Alþýðublaðið - 31.10.1987, Blaðsíða 18
18
Laugardagur 31. október 1987
ÍÞRÓTTIR
Umsjón:
Halldór Halldórsson
GÓLF:
ULFAR
M
I
JÓNSSON BYRJAR
BANDARÍKJUNUM
Úlfar Jónsson er þaö nafn
sem ber hæst í gólfiþróttinni
á íslandi um þessar mundir.
Hann sigraði meö miklum yf-
irburðum á íslandsmótinu
sem fram fór á Akureyri í
sumar og er það mál manna,
sem til þekkja að hann sé
eitt mesta efni í stórleikara
sem komið hefur fram á ís-
landi.
Afrek Úlfars hafa náð út
fyrir landsteinana þvi á
Evrópumóti unglinga i Aber-
deen i fyrra, sem kennt er við
hinn fræga golfleikara Dog
Sanders, lenti hann i öðru
sæti en leiddi eftir fyrsta
dag, fór þá hringinn á 66
höggum, en Kinks Links völl-
urinn i Aberdeen er par 71.
í miðri þeirri keppni kom
Dog Sanders til Úlfars og
bauð honum til skólavistar í
Houston Bablist University.
Aö áliti hans vakti Úlfar
mesta athygli allra keppenda.
Drengurinn sló til og hélt út
til Bandaríkjanna nokkru eftir
íslandsmótið og hefur dvalið
þar í góðu yfirlæti síðan, en
boðið hljóðar upp á 3-4 ára
nám, og nemur Úlfar mark-
aðsfræði.
Þetta er mikill heiður fyrir
hinn 19 ára ungling og gullið
tækifæri fyrir hann til að ná
langt í þessari erfiðu íþrótt,
en Ulfar á sér markmið en
þaö er að verða atvinnumað-
ur í greininni. Vonandi tekst
honum að ná því takmarki
sem alla góða golfleikara
dreymir um, en fáir útvaldir
ná.
Úlfar hefur allt til að bera
sem prýðir góðan golfleikara,
skapgerð og skilning á leikn-
um samfara einbeitingu við
það sem hann er að kljást við
hverju sinni. Rólyndi og prúð-
mennska hefur ekki hvað síst
prý'tt þennan unga snilling.
Uifar er Hafnfirðingur og
félagi i Golfklúbbi Keilis. For-
eldrar hans, hjónin Ragnhild-
ur Jónsdóttir og Jón Hall-
dórsson hafa bæði stundaö
mikið golf um dagana og
kynntist Úlfar þvl snemma
Iþróttinni. Til marks um þaö
má nefna að 12 ára var hann
þegar oröinn meistaraflokks-
maöur með 10 I forgjöf.
Alþýöublaöiö aflaöi sér
frétta af Úlfari ytra, meö
góðri aðstoö foreldra hans.
Hann hafði þetta helst aö
segja:
Líkar vel
„Það eru glfurleg viöbrigöi
hér frá því sem er heima.
Fyrstu vikurnar voru miklir
hitar, um og yfir 40 stig, en
hefur hrapað niöur I 25-30
stig og er þaö miklu þolan-
legra, annars venst þetta.
Annars verður maður aö
byrja eiginlega upp á nýtt
vegna þess hvaö vellirnir eru
ofsalega haröir. Höggin hafa
gengið ágætlega en vanda-
máliö eru flatirnar. Þær eru
mjög harðar og breytilegar
grastegundir á hinum ýmsu
völlum. Þetta veldur vissum
erfiöleikum, en ætti að vera
auðvelt að yfirvinna meö tlm-
anum, ekki slst fyrir það að
þjálfarinn sem er hreint frá-
bær er með okkur alla daga
úti á velli sem er steinsnar
frá skólanum.
Komst strax í liðið
Þaö hafa veriö tvö æfinga-
mót til þessa og komst ég
strax I skólaliðið. Ég komst
inn vegna þess að bandarísk-
ur strákur sem hafði slegið
slöku við námið varð að víkja.
Skólaliðið er skipað 6 leik-
mönnum og er ég yngsti leik-
maður Houston skólans.
Fyrra æfingamótið var I
Louisiana-fylki og voru 12
þátttökulið. Ég hafnaði um
miðju lék á 75, 78 og 73
höggum (par 72), en þaö eru
alltaf leiknir 3 hringir. Ég er
tiltölulega ánægður með þá
frammistööu I minni fyrstu
keppni.
I byrjun október tókum við
svo þátt I 24 liða móti í Los
Angeles og varð liðið I 6.
sæti. Ég lenti I svolitlum erf-
iðleikum þarna vegna þess
hversu brautirnar voru þröng-
ar, lék á 76, 81 og 78 höggum
(par 72). í báðum þessum
mótum varð ég i 4. sæti í
mínu liði, og er ég mjög
ánægður með það á þessu
stigi, og aö öllum llkindum
búinn að vinna mér fast sæti
I liðinu. Næsta æfingamót
verður I Austin I Texas.
Bandaríska skólakeppnin
hefst slðan I janúar og stend-
ur fram I maí. Á slðasta
keppnisári var Houston Bab|-
ist Úniversity meðal 20
bestu.
Þetta á að skila sér
Það er ekki nokkur vafi á
þvi að dvöl min hér skilar
bættum árangri. Ég býst við
að framfarirnar komi hægt og
slgandi. Ég er ekkert óþolin-
móður. Maður bara reynir að
gera sitt besta hverju sinni,
öðru vfsi hefst það ekki.
Þetta er bara rétt að byrja og
ég er fullur bjartsýni."
Úlfar getur svo sannarlega
verið bjartsýnn á framhaldið.
Að vinna sér fast sæti I
skólaliðinu og ájafn stuttum
tlma er ótrúlegur árangur,
sem aöeins er á færi þeirra
hörðustu, þvl samkeppnin I
liöið er mjög hörð að sögn
hans.
Alþýöublaöiö mun fylgjast
náiö með framvindu mála er
fram llða stundir og óskar
honum velfarnaðar bæði við
námið og I gólf fþróttinni.
ÞANNIG LÍTUR SVEIFLAN ÚT HJÁ ÚLFARI
Þessi myndaseria var tekin af Úlfari JÓnssyni úti á gólfvelli Keilis skömmu fyrir Bandarikjaferóina. Hann er hér að slá
inn á flöt. Færiö var um 100 metrarog viti menn kúlan hafnaöi sirka metra frá holu. „Gólfiö er Ieikiö90% með höföinu,"
sagði Ulfar um leiö og hann rölti í átt að flötinni. „Þaö kemur margt til greina i þvi sarnbandi — til dæmis þarf einbeiting-
in að vera góð. Hafi illa tekist til í brautinni á undan, er þaö best gleymt og grafið — en beita huganum pð því sem á
aö gera hverju sinni."