Alþýðublaðið - 14.11.1987, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 14.11.1987, Qupperneq 10
10 Laugardagur 14. nóvember 1987 MÞMMÐIÐ Sími: 681866 Útgefandi: Blaö hf. Ritstjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Blaöamenn: Umsjónarmaöur helgarblaös: Ingólfur Margeirsson. Jón Daníejsson. Ingibjörg Árnadóttir, Kristján Þorvaldsson og Sigríöur Þrúöur Stefánsdóttir. Þorlákur Helgason. Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson. Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir, Eva Guömundsdóttir, Þórdís Þórisdóttir, Olöf Heiöur Þorsteinsdóttir og Guölaugur Tryggvi Karlsson. Setning og umbrot: Prentun: Filmur og prent, Ármúla 38. Blaöaprent hf., Slðumúla 12. Áskriftarslminn er 681866. Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakiö virka daga, 60 kr. um helgar. ÞJOÐVILJINN FÉLL Á PRÓFINU Hvers vegna stóðst Þjóðviljinn ekki prófið? Því er fljót- svarað. Þaðervegna þess að Þjóðviljinn varog er pólitísk- ur miðill. Fréttir Þjóðviljans bera alltof oft pólitískan blæ og oftar en ekki hafa blaðamenn þar á bæ persónulegar, pólitískar skoðanir sem þeir hika ekki við að bera á borð í fréttum sínum. Þjóðviljinn, hefð sinni trúr, þurfti þess vegnaekki að bíðaeftirstaðfestingu áruglinu í fréttaritara Ríkisútvarpsins í Osló. Þetta var pólitískt hagstætt mál: Fyrrum forsætisráðherra krata hafði náið samstarf við CIA. Alþýðubandalagið undir nýrri forystu Ólafs Ragnars hefur þegar hafið brýningu kutanna gegn Alþýðuflokkn- um. Þarna kom gamalt mál sem gæti varpað dökkum skugga á krata: Sýna þjóðinni hvers konar hyski þeir hafa alltaf verið, landráðamenn og ofsóknarmenn kommún- ista. Mennirnir sem seldu landið. Og ruglið varð að stór- pólitískri árásarfrétt, þar sem traðkað var á minningu lát- innaforystumanna. Þannig máttu aðstandendurog gaml- ir vinir Stefáns Jóhanns Stefánssonar lesa í Þjóðviljanum í nokkra daga að fyrrum forsætisráðherra hefði verið handberi CIA og hinn versti landráðamaður. En nú hefur sannleikurinn komið í Ijós, og fjölmiðlar farnir að birta staðfestar fréttir af innihaldi skjalanna, þar sem Stefáns Jóhanns er hvergi getið. Hvað ætlar Þjóviljinn nú að gera? Ætlar hann að birta afsökunarbeiðni til aðstandenda Stefáns Jóhanns? Sannleikurinn um meint samsæri Stefáns Jóhanns Stefánssonar, fyrrum forsætisráðherra og formanns Al- þýðuflokksins og bandarísku leyniþjónustunnar á árun- um eftir stríð, virðist vera komið á hreint. Norski sagn- fræðingurinn Dag Tangen sem kannað hefur bandarísk skjöl frá þessum tíma, og gefið fréttaritara Ríkisútvarps- ins í Osló og ritstjórn Þjóðviljans tilefni til níðfrétta um látna íslenska forystumenn, hefur nú leyst frá skjóðunni. í viðtali við DV í gær, segir Tangen að hann hafi séð bréf í skjalasafni frá forsetatíð Harry S. Truman þar sem segir að Stefán Jóhann Stefánsson hafi verið í samstarfi við bandarísk yfirvöld. Það eru aldeilis stórmerkilegar sagn- fræðilegar uþpgötvanir. Síðan segir Tangen við blaðið að hann eigi ekki afrit af bréfinu, hann muni ekki hverskrifaði það né hvenær það var dagsett. Þetta eru heimildirnar sem fréttaritari Rlkisútvarpsins í Osló og Þjóðviljinn hafa unnið út frá. Þá hefur það einnig komið fram í