Alþýðublaðið - 27.06.1987, Qupperneq 4
4
Laugardagur 27, júní 1987
Eru ferðamenn erkisóðar?
wm
Island er einn stór ösku-
haugur eftir hvert ferða-
mannasumar. Fegurstu
staðir landsins ataðir
rusli. Einnota umbúðir
bœtast nú við það sem
fyrir var. Áhyggjuefni
fyrir Náttúruverndarráð
og Samtökin Landvernd.
Fullorðið fólk síst betra
en unglingarnir. Engin
lög til í landinu sem
kveða á um gerð
umbúða.
Nú þegar ferðamanna-
straumurinn er í há-
marki, er ekki úr vegi að
reyna að átta sig á hvern-
ig ferðafólk, — íslend-
ingar og aðrir ganga um
landið sem þeir ferðast
um og eyða margir sum-
arfríinu sínu á sér til
ánœgju og yndisauka ef
að líkum lœtur.
Alþýðublaðið hafðiþví
samband við nokkra að-
ila sem hafa með að gera
hreinsun og umsjón með
mörgum fegurstu og vin-
sœlustu ferðamannastöð-
unum og spurði álits á
því í hvers konar ástandi
umgengnismál og snyrti-
mennska ferðafólksins
vœri. Verður að segjast
eins og er að þœr upplýs-
ingar sem við fengum
voru ekki uppörvandi.
Engin lög til um umbúðir
Einn aðili sem talað var við sagði
að full ástæða væri að hafa miklar
áhyggjur af þeim nýju einnota ál-
dósum utan um gosdrykki sem nú
væru komnar á markaðinn. Nú
þegar væri mikið af dósum þessum
úti á víðavangi, meðfram þjóðveg-
um og reyndar hvert sem litið væri.
Mjög afleitt væri einnig að ekki
væru til nein lög í landinu sem
kvæðu á um umbúðir, nema því að-
eins að þær mættu ekki vera heilsu-
spillandi. En hvort þær hlæðust
upp út um landið og yrðu þjóðinni
til ævarandi hneysu, — slíkt létu
menn sér í léttu rúmi liggja. íslend-
ingar væru að taka i notkun þessar
umbúðir á sama tíma og aðrar
þjóðir væru að reyna að losa sig við
þær.
í sambandi við þessar einnota ál-
umbúðir utan um gosdrykki, sagð-
ist viðmælandi blaðsins vera þess
fullviss að ástandið yrði afar slæmt
eftir þetta sumarið. Allt væri sem
benti til þess. Sem einkennandi
dæmi sagði viðmælandi blaðsins
eftirfarandi sögu:
Texti:
' Örn
Bjarnason