Alþýðublaðið - 07.11.1987, Blaðsíða 22
22
Laugardagur 7. nóvember 1987
MYNDLIST
HELGARSJÓNVARP
Myndlistarkonan Jóhanna
Kristin.
Undanfarna daga hefur verið
sýning í gangi I Gallerí Borg á
hinum ýmsu verkum eldri meist-
ara. Starfsmenn Gallerisins kalla
sýninguna „Upphengi hússins"
og þar eru til sölu olfumálverk
gamalla meistara og einnig
nokkur grafik verk. „Upphengi
hússins" stendur til 12. nóvem-
ber og þá tekur viö sýning á nýj-
um oliumálverkum Jóhönnu
Kristlnar Yngvadóttur. Jóhanna
útskrifaðist úr Myndlista- og
handlöaskólanum 1976, fór þá til
Hollands og stundaði þar list-
nám (fjögur ár. Á sföasta ári
hlaut Jóhanna Kristín starfslaun
og dvaldist þá um nokkurra
vikna skeið á Grænlandi. Hluti
þeirra verka sem sýnd verða á
sý'ningunni i Galleri Borg eru
einmitt unnar þar.
•
Gallerí Svart á hvitu: Sýningu
Georgs Guðna er að Ijúka. Á
byltingarafmælinu opnar
Margrét Á. Auöuns sýningu á
ollu- og akrylverkum. Sú sýning
stendur yfir til 22. nóv. Galleríiö
er við Óöinstorg og opið alla
daga nema mánudaga kl. 14—18.
í Galleri Grjót stendur nú yfir
samsýning þeirra sem að Gall-
eríinu standa. Þau eru sjö tals-
ins og sýna m.a. höggmyndir,
graflk og ýmiss konar málverk.
Sýningin er búin að vera i u.þ.b.
viku og stendur eitthvað fram
yfir helgi.
í Norræna húsinu standa yfir
tvær grafík sýningar. Önnur er i
anddyrinu, sýning Outi Heisk-
anen. Henni átti að Ijúka 1.
nóvember en veröur framlengd
fram yfir þessa helgi. í sýningar-
salnum i kjallara Norræna húss-
ins er önnur grafík sýning, sýn-
ing Asger Jorn.
t
•
í dag opnar Björn Birnir mál-
verkasýningu á Kjarvalsstöðum.
Björn er fæddur 22. júli 1932.
Hann lauk kennaraprófi frá MHI
1952.
Rúna Gísladóttir.
Rúna Glsladóttir opnar einka-
sýningu að Kjarvalsstööum f
dag, laugardaginn 7. nóvember
kl. 14.00.
Þetta er fyrsta einkasýning
Rúnu, en hún hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum á undan-
förnum árum, m.a. FIM sýning-
um árin 1981 og 1983, Reykjavlk í
myndlist, sumarið 1986 á Kjar-
valsstöðum og kirkjulistarsýn-
ingu á Kjarvalsstööum um páska
1983.
Sunnudagur 8. nóvember 1987
15.05 Steini og Olli'
17.05 Samherjar
17.50 Sunnudagshugvekja
18.00 Stundin okkar
18.30 Leyndardómar gullb.
18.55 Fréttaágrip og táknm.
19.05 Á framabraut
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrárkynning
20.45 Heim í hreiðrið
21.15 Hvað heldurðu?
21.55 Vinur vor, Maupassant
22.50 Bókmenntahátlð '87
23.10 Útvarpsfr. I dagskrárlok
Laugardagur 7. nóvember 1987
15.30 Spænskukennsla
16.30 íþróttir
18.30 Kardimommubærinn
Thorbjörn Egner höfundur Kardi-
mommubæjar.
18.50 Fréttaágrip og táknm.
19.00 Smellir
19.30 Brotið til mergjar
20.00 Fréttir og veður
20.35 Lottó
20.40 Fyrirmyndarfaðir
21.10 Maður vikunnar
21.30 Ástir og afbrot
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1979.
Leikstjóri Dean Hargrove. Aðal-
hlutverk Brenda Vaccaro og Arlen
Dean Snyder. Ung, metnaðarfull
kona er orðin lögregluforingi og
starfar við rannsókn morðmála.
Einn góðan veðurdag verður hún
ástfangin en á sama tíma fær hún
spennandi verkefni að glima við.
23.00 Cannes — Verðlaunam.
00.35 Útvarpsfr. I dagskrárlok
Laugardagur 7. nóvember
09.00 Með afa
10.35 Smávinir fagrir
10.40 Perla teiknimynd
11.05 Svarta stjarnan teiknim.
11.30 Mánudaginn á miðnætti
12.00 Hlé
15.05 Ættarveldiö Dynasty
15.55 Fjalakötturinn
Ungur strákur er milli tveggja
heima: nútimans á hvítþvegnu, ný-
byggðu heimili foreldra sinna og
hins gamla sem er holdgervt í móð-
urbróður hans. Þessi mynd er eitt
af fáum verkum Tati en gefur mjög
góðan svip um lífsverk þessa gjald-
þrota snillings, sem vann hverja
sina mynd niður í smæstu eindir.
Myndin hlaut Óskarinn 1956. Inn-
gangsorð flytur Sveinn Einarsson.
17.55 Golf
18.50 Sældarlíf
19.19 19.19
20.00 íslenski listinn
20.45 Klassapíur
21.15 lllur fengur
22.00 Kennedy
23.35 Berskjölduð
01.15 Þriðja testamentið
02.15 Dagskrárlok
i
Sunnudagur 8. nóvember
09.00 Momsurnar teiknim.
09.20 Stubbarnir teiknimynd
09.45 Sagnabrunnur
10.00 Klementina
10.20 Albert feiti teiknimynd
10.45 Hinir umbreyttu teiknim.
11.10 Þrumukettir teiknim.
