Alþýðublaðið - 31.10.1987, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 31.10.1987, Blaðsíða 5
Laugardagur 31. október 1987 5 SKOTMA RKIÐ Viðtal: Kristján Þorvaldsson Sveinn Björnsson r- r forseti Iþróttasambands Islands: „ÉG HEF ENGA BITLINGA AD SÆKJA'' I fjárlagafrumvarpinu eru framlög til íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar skorin niður um 10 milljónir króna. Fjár- málaráðherra segir að þetta komi ekki að sök vegna þess að íþróttahreyfingunni hafi áskotnast heil gullnáma með Lottóinu. Þessum ráðagerðum ög sjónarmiðum hafa forsvarsmenn og nýir og gamlir velunnarar hreyfingarinnar harðlega mótmœlt. Sveinn Björnsson forseti íþróttasambands íslands er í Skotmarkinu og svarar ýmsum áleitnum spurningum um starf stefnu og fjármála- pólitík íþróttahreyfingarinnar. „Vandamál unglinga væru mi klu minni en þau eru i dag.“ — Þið hljótið að vaða i peningum? „Nei. Það er síður en svo. Árið 1986 kostaði 532 milljón- ir króna að reka íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna og á þessu ári mun þaö kosta a.m.k. 700 milljónir. Á næsta ári má gera ráð fyrir að það kosti um 900 milljónir króna. Á fjárlögum Alþingis fyrir það ár sem er framund- an er reiknað með að íþrótta- sambandið fái 14.380 þús- und krónur og að Ungmenna- félag íslands fái 2,3 milljónir króna. Stuðningur ríkisins er því 1,86% af heildarkostnaði við rekstur íþróttahreyfingar- innar á árinu 1988.“ — Er það ekki úrúrsnún- ingur, að gleyma Lottóinu i þessari umfjöllun? Ef við leggjum framlag ríkisins saman við þann hagnað sem þið hafið haft af Lottóinuá einu ári, þá hafió pið yfir 100 milljónum króna úr að spila? „Lottóiö hefur hjálpað okk- ur gifurlega mikið, en iþrótta- hreyfingin hefurverið f fjár- svelti á undanförnum árum. Það hefur veriö talað um það [ gegnum árin að rikisvaldið styðji íþróttahreyfinguna um 30%, sveitarfélögin einnig um 30% og að íþrótta- og ungmennafélagshreyfingin sjálf standi að 40%. Auðvitað hjálpar Lottóið okkur mikið, en það er þó ekki nema 12—15% af rekstrarkostnaði næsta árs sem við fáum það- an. Hitt þarf íþróttahreyfing- in sjálf að afla, í gegnum sveitarstjórnir, með frjálsum framlögum, innkomu af mót- um og öðrum rekstri.“ — En til hvers ætlist þið eiginlega af ríkinu. Fáið þið nokkurn tímann nóg? „Við ætlumst til þess að ríkisvaldið standi á bak við hreyfinguna. Það er engin önnur hreyfing (landinu sem vinnur jafn mikið að æsku- lýðsmálum." — Getið þið ætlast til þess að fá meiri peninga frá ríkinu á sama tima og verið er að skera niður framlög til ymissa annarra þjóðþrifamála? „Það er ekki verið að skera niður fjármagn til allra. Mér sýnist nú opinberi geirinn fá sinn skammt af fjárlögunum. Ýmsar opinberar stofnanir fá riflegar hækkanir, jafnvel tug- prósenta, á sama tíma og skorið er niður til íþrótta- hreyfingarinnar." — Því er m.a. haldið fram að iþróttahreyfingin sé orðin gamaldags. Hún er að margra mati ekki sami segull og hún var fyrir ungt fólk, á tímum harðnandi samkeppni um frítima fólks. Er þetta ekki rétt? „Þetta er engan veginn rétt, einaldlega vegna þess að iðkendur í dag eru 100 þúsund manns og aukningin hefur verið stöðug frá ári til árs. Það er ennþá mikil ásókn um að komast inn I Iþrótta- hreyfinguna. Sannleikurinn er hins vegar sá að viö getum þvi miður ekki tekið við öllum sem vilja koma og viö vildum taka á móti. En við stefnum að því að helmingur þjóðar- innar, a.m.k., verði virkur þátt- takandi i íþróttalífinu.“ — Það kostar ekkert að trimma og vilji menn gera meira geta menn notfært sér þjónustu óríkisstyrktra líkamsræktarstöðva. Þessi al- menna íþróttaiðkun virðist vera utan við ykkar starfsemi og virðist nægja mörgum? „Árið 1970 hófum við bar- áttu fyrir almenningsíþrótt- um, öðru nafni trimm. Við teljum að bæði íþrótta- og ungmennafélagshreyfingin hafi unniö gífurlegt starf í þvf að fá fólk til þess að taka þátt i almennri líkamsræktar- starfsemi. Auðvitað er það þakkarvert að fólk skuli vilja fara í líkamsræktarstöðvar og annað. Við erum lika mjög þakklátir fyrir það, einfald- lega vegna þess að við telj- um að það sé ekki