Alþýðublaðið - 31.10.1987, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 31.10.1987, Blaðsíða 9
Laugardagur 31. október 1987 9 FRÉTTASKÝRING r Ingólfur Margeirsson skrifar „Eru ágreiningsmál stjórnarflokkanna það alvarlegs eðlis, að ríkisstjórnin springi? “ spyr Ingólfur Margeirsson í fréttaskýringu sinni og leitar jafnframt svara við þeirri spurningu. ER STJÓRNIN AÐ SPRINGA? Springur stjórnin? Þessari spurningu hefur oft verið kastað fram manna á meðal og í fjölmiðlum að undan- förnu. Ástæðan er ágreiningur innan ríkis- stjórnarflokkanna um ýmis mál sem lögð hafa verið fram sem frum- vörp á Alþingi og deilur um einstök atriði í fjár- lagafrumvarpinu. Er ríkisstjórnin að liðast í sundur vegna húsnœðis- málanna, skattamál- anna, utanríkismálanna og annarra mála sem þingmenn stjórnar- flokkanna deilir á um? Ríkisstjórnin er mjög sterk á Alþingi. Samanlagt hafa Sjálfstæðisflokkur, Fram- sóknarflokkur og Alþýðu- flokkur 41 þingmann. Kannski er réttara að segja 40 þvi Karvel Pálmason, Al- þýðuflokki, hefur lýst því yfir að stuðningur hans við ríkis- stjórnina sé bundinn fyrir- vara. I stjórnarandstöðu eru 22 þingmenn, þar með talinn Stefán Valgeirsson. í stjórnarsáttmála er stefna ríkisstjórnarinnar skilgreind, bæði markmið og leiðir. Hvers vegna er skyndilega komin upp úlfúð um einstök málefni og hversu alvarlegur er sá ágreiningur? Það mál sem borið hefur hæst að undanförnu er húsnæðis- frumvarp Jóhönnu Sigurðar- dóttur. Frumvarpið sem er breyting á lögum um Hús- næðisstofnun rikisins kveður einkum á um að tryggja betur en nú forgang þeirra til lána sem í brýnni þörf eru fyrir lánafyrirgreiðslu vegna kaupa á ibúðarhúsnæði. Það kveður ennfremur á að rikisstjórn- inni sé heimilt að ákvaröa mismunandi vexti innan hvers lánaflokks eða að stjórninni sé heimilt að end- urgreiða vexti eftir nánari reglum í reglugerð. Ómálefnaleg gagnrýni Frumvarp Jóhönnu hefur fengið mjög ómálefnalega gagnrýni i þingsölum. Köpur- yrði hafa flogið, frumvarpinu hefur verið fundið flest til foráttu hjá andstæðingum þess, en rökin hafa verið lítil sem engin. Það er athyglis- vert að margir stjórnarliðar hafa mælt gegn því, eins og GuðmundurG. Þórarinsson og Páll Pétursson hjá Fram- sókn og þingmenn ( Sjálf- stæðisflokki, t.d. Halldór Blöndal hafa snúist gegn frumvarpinu. Sama er upp á teningum þegar söluskattur á matvæli hefurverið til umræðu. Sumir þingmenn stjórnarflokkanna hafa mælt gegn fyrirhugaðri ætlan ríkisstjórnarinnar að leggja söluskatt á öll mat- væli. Ennfremur er það at- hyglisvert aö ráðherrar koma í bakið hver á öðrum eins og tilraun Steingríms Hermanns- sonar að slá sig til riddara á kostnað fjármálaráðherra eft- ir að ríkisstjórnin hafði ákveöið 10 milljón kr. minna framlag til ÍSÍ þar sem tekjur íþróttasambandsins af lottói á síðasta ári eru margfaldar á viö framlag rfkisins. Stein- grímur kom fram í fjölmiðlum og sagðist mótfallinn slíkum niðurskurði til íþróttamála og bar fyrir sig að hann hefði verið erlendis þegar málið var afgreitt í ríkisstjórn. Svona pólitík hefur verið köll- uð populismi en það er önn- ur saga. Þótt einstakir þingmenn ríkisstjórnarinnar láti ófrið- lega í þessum málum og öðrum og ágreiningur virðist ríkja innan ríkisstjórnarinnar um einstök mál, þá er langt frá þvi að líf hennar sé ( hættu. Gamall góður siður ríkisstjórna er aö viðra ágreining á ríkisstjórnarfund- um, komast