Alþýðublaðið - 23.04.1987, Qupperneq 4
4
Fimmtudagur 23. apríl 1987
Örn Eiðsson:
Pólitískt slys ef Jón
Baldvin nær ekki kiöri
Brátt rennur stóra stundin upp.
Kosningar til Alþingis fara fram
næstkomandi laugardag 25. apríl.
Óvenju miklu moldviðri hefur
verið þyrlað upp um einstaka
flokka og frambjóðendur undan-
farna daga og vikur. Því miður hef-
ur málefnaleg umræða orðið að
lúta í lægra haldi fyrir alls kyns
gróusögum og upphlaupum um
einstaka stjórnmálamenn.
Einn af þeim stjórnmálamönn-
um, sem orðið hefur skotspónn
slíkra hvimleiðra aðferða, er Jón
Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins. Stjórnmál eiga
að njóta virðingar og stjórnmála-
foringi eins og Jón Baldvin, sem
sannað hefur ágæti sitt, sem hug-
Örn Eiðsson.
myndaríkur og velviljaður jafnað-
armaður má ekki hverfa af Alþingi
íslendinga.
„Það vœri mikill skaði ef einn hœfasti
stjórnmálamaður okkar fengi ekki tœki-
fœri til að láta gott af sér leiða á lög-
gjafarsamkomunni nœstu fjögur árin.“
Því er þó ekki hægt að neita, að
hugsanlegt er, að Jón Baldvin nái
ekki kjöri á Alþingi íslendinga
næsta kjörtímabil. Það væri mikill
skaði, ef einn hæfasti stjórnmála-
maður okkar nú fengi ekki tæki-
færi til að láta gott af sér leiða á lög-
gjafarsamkomunni næstu fjögur
árin.
Jafnaðarmenn í öllum flokkum,
sláið skjaldborg um foringja ís-
lenskra jafnaðarmanna, Jón Bald-
vin Hannibalsson og tryggið glæsi-
lega kosningu hans 25. apríl.
iÉ&iÉralÉ
Benidorm sumaráætlunin 1987 er komin. Pantaðu tímanlega því s.l.
sumar komust færri með en vildu á Hvítu ströndina á Spáni. Benidorm
býður upp á góða gistingu, frábæra matsölu og skemmtistaði. Aðstaða
til íþróttaiðkunar er einstök, skemmtigarðar og tívolí af bestu gerð.
Auðvitað er líka hægt að njóta lífsins í ró og næði á ströndinni og fcira
í skoðunarferðir um nágrennið með fararstjórum Ferðamiðstöðvar-
innar. Benidorm er einn sólríkasti staðurmn á suðurströnd Spánar,
það mælast 306 sólardagar á ári. Sérstakur afsláttur
29. april — 4 vikur — Verð frá 27.200.- fyrir 60 ára og eldri
Pantaðu strax, dagsetningarnar á brottfarardögunum eru hér í auglýs
ingunni. Við lánum þér myndband um Benidorm endurgjaldslaust.
CCHÍXOÍ
1MIOSTÖÐIN
APRÍL 15 APRÍL 29 MAÍ 26 JÚNÍ 2 JÚNÍ 16 JÚNÍ 23 JÚLÍ JÚI 7 í A JÚLÍ gj 428|
' ÁGÚST 4 ÁGÚST 18 ÁGÚST 25 SEPTEMBER 8 SEPTEMBER 15 SEPTEMBER 29 OKTÓBER OKTÓ 6 2 BER OKTÓBER jg 027"