fjölmiðlum, að Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra hafi feng- ið afrit af skjölum Norðmannsins og er þar hvergi minnst á Stefán Jóhann Stefánsson. Þjóðviljinn tók einn upp endaleysuna úr fréttaritara Ríkisútvarpsins í Osló. Allir aðrir fjölmiðlar tóku þá ákvöröun að bíða með fréttaflutn- ing uns þeir væru vissir um staðreyndir í málinu, en þær virtust mjög á reiki og upplýsingum barekki saman. Þess vegna stóðust allir fjölmiðlar þetta próf. Allir nema Þjóð- viljinn. Hjörleifur Guttormsson stóðst heldur ekki mátið og hóf utandagskrárumræðu um málið á Alþingi með Atómstöð- ina (annarri hendinni. Hann féll einnig á prófinu. Hins veg- ar er það rétt ályktun hjá utanríkisráðherra, að hér á landi eiga að gilda ákveðnar reglur um birtingu skjala og gagna og að tímaviðmiðun sé svipuð og í Bandaríkjunum eða 25 — 30 ár. Við eigum öll rétt á að vita hið sanna í sögu okkar. En almættið forði okkur frá söguskýringum Þjóðviljans. ONNUR SJONARMIÐ SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKURINN hefur ver- ið í miklum þrenginum undanfarin misseri og nú koma flokksmenn brátt sam- an til að ræða skýrsluna miklu um hvað sé eiginlega að flokknum. Ein skýring hef- ur verið sú að fámenniskllka lögfærðinga og efnamanna sitji einráð í valdastóli Sjálf- stæðisflokksins og hafi lítið eða ekkert samneyti við flokksmenn. Þessi kenning hefur meðal annars verið rök- studd með því að aðeins efn- aðri flokksmenn hafi peninga til að bjóða sig fram í próf- kjöri flokksins. Pétur Sigurðs- son sem stundum hefurverið kallaður sjómaður, viðrar þetta viðhorf í nýútkomnu Þjóðlífi. Lesum hvað Pétur sjómaður hefur að segja: „Okkur, þessum „vesaling- um“ úr verkalýðshreyfingunni hefur vegnaö frekar illa i prófkjöri innan Sjálfstæðis- flokksins. Kostnaðurinn hef- ur mikið að segja því að félag. ar verkalýðshreyfingarinnar hafa ekki ráð á þessu. Þeir hafa enga sjóði að ganga í til að reka kostnaðarsama próf- kjörsbaráttu. Hins vegar hafa ýmis fyrirtæki sem standa straum af kostnaði annarra frambjóðenda miklu betri tækifæri til þess.“ Þá vaknar spurningin: Verð- ur forysta Sjálfstæðisflokks- ins í framtíðinni einungis úr peningastétt? ÓLAFUR RagnarGríms- son er sjentílmaður og heimsmaður. Það hefur kom- ið best fram í því hve Ijúfur hann er við sína nánustu ó- vini. Hjörleifur Guttormsson er til daemis ekki í vinsælda- klúbbi Ólafs Ragnars, en engu að síður fer Ólafur um Hjörleif mjúkum höndum. Eins og sannaðist best þegar Hjörleifur sagði það helberan þvætting að Ólafur Ragnar hafi lagt fram tillögur í þing- flokki Alþýðubandalagsins haustiö 1982 um stjórnarslit. Ólafur segir við Tímann að Hjörleifur Ijúgi ekki vísvit- andi. Þá vaknar auðvitað sú spurning hvort að formaður- inn nýi meini að Hjörleifur Ijúgi alltaf óvísvitandi. En það er önnur saga. Lesum hvað Ólafur Ragnar hefur um óvísvitandi lygi Hjörleifs að segja: „Hjörleifur er ekki að Ijúga þegar hann vefengir þetta. Hann ruglast á atburðarás- inni í ágúst og í október. Það er eðlilegt að hlutir skolist til í minni manna á þetta löng- um tíma.