Alþýðublaðið - 14.11.1987, Side 14
14
Laugardagur 14. nóvember 1987
SMÁFRÉTTIR
Vettvangsferð
á morgun
Náttúruverndarfélag Suð-
vesturlands, NVSV, fer á sjö
staði vettvangsferðir suður
með sjó á morgun, sunnu-
dag. Meö þessum ferðum
lýkur ferðaröðinni um Suður-
nes.
Fyrsti staðurinn er Vogavík
undir stapa. Þeir sem hafa
áhuga að taka þátt (feröinni
mæti kl. 9.30 f fjöruna
skammt sunnan við Vogalax.
Guömundur B. Jónsson,
fræðimaður, mun fjalla um
hvernig umhorfs var f Vogavík
um aldamót og Stefán Berg-
mann, líffræöingur kynnir líf-
rfki fjörunnar. Kl. 11.45 verður
fariðí Arfadalsvfk í Grindavík.
Einar Kr. Einarsson mun
spjalla um nýtingu vatns úr
gjám og fjöruvötnum og jarð-
hitans f Eldvörpum fyrr á tím-
um. Þriðji staðurinn veröur
við kirkjuna í Höfnum, kl.
13.00. Ásbjörn Eggertsson
segir frá gