Alþýðublaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 21

Alþýðublaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 21
Laugardagur 7. nóvember 1987 21 Huntsville er baömullarþorpið sem Werner Von Braun og aörir þýskir vísindamenn breyttu i 150 þúsund manna miðstöð fyrir geimvisindi. Hér er stærsta geim- og eldflaugasatn Bandarikjanna — The Space and Rocket Center. Og hér er stjórnstöð geimvarna Bandaríkjahers sem fæst fyrst og fremst viö rannsóknir á vopnum og samhæfingu upplýsinga og tölvugagna. Huntsville úr 15 þúsund manna bæ í 150 þúsund manna borg. í dag er Hunts- ville líkt og lifandi safn geim- ferðaog geimvísinda. Hér er stærsta geimsafn Bandaríkj- anna og hér snýst öll tilveran um eldflaugar og geimferðir. En hérereinnig einkennileg samsuða allra þjóðerna, þótt Þjóðverjarnir séu langsterk- astir í bæjarmyndinni. Hér er til dæmis stórkost- legt óperuhús með afbragð- góðri sinfóníuhljómsveit. Hvers vegna? Jú, Werner Von Braun og félögum leiddist að hlusta á negrablús að lokinni vinnu, reistu óperuhús og fluttu inn þýska listamenn sem urðu kjarni sinfónlu- hljómsveitarinnar. Ég þorði ekki að spyrja hvort þeir hefðu aðallega hlustað á Wagner. Og hér er stjórnstöð geim- varnaráætlunar Bandaríkja- hers. Víetnamhermaður og geimfari Yfirmaður stjórnstöðvar- innar er staðsettur I Washington D.C. En aðstoðar- yfirmaðurinn er staðsettur hér I Huntsville og er æðsti maður á svæðinu. Hann heit- ir Robert L. Stewart og er titl- aður hershöfðingi. Hann er lágvaxinn, dökkhærður mað- ur og aðeins 45 ára að aldri. Stewart hefur þó langan og óvenjulegan feril aö baki. Hann hefur háskólapróf í stærðfræði og magisterpróf I geimvísindum og langan feril í hernum þar að auki, meðal annars sem þyrluflugmaður í Víetnam-stríðinu í hörðum átökum með meira en eitt þúsund flugtlma að baki. Stewart er ennfremur geim- fari. Hann hóf þjálfun hjá NASA 1978 og hefur tvívegis flogið geimferjunni. Hann hefur 289 tíma i geimnum að baki og var fyrsti maðurinn sem sveif um í geimnum, óbundinn við geimfar. Robert L. Stewart er þó ekki svalur maður aö sjá. Hann er hæverskur og geð- ugur og talar lágum rómi þegar hann útskýrir að stærsta augnablik lifs síns hefði verið að svífa frjáls um geiminn. Stewart og félagar hans við stjórnstöðina voru trúaðir á mátt geimvarnaráætlunar- innar. En hins vegar treystu þeir sér ekki til að segja ná- kvæmlega fyrir hvernig geim- varnarvopnin verkuðu í smá- atriðum. „Við vitum til dæmis ekki hvort að kjarnaoddarnir springa eða ekki, þegar skot okkar hitta þær,“ segir Sam Liberatore ofursti við Alþýðu- blaðið. „Við erum að rann- saka þessa hluti.“ Það er margt sem er óreynt í geimvarnaráætluninni. „En við erum alltaf að fikra okkur áfrarn," segirTom Chapman ofursti við Alþýðublaðið. „Það er hægt að setja margs konar stríðsleiki í gang í tölv- um en viö höfum einnig skot- ið eldflaugum á loft og skot- ið þær niður með öðrum flaugum. Og það gerir okkur kleift að rannsaka særanleika kerfisins.