síðan að sam- komulagi og standa síðan saman út á við. Vissulega er það alvanalegt að einstakir þingmenn samþykki ráðstaf- anir ríkisstjórnarinnar með fyrirvara á þingflokksfundum og geti mælt gegn einstök- um málum á Alþingi. Hins vegar er það afleitt fyrir ríkis- stjórn að ráðherrar hennar koma ( bakiö á samráðherr- um sinum opinberlega eftir að samkomulag hefur náðst á rlkisstjórnarfundum, eins og nokkur dæmi hafa verið um nýverið. Það er einnig bagalegt ef einstakir ráðherr- ar eru bornir ófurliði ( þing- flokkum sínum og verða að heykjast á fyrri ákvörðunum sínum á ríkisstjórnarfundum. Sjálfstœðismenn sakna vandarins Burtséð frá dægurmálun- um; hvaða aðrar hættur steðja að rfkisstjórninni? Ef litið er á einstaka flokka rík- isstjórnarinnar, þá blasa inn- anflokksátök Sjálfstæðis- flokksins fyrst við. Eftir klofn- inginn ( vor ásamt stofnun Borgaraflokks, hefur almenni- leg kyrrð ekki komist á ( þingflokk Sjálfstæðisflokks- ins. Hann gengur einfaldlega ekki í takt. Þorsteinn Pálsson hefur ekki ráð að beygja þingflokkinn til hlýðni, sér- staklega þegar ráðherrar flokksins voru skipaðir og það setti hann í mjög erfiða stöðu. Sem forsætisráðherra iandsins hefur hann fyrst og fremst það hlutskipti að halda ríkisstjórninni saman, og það er erfitt ef hann fær ekki frið til að sinna skyldu- verkum vegna upphlaupa ( þingflokknum. En nú virðist vera að fær- ast meiri friður yfir þingflokk inn og Þorsteinn hefur óneit- anlega vaxið ( embætti. Von- andi vinnur tíminn með hon- um. En engu að síður getur pólitískt getuleysi Sjálfstæð- isflokksins orðið ríkisstjórn- inni skeinuhætt. Á móti má segja að það ríki afar sterk hefð fyrir ráðríkum foringja í Sjálfstæðisflokknum. Þess vegna þarf Þorsteinn ekki að manna sig upp svo ýkja mik- ið til að ná valdi á flokknum. Það sýndi sig best þegar hann kom úr hinni frægu Parísarferð og stöðvaði laga- setningu um kjör sjómanna. Þá færðist hið gamla masók- istíska sælubros yfir andlit Sjálfstæðismanna. Þeir sakna greinilega vandarins og það er spurning hvort að Þorsteinn ætti ekki að grtpa til vandarhögganna oftar. Steingrímur nýtir sér tómarúm Framsóknarflokkur er og verður óútreiknanlegur flokk- ur. Hann er gamalreyndur í hinni pólitfsku refskák og hefurekki fylgt pólitlskri þró un eftir eins og bæði Sjált- stæðisflokkur og Alþýðu- flokkur. Framsóknarflokknum er geysilega annt um völd sin og lætur þau ekki svo auð- veldlega af hendi. Hinar gömlu leikfléttur og brellur eru einnig meira hafðar frammi en hjá hinum flokk- unum. Sem dæmi er áber- andi hvernig Steingrlmur Her- mannsson hefur siglt inn ! tómarúmið sem skapast hef- ur kringum Þorstein Pálsson. Þar með hefur Steingrlmi tek- ist að halda ímynd sinni sem forsætisráðherra vakandi meðal þjóðarinnar. Fram- koma hans í fjölmiðlum er mjög úthugsuð og hefur yfir sér landsföðurlegt yfirbragð. Þessa tækni nýtti hann til fulls á Alþingi þegar forsæt- isráðherra flutti stefnuræðu sína. Steingrímur flutti ræðu sína skömmu síðar i beinni útsendingu Ríkissjónvarps- ins og flutti þar reyndar aðra stefnuræðu að efni og inni- haldi. Steingrímur hefur einn- ig verið duglegur viö að spila á einstök mál sem komið hafa upp f þjóðfélaginu. Hann fékk mörg prik fyrir hvalamálið, t.d. með því að mæta ekki á fundinn í Ottawa og veifa varnarsamn- ingnum framan í Bandaríkja- menn. Hann hefur ennfremur breytt