11.30 Heimilið
12.00 Sunnudagssteikin
12.55 Rólurokk
13.50 1000 Volt
14.15 Það var lagið
14.35 Natasha
15.35 54 af stöðinni
16.00 Geimálfurinn Alf
16.25 Spékoppar
17.35 Um viöa veröld
18.15 Ameríski fótboltinn
19.19 19.19
20.00 Ævintýri Sherlock Holmes
20.55 Nærmyndir
21.30 Benny Hill
21.55 Vísitölufjölskyldan
22.20 Lúðvík Ludwig
Lúðvik II konungur af Bæjaralandi
fæddist árið 1845 og tók við kon-
ungdómi aðeins 18 ára að aldri.
A FJOLUNUM
LEIKFÉLAG
REYKIAVÍKUR
SÍM116620
LR frumsýndi Hremmingu um
slðustu helgi. Verkið höfðar fyrst
og fremst til unga fólksins.
„Þessi umræddi aldurshópur
hefur þvl miður allt of lítið sést í
leikhúsinu," segir I leikskrá.
Yngri kynslóð Leikfélagsins
heldur að mestu uppi sýning-
unni. Leikstjóri er Karl Agúst
Úlfsson og hann er lika þýðandi.
Kjartan Ólafsson semur tónlist
og Helgi Björnsson leikuraöal-
hlutverkiö. Spennandi verk.
Inga Hildur Haraldsdóttir leikur
kennslukonuna, sem nemendur
kalla górillu.
Aðarar sýningar LR um helg-
ina eru þessar:
Dagur vonar sunnudag kl. 20 í
Iðnó.
Hremming laugardag kl. 20.30
i Iðnó.
Djöflaeyjan í leikskemmunni
við Meistaravelli sunnudag kl.
20.
Saga úr dýragarðinum sýnt i
Djúpinu sunnudagskvöld kl.
20.30.
Sætabrauðskarlinn i Óperunni
laugardag kl. 15 og sunnudag kl.
15.
m\m
ím
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Brúðarmyndin eftir Guðmund
Steiþsson: Sýnd föstudaginn 6.
nóvember og á laugardag, 7.
nóvember kl. 20.00.
Yerma eftir Federico Garcia
Lorca. Tekin upp frá seinasta
leikári vegna fjölda áskoranna.
Yerma verður sýnd sunnudaginn
15. nóvember kl. 20.00 og er það
jafnframt slðasta sýning.
Bílaverkstæði Badda er nú
sýnt á hverju kvöldi og er upp-
selt á allar sýningar fram að jól-
um.
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ
Alþýðuleikhúsið frumsýnir tvo
einþáttunga eftir Harold Pinter, -
Einskonar Alaska og Kveðjuskál
i Hlaðvarpanum laugardaginn 7.
nóvember kl. 16. 2. sýning verður
þriðjudaginn 10. nóvember.
Kveikjan að leikritinu Eins-
konar Alaska er bók læknisins
Oliver Sacks, í svefnrofum
(Awakenings), sem fyrst kom út
árið 1973.
í byrjun aldarinnar breiddist
afar kynleg farsótt út um Evrópu
og síðar heim allan. Fimmtíu
árum siðar, eða um 1969 kom
undralyfið L-DOPA til sögunnar
og sneru þá margir sjúklinganna
til llfs á ný.
Leikrit Pinters segir frá konu
sem vaknar af slikum dásvefni
fyrir tilstuðlan lyfsins, eftir 29 ár.
Kveðjuskál — I mars 1985
heimsóttu Harold Pinterog
Arthur Miller Tyrkland á vegum
PEN rithöfundaklúbbsins. Þar
hittust yfir hundrað rithöfundar,
menntamenn og verkalýðsleið-
togar sem flestir höfðu setið um
tlma I herfangelsum, og meiri-
hlutinn verið pyntaðir. I yfir 90
þjóðlöndum eru pyntingar, sem
fylgifiskur fangelsunar, daglegt
brauð — viðurkennd aðferð.
í Kveðjuskál reynir Pinter að fá
áhorfendann til að horfast í augu
við, og viðurkenna þessa skelfi-
legu staöreynd.
Þröstur Leó Gunnarsson og
María Sigurðardóttir eru meðal
leikenda hjá Alþýðuleikhúsinu.
HÁDEGISLEIKHÚS
Sýningar AL á leikritinu Eru
tigrisdýr i Kongó veröa I veit-
ingahúsinu í Kvosinni á laugar-
dag og sunnudag kl. 13. Innifalið
í miöaveröi er léttur hádegisverð-
ur og kaffi.
Jf Æ MIÐASALA
K ÆMk sími
Æm* 96-24073
lQKf=éLAG AKURGYRAR
Lokaæfing eftir Svövu Jakobs-
dóttur. Leikstjóri er Pétur Einars-
son og hönnuöur Gylfi Glslason.
Lokaæfing er sýnd nú um helg-
ina i dag, laugardag og á morg-
un, sunnudag kl. 20.30.
Sýningar á barnaleikritinu •
Halló Einar Áskell hefjast á
Akureyri núnaum helgina. Halló
Einar Áskell var frumsýnt 5.
október i Freyvangi. Sýningar i
Leikhúsi Akureyringa eru I dag
og á morgun kl. 15.00.
Leikhúsið I kirkjunni sýnir Kaj
Munk. Einungis þrjár sýningar-
helgar eru eftir af Kaj Munk.
Næstu sýningar eru á morgun,
sunnudag kl. 16.00 og á mánu-
dagskvöldið kl. 20.30.
Nasistarnir koma til þess að
handtaka Kaj Munk. Lísa, kona
Kajs lendir í handalögmálum.