar framboðs- vogarskálar fyrir kjósendur. návigi“ á Stöð tvö. Þátturinn hefst kynningar eða glansauglýsingar á Stjórnandi þáttarins í kvöld verð- klukkan 20.00 og verður í beinni út- skjánum. í þáttunum þurfa for- ur Helgi Pétursson. sendingu til klukkan 20.30. - Það verðurekkert „Elsku mammá' I kvöld þegar Jón Baldvin Hannibalsson og Þorsteinn Pálsson mæt- ast ( þættinum „í návfgi" á Stöð tvö. FAGMENNIRNIR VERSLA HJÁ OKKUR Því ad reynslan sannar aö hjá okkur er yfirleitt til mesta úrval af vörum til hita- og vatnslagna. BURSTAFELL ^yggingavöruverslun Bíldshöföa 14 sími 38840

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.