áherslum í utanríkis- málum, og lagt meiri alúð viö heimsfriðinn með kröfu um bann við kjarnorkuvopnum. Önnur mál eins og Iþrótta- málið hafa einnig aflað hon- um skyndifylgis. Að haga seglum eftir vindi í raun og veru er þetta póli- tlk Framsóknarflokksins í hnotskurn. Flokkurinn slær í og úr til skiptis I ýmsum mál- um og er eiginlega með og á móti öllu, Framsóknarflokk- urinn er hér og hann er ekki hér. Hann er á móti hernum (t.d. Páll Pétursson á þingi og nú Steingrímur að hluta til) og hann er einlægur stuðn- ingsmaður hersins, (eins og Varðbergshópurinn með Alfreð Þorsteinsson í broddi fylkingar.) Framsóknarflokk- urinn er ennfremur með og á móti söluskatti á matvæli, vaxtastefnunni, húsnæðis- málum. Framsóknarflokkurinn var ekki hár í loftinu í apríl þegar skoðanakannanir sýndu fram á afhroð ( kosningum. Með ótrúlega dýrri og úthugsaðri auglýsingaherferð náði Fram- sókn 13 þingmönnum og 18.9% landsfylgi. í dag sýna síðustu skoðanakannanir að flokkurinn hafi um 24% fylgi. Það er ekki hægt að skýra það örðuvísi en að flokkurinn og forystumenn hans hafi verið snjallir að haga seglum eftir vindi. Framsóknarflokkurinn ætti þvl að virðast hafa alla burði I að sllta stjórnarsamstarfi ef þeim svo sýnist og stofna til rlkisstjórnarsamstarfs með hvaða flokki eða flokkum sem er þar sem Steingrímur sæti (forsæti. En það er of einföld leið. Og hættuleg. Framsókn er inni í rfkisstjórn og það skiptir meiru en nýjar kosningar og nýtt áhættu- spil. Þar að auki hefur flokk- urinn þrjú valdamikil ráðu- neyti; utanríkismál ásamt ut- anríkisverslun, sjávarútveg og landbúnað. Öll lykilráðu- neytin sem SÍS þarfnast. Þvf er miklu vænlegra fyrir Fram- sóknarflokkinn að halda áfram stjórnarsamstarfi og afla sér áframhaldandi vin- sælda með því að sveifla sér hingað og þangað í frum- skógi stjórnmálanna, allt eftir því hvar bananana er að finna. Framsókn hefur enn- fremur alltaf lagt mikið upp úr þvl að sýna ábyrgð í stjórnarsamstarfi. A Iþýðuflokkurinn hugmyndafrœðingur Alþýðuflokkurinn hefur ,lagt einna mest í púkkið. Flest stefnumál flokksins eru 'í stjórnarsáttmála og flokkn- um afar mikilvægt að þeim verði framfylgt í stjórnarsam- starfinu. Það er ennfremur Ijóst að Alþýöuflokkurinn er hugmyndafræðingur rikis- stjórnarinnar og mest frum- kvæði og nýsköpun I pólitík hefur komið frá Alþýðu- flokknum. Hins vegar hefur flokkurinn átt erfitt uppdrátt- ar ( einstökum málum vegna þess að bæði Sjálfstæðis- flokkui og Framsóknarflokk- ur eru hefðbundnir hags- munagæsluflokkar sem láta ekki völd og áhrif svo auð- veldlega frá sér. Alþýðuflokk- urinn á heldur ekki auðvelt með að slíta stjórnarsam- starfi þótt hann yrði settur út í horn I stjórnarsamstarfinu. Útgangan 1978 hangir enn yf- ir flokknum og yrði Alþýðu- flokknum afar skeinuhætt pólitiskt séð. Það er þvl raunar fátt sem fengi einstaka flokka til að slíta stjórnarsamstarfi. Og ágreiningsmál sem nú eru uppi eru aðeins ósamkomu- lag einstakra þingmanna stjórnarflokkanna. Það að sllta stjórn er allt annar handleggur. Þá þarf miklu meira að koma til. Stjórnar- slit verða aöeins hugsanleg að undangengnum miklum erfiðleikum ( efnahagslífi og erjum á vinnumarkaði. Og eftir miklar deilur um leiðir sem stjórnarflokkarnir gætu ekki komiö sér saman um. Kemur til þess? Fylgstu með. Lestu áfram Alþýðublaöið.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.