“ Hve öruggt er kerfið? Særanleiki kerfisins er stórt vandamál. Geimvarnar- kerfi sem staösett yröi að stórum hluta í geimnum er auðvelt skotmark fyrir sovéskar eldflaugar. Og geislavirkni við sprenginu í geimnum gæti haft mikil skekkjuáhrif á skynjara og tölvubúnað. „Við verðum að geta varið kerfið í geimnum,“ áréttar Chapman. Geimvarnirnar verða bæði í höndum flughersins og land- hersins. Flugherinn sér um átök í fremstu varnarlínu en landherinn í þeirri aftari, þ.e.a.s. þegar og ef kjarna- oddarnir hafa sloppið í gegn- um geiminn og nálgast bandaríska jörð. „Við verðum að búa til kerfi þannig að við getum varist yfir eigin landi og ekki að- eins í geimnum,“ segir dr. Ed Wilkinson viö Alþýðublaðið. Hann er einn þeirra vlsinda- manna í Huntsville sem hafa þróað rannsóknirnar á gagn- flaugum sem hitta árásar- flaugarnar, hinar svonefndu HOE-tilraunir (Home Overlay Experiment). Eg spyrWilkin- son um þá staðhæfingu and- stöðunnar við geimvarnarætl- uninni, að þetta kerfi sé ónothæft nema að óvinurinn sé samvinnufús. „Það er af og frá,“ segir dr. Wilkinson. „Við tökum eitt skref I einu. Við þekkjum hraða og feril flauganna og getum sent gagnflaugar sem hitta vegna þess að óvinur- inn er háður sömu eðlis- fræðilögmálum og við.“ Tölvustríö Land- og flugher Bandarlkj- anna gerir aðallega rann- sóknir á gæðum geimvarnar- vopnanna í tölvum. Vopnin eru enn á teikniborðum vopnaframleiðendanna en upplýsingar og gögn um þau eru nægileg svo að herinn geti búið til forrit sem sýnir þol þeirra og snerpu og sann- reynt kerfið I tölvum. „Vió höfum leikið fleiri stríðsleiki á tölvum en ykkur órar fyrir,“ segir dr. Wilkinson við Al- þýðublaðið. „Hlutverk okkar er að kom- ast að því hve mikill eyðing- armáttur þessara vopna er,“ segir M. T. Capps sem vinnur við stjórnstöðina. „Við erum fyrst og fremst að rannska árekstarvopn en munum einnig rannsaka geisla- og rafeindavopn." Eitt af vandamálum stjórn- stöðvarinnar eru tölvurnar. Til að geimvarnarkerfið eigi að ganga upp, þarf geysilega sterkar tölvur sem geta unnið úr miklum upplýsingum á augabragði. Þær tölvur sem sterkastar eru í dag, tilheyra svonefndu fjórðu kynslóð tölva. Þeir sérfræðingar sem Alþýðublaðið talaði við í Huntsville, álitu að þær tölv- ur sem gætu unnið úr hinu mikla magni gagna og upp- lýsinga frá geimnum í stjörnustríði, yrðu að vera af fimmtu eða sjöttu kynslóð tölva. Fyrir tölvufrík má nefna að öflugustu tölvur i dag vinna úr gögnum frá geim- ferjunni. Þær afgreiða 50 megabæt á sekúndu. Á rann- sóknastofum hafa vísinda- menn náð 1000 megabætum á sekúndu. En ef vinna á úr gögnuin ( stjörnustríði þurfa menn tölvur sem vinna á mörg hundruð sinnum meiri hraða en rannsóknastofutölv- urnar. Erum eins og Henry Ford Hin tæknilegu vandamál geimvarnaráætlunarinnar eru því mörg. Andstæðingar geimvarnaráætlunarinnar halda því fram aö ýmsir þætt- ir tölvutækninnar, eins og hugbúnaðurinn, séu langt frá því að vera það þróaðir að dæmið gangi upp. „Við viljum ekki hugsa svona,“ segir yfirmaður við stjórnstöðina að nafni Mitchell við Alþýðublaðið. „Við viljum hugsa eins og Henry Ford. Allir sögðu: Það er ekki hægt að búa til bíla á viöráðanlegu veröi, þvl fram- leiösla hvers og eins er of flókin og dýr. Og þegar allir voru sannfærðir að bllafram- leiðsla og bllakaup væru að- eins fyrir fáa og rlka, þá bjó Ford til færibandið. Þar með gátu allir keypt bil á viðráð- anlegu verði.“ Dr. Ed Wilkinson er einn þeirra vísindamanna í Huntsville sem tókst aö hitta eldflaug með annarri eldflaug í ERIS-tilrauninni 1984. Hann stendur hér viö likan af þeirri flaug. Hann segir viö Alþýðublaðið: „Við verðum að geta varist yfir eigin jörð jafnframt því sem við verjumst í geimnum."

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.