Alþýðublaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 23. apríl 1987 .9 mundsson: JKKURINN R LAUNAFÓLKS víkur var efldur. Reykjavíkurborg keypti 2 nýja glæsilega togara, Jón Baldvinsson og Otto N. Þorláksson til þess að treysta atvinnugrundvöll höfuðborgarinnar. íhaldið í Reykjavík hefur nú afhent einka- fyrirtæki þessi glæsilegu skip. — Á tímabilinu 1978-1982 var einnig hafinn undirbúningur að byggingu skipaverkstöðvar í Reykjavík til þess að ná skipaviðgerðum sem • mest inn í Iandið, auka atvinnu og spara gjaldeyri. íhaldið í Reykjavík hefur nú drepið þetta mál. Ég vil, að mál þetta sé tekið upp á alþingi. Alþýðuflokkurinn á að taka þetta mál upp á alþingi. Og það eru mikið fleiri mál Reyk- víkinga, sem Alþingi þarf að láta til sín taka. í kosningabaráttunni að undan- förnu hefur Alþýðuflokkurinn lagt höfuðáherslu á 4 mál. Þetta eru allt mikilvæg umbótamál, sem skipta miklu máli fyrir Iaunafólkið í land- inu. Málin eru þessi: 1. Einn sameiginlegur lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn. í dag eru starfandi i landinu 90—100 lífeyrissjóðir, sem veita mjög mismunandi réttindi. Sumir fá mjög góðan lífeyri að starfi loknu, aðrir fá mjög lágan lífeyri. Þetta er óþolandi misrétti. Þessu vill Alþýðuflokkurinn breyta. Hann vill jafna lífeyrisréttindin þannig, að þau verði sem jöfnust. 2. Afnám tekjuskatts af almennum launatekjum í dag er tekjuskatturinn fyrst og fremst launamannaskattur. Hinn almenni Iaunamaður rís ekki undir skattbyrðinni. Alþýðuflokkurinn vill breyta þessu. Hann vill einfalt og réttlátt skattakerfi. Alþýðu- flokkurinn vill afnema í áföngum tekjuskatt af almennum launatekj- um. 3. Umbœtur í húsnœðismálum Ástandið í húsnæðismálum er þannig í dag, að unga fólkið getur ekki byggt. Það verður að taka hús- næði á leigu með okurkjörum. Lág- launafólk getur heldur ekki byggt. Alþýðuflokkurinn vill gera eftir- farandi endurbætur á húsnæðis- málunum til þess að skapa aukið réttlæti: Byggðar verði kaupleigu- íbúðir og fleiri verkamannabústað- ir. Kaupleiguíbúðir eru góður val- kostur fyrir unga fólkið. Verka- mannabústaðir eiga að leysa hús- næðisvanda láglaunafólks, sem ekki getur keypt á frjálsum mark- aði. Alþýðuflokkurinn vill, að fólk geti valið á milli þess hvort það kaupir eignaríbúð á frjálsum mark- aði eða velur kaupleiguíbúð. Þess vegna þarf einnig að efla hið al- menna veðlánakerfi. 4. Bœtt kjör láglaunafólks Alþýðuflökkurinn vill, að kjör láglaunafólks verði bætt. Það er til skammar, að stór hópur launafólks skuli aðeins hafa 26 þúsund krónur í laun á mánuði. Enginn Iifir mann- sæmandi lífi af þeim launum. Það verður að lagfæra Iaun þessa fólks. Það á að vera forgangsverkefni. Ég tel koma til greina, að Alþingi setji lög, sem lögfesti lágmarkslaun á þann veg, að lægstu launum væri lyft verulega. Björgvin Guömundsson er6. maöur á lista Alþýðuflokksins í Reykjavík. Jón Sigurðsson EFTIR KOSNINGAR verður það fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar að stöðva skuldasöfnun ríkisins. Það kallar á heildarendurskoðun skattakerfisins og upp- rætingu skattsvika. Það kallar líka á endurskipulagningu á ríkisbúskapnum; að stöðva sóun í þágu sérhagsmuna, fá BRUÐLIÐ BURT. Þá væri traustvekjandi að hafa JÓN SIGURÐSSON við stóra borðið í stjórnarráðinu með tilbúna verklýs- ingu að heildarendurskoðun skattakerfisins. Þess vegna er það mikilvægt að JÓN SIGURÐSSON og ALÞÝÐUFLOKKURINN hafi sterka aðstöðu á Alþingi. Það er rétta leiðin til að tryggja starfhæfa ríkisstjórn — ÁBYRGA STJÓRN í ANDA JAFNRÉTTIS - EFTIR KOSNINGAR.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.