“ Já, það er margt sem skol- ast til í meðförum þing- manna Alþýðubandalagsins. Að lokum þykir okkur fróð- legt að lesa um viðhorf manna til fiska. í Tímanum í gær, þar sem stundum er drepið á annað en stórvirki utanríkisráðherra, heldur Ást- ráður Ingvarsson hjá Loðnu- nefnd þvi fram að loðnan sé með víðáttubrjálæði. (Það hefði náttúrlega þótt meiri frétt ef blaðið hefði flutt þá frétt að utanríkisráðherra væri með víðáttubrjálæði). En lesum sjónarmið Ás- tráðs: „Þeir biða nú bara eftir að hann lygni, loðnan er uppi, þó hún hafi staðið djúpt. Það er eitthvað víðáttubrjálæði í henni, hún er óútreiknanleg," sagði Ástráður Ingvarsson, hjá Loðnunefnd í samtali við Tímann í gær um loðnuveið- arnar. Alpýðnblaðlð Franz föðurbróðir. Sagpsk kvikmynd í 6 páttum, Ankamynd. Sprenghlægileg Chaplins- mynd i 4 páttum. Siðasta síhb i kvild. Hvernig stendur á pvi, aö ensk- ir jafnaðarmonn skrifuöu h\erja greinina á eítir annari i h!öö sin uin, að ..kotrikin" Kanada. Suötir- Afríka og Nýja-Sjáland a'ttu að segja að fullu skilið við brezk yfirráð, um sama leyti og for- ráðamenn pessara pjóða sátu tund i Lundúnum í fyrra sumar með Georg konungi, Chamberlain, Baldwin og fleirum? Sumum pykir Eggert ekki nógu ^rtikill hávaðamaður i sðng. og |K'ir um |iaö. En súlarstyrkur Egg- erts og fin mjúklega dillandi rödd láta einmitt i té sumt pað, s»‘m engínn annar íslenzkur söngvari á til í tigu sinni, Þess vegna ættu sem flestir að nota pau fáu ta-ki- fa'ri, sem geTast til aö hlusta á söng hans. Rtkardur Jónsxon. Jafnaðamaimafélag Islands. Fundur annað kvfiíd (prifijud.) kl, 8 V* stundvislega.. 1. Félagsmál. 2. Héöinn Valdimarsson hetur umr. um húsnæðismálið. 3. önnur mál. I.yftan i gangi frákl. 8. Fjölsækið fundinn, félagarl Stjéralæ. Það borgar slg ekki a» láta gera vifi gamla divana, heldur kaupa ný)a með tækiber- Uverði. Aðalrtræti 1. Skipafréttir. ’,,Goðafoss'- og „Nova" komu að norðan i gærkveldi, „Nova" frú Noregi. „Goöafoss" flutti mik- ið síldarmjöl frá önundarfirði. „Gu Ifoss" er væntanlegur aö vest- an á fimtudagskvöldið. Glimufélagifi Ármann hefir nú lokið sumarstarfsemi sinni og byrjar nú vetrarstarfió undir eins nieð fullu fjöri eftir aðalfund sinn, sem haldinn verður annað kvöld i Iðnó kl. 8. 1 vet- ur iðkar félagið islenzka glintu, grisk-rómverska glimu, fimleika og hnefaleik. og hefir Færustu kennurum á að skipa i hverri i- próttagrein. Sjá auglýsingu hér i plaðinu i dag unt æfingatima. PÓST- OG SlMAMÁLASTOFNUNIN Rafeindavirkjanám lokaáfangi Póst- og símamálastofnunin býöur raf- eindavirkjanemum á 7. önn í bóklegt nám og starfsþjálfun, sem hefst í byrjun janúar 1988. Útskrifast þeir þá sem rafeindavirkjar frá Póst- og símaskólanum eftir 13. mánuði. Starfsþjálfun, sem er fólgin í uppsetningu og viðhaldi á mörgum og mismunandi tækj- um og kerfum, fer fram í ýmsum deildum stofnunarinnar í Reykjavík og víösvegar um landið. Laun eru greidd á námstímanum. Umsóknir, ásamt prófskírteini eöa staö- festu afriti af því, berist Póst- og símaskól- anum fyrir 10. desember n. k. Nánari upplýsingar eru veittar í Póst- og símaskólanum í síma 91-26000. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Póst- og símaskólanum, hjá dyravörðum Lands- símahússins við Austurvöll og Múlastöövar viö Suðurlandsbraut og ennfremur á póst- og símstöðvum. Reykjavík 12. 11. ’87 Skólastjóri

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.