endilega íþróttahreyfingin ein sem eigi að vinna að þessum málum." — Þú varst aö koma af fundi hjá fjárveitingarnefnd Alþingis. Er ekki niðurlægj- andi og óþarfi að ganga betl- andi eftir almannafé? „Nei þetta er hvorki niður- lægjandi né óþarfi. Þegar við tölum um að reksturinn kosti um 900 milljónir á næsta ári þá teljum við mjög skynsam- legt af ríkinu að standa á bak við okkur. Hvað kosta t.d. vandamálin i þjóðfélaginu? Hvað kostar að reka eitt upp- tökuheimili? Ef íþróttahreyf- ingin hefði meira fjármagn til þess að veita i íþrótta- og æskulýðsstarf, þá erum við t.d. sannfærð um að þessi vandamál unglinga væru miklu minni en þau eru i dag.“ — Nú segja menn stund- um að þið viljið byggja og byggja og láta síðan ríkið um reksturinn. Er ekki eðlilegt á tímum samdráttar að rikið reyni aö sporna gegn þess- um sjálfvirku útgjöldum? „Þetta er algjör misskiln- ingur. íþróttahreyfingin greið- ir gjald fyrir tímana í íþrótta- húsunum um land allt. Hún greiðir því gjald fyrir þaö að vera þátttakandi i uppbygg- ingu iþróttamannvirkja. I gegnum árin hafa íþrótta- mannvirki verið númer eitt á listanum þegar sveitarstjórnir koma á fund fjárveitinga- valdsins. Það er ennfremur algjör misskilningur sem stendur í leiðara Alþýðu- blaðsins fyrr í þessari viku að íþróttamannvirki standi auð um land allt. — Það er alveg sama hvað það er byggt mik- ið af íþróttamannvirkjum, þau eru alltaf yfirfull." — Þið segist nánast hanga á horrimmi og biðjið um meiri peninga frá rikinu. Hvernig stendur á því, að á sama tíma, getur Handknatt- leikssambandið fengið ein- staklinga og fyrirtæki til að styðja sig á veglegan hátt? „Sem betur fer eru mjög velviljaðir einstaklingar og fyrirtæki sem geta stutt íþróttahreyfinguna. Hreyfing- in væri heldur ekki það sem hún er nema þess vegna. Þjóðfélagið vill líka að íþróttamenn standi sig vel á erlendri grund. — Tökum eitt dæmi sem óbeint tengist íþróttahreyfingunni: Þjóðfé- lagið hælir sér af því, að hér fór fram leiðtogafundur stór- veldanna. En hvernig stendur á því að þessi fundur fór ein- mitt fram hér? Það er bara ein ástæða að minu viti. Sú að íslendingar tóku þár* i Ólympíuleikunum iMoskvu 1980. Ef við hefðum hunsað leikana eins og margir vildu, þé hefði enginn leiðtogafundur verið hér.“ — Sverrir Hermannsson fyrrverandi menntamálaráð- herra bað þig um að vera for- mann byggingarnefndar íþróttamiðstöðvar á Lauga- vatni. Eftir að þú lýstir yfir stuðningi við Borgaraflokk- inn virðist þú að hans mati ekki lengur hæfur til þess að gegna því starfi, eins og sagt hefur verið frá í Alþýðublað- inu. Hvers vegna hefurðu ekki mótmælt þessu? „Menntamálaráðherra sagði aldrei að ég væri ekki hæfur, heldurværi ekki sam- staða innan hans eigin flokks um að skipa mig formann þessarar nefndar. Mér er ekki kalt til eins eða neins vegna þessa, einfaldlega vegna þess að varaforseti ÍSI stýrir þessari nefnd og hún er því nátengd íþróttahreyfingunni. Þetta er í góðra manna hönd- um og ég hef ágætt sam- band við fyrrverandi mennta- málaráðherra." — Er ekki alvarlegt mál að íþróttahreyfingin skuli vera misnotuð í pólitiskum til- gangi, að settar skuli upp kosningavélar innan íþrótta- félaganna til að vinna i þágu einstakra stjórnmálamanna? „Ég tel það ekki vera. Þó ég sé t. d. forseti íþróttasam- bandsins þá á ég mitt einka- líf.“ — Það er sem sagt ekki alvarlegt mál að þinu viti að iþróttahreyfingin skuli vera virkjuð í þágu stjórnmála- manna? „íþróttahreyfingin er svo stór og sterk, að þar eru menn úröllum stjórnmála- flokkum. Það er þvi ekkert verið að fylgjast með þvi hvaða pólitfskum flokkum menn tilheyra." — Það er stundum talað um klikustarfsemi innan ykk- ar raða, og að menn sækist eftir störfum vegna bitlinga. Kannastu við þetta? „Ég þekki það ekki. Starf forseta er t.d. ólaunað og svo er um fiest störf hjá sam- bandinu. Ég sit t.d. í tveimur nefndum ávegum rikisins, í íþróttanefnd og f stjórn fé- lagsheimilasjóðs. Þau nefnd- arstörf eru bæði ólaunuð þannig að ég hef ekki neina bitlinga að sækja til eins eða neins."

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.