Alþýðublaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 23. apríl 1987
5
Minningarorð
Frú Sigurjóna Jóhannesdóttir
F. 28.05.1916 — D. 15.04.1987
Hinn 15. apríl sl. lézt frú Sigur-
jóna Jóhannesdóttir eftir langvar-
andi veikindi. Á morgun, föstudag,
verður lík hennar jarðsett að lok-
inni útfararathöfn í Dómkirkjunni í
Reykjavík. Með henni er gengin
góð og grandvör kona, sem innti
lífsstarf sitt af hendi eins og bezt
varð á kosið og gengur nú til móts
við það vor og sumar nýs lífs, sem
við trúum að bíði okkar handan
móðunnar miklu.
Frú Sigurjóna fæddist að Laxa-
mýri í Suður-Þingeyjarsýslu hinn
28. maí 1916. Aðeins 6 ára gömul
fór hún i fóstur til frænku sinnar,
frú Snjólaugar Árnadóttur og
manns hennar, Gunnlaugs Stefáns-
sonar, kaupmanns í Hafnarfirði.
Þar ólst hún upp allt til 17 ára ald-
urs, að hún fluttist til Reykjavíkur.
Uppvaxtarárin á hinu merka og
þjóðkunna heimili fósturforeldra
hennar hafa áreiðanlega verið eitt-
hvert bezta veganesti, sem henni gat
hlotnast í lífinu til viðbótar því
góða atgervi, sem hún hlaut í
vöggugjöf. Þar ólst hún upp
sem eitt barn í systkinahóp og
ætiö síðan voru þau tengd þeim
sterku tilfinningaböndum, sem ein-
kenna góð systkin. Það var henni
mikill styrkur í lífinu og fyrir það
var hún þakklát.
Frú Sigurjóna giftist Baldri Guð-
mundssyni árið 1943. Þau eignuð-
ust saman fjögur börn, þar af kom-
ust þrjú til fullorðinsára. Elztur
þeirra er Gunnlaugur, arkitekt í
Köln í Vestur-Þýzkalandi. Næst
honum að aldri er Guðbjörg Þór-
dís, snyrtifræðingur í Reykjavík og
yngst er Jóna Margrét, sjúkraliði.
Allt er þetta hið bezta fólk, sem hef-
ur með fullum sóma gegnt hlut-
verkum sínum í lifinu.
Framan af ævi sinni hafði vinur
minn. Baldur Guðmundsson,
margvísleg kaupsýslustörf með
höndum. Hann tók síðan við starfi
framkvæmdastjóra Alþýðuflokks-
ins og gegndi því um margra ára
skeið við hinar erfiðustu aðstæður.
Ég efast ekki um, að þeir erfiðleikar
hafi oftsinnis komið niður á heimili
hans, ekki sízt konunni góðu, sem
kvödd er í dag. En hún var honum
stoð og stytta alla tíð og til viðbótar
naut hann ætíð þeirrar eindrægni
og samheldni, sem jafnan ein-
kenndi fjölskyldulífið. Síðustu ár
sín var Baldur sárþjáður af þeim
veikindum, sem síðan lögðu hann
að velli. Þótt frú Sigurjóna gengi þá
heldur ekki heil til skógar veitti hún
honum allan sinn stuðning, meðan
hún mátti. Þannig stóðu þau saman
þar til yfir lauk.
Þegar ég mæli nú eftir þessa
látnu öðlingskonu er það gert með
virðingu og þökk fyrir allt hennar
góða lífsstarf. Þegar þessi góðu
hjón eru nú bæði gengin er fullvíst,
að minning þeirra mun lengi lifa
meðal okkar, sem áttum þau að vin-
um og félögum í þeirri löngu bar-
áttu, sem hreyfing okkar hefur þeg-
ar háð fyrir betra og bjartara mann-
Iífi á íslandi. Börnum þeirra votta
ég samúð mína við andlát frú Sigur-
jónu; hún gaf þeim allt, sem hún
átti og þess munu þau og niðjar
þeirra alla tíð njóta.
Sigurður E. Guðmundsson
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd bygg-
ingardeildar borgarverkfræöings óskar eftir tilboðum i
byggingu Vesturbæjarskóla, og skal verkinu skilað full-
búnu, en án lausabúnaðar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavik gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin
verðaopnuðásamastaðþriðjudaginn 19. maí n.k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik
NORÐURLANDARÁÐ
ISLANDSDEILD
Norðurlandaráð auglýsir
skrifstofustarf laust til
umsóknar
Skrifstofa forsætisnefndar Norðurlandaráðs i Stokk-
hólmi auglýsir skrifstofustarf laust til umsóknar.
Starfið felst í móttöku á skrifstofunni, simavörslu, um-
sjón með farmiða- og hótelpöntunum og aðstoð við
skjalavörslu, gagnaöflun og ýmsar athuganir, en starfs-
skyldurnar geta breyst.
Umsækjendur skulu hafa reynslu af ritvinnslu. Starf
þetta er tilbreytingaríkt og nokkuð sjálfstætt.
Umsækjendur skulu hafa gott vald á (slensku og einu
öðru Norðurlandamáli og frekari málakunnátta er
æskileg.
Ráöningarsamningureriupphafi gerðurtil fjögurraára
en unnt er i vissum tilvikum að framlengja hann.
Rikisstarfsmenn á Norðurlöndum eiga rétt á leyfi frá
störfum vegna starfa við skrifstofu Noröurlandaráðs.
Föst laun eru um 8.500 sænskar krónur á mánuði auk
uppbótar, sem er 3.400 sænskar krónur fyrir þá sem
flytjast til Sviþjóðar vegna starfsins og 1.800 sænskar
krónur fyrir þá sem þar eru búsettir. Kostnaður af bú-
ferlaflutningi greiðist af Noröurlandaráði.
Starf þetta er einungis auglýst á íslandi.
Eftirtaldir aðilar veita nánari upplýsingar um stööuna:
Áke Pettersson aðstoðarframkvæmdastjóri skrifstofu
forsætisnefndar Norðurlandaráðs í síma 9046-8-
143420, Snjólaug Ólafsdóttir ritari íslandsdeildar Norð-
urlandaráðs í simaAlþingis 11560.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar Noröur-
landaráðs (Nordiska rádets presidium) og skulu þær s
hafa borist til skrifstofu forsætisnefndar (Nordiska
rádets presidiesekretariat, Box 19506, S-10432 Stock-
holm) eigi siðar en 11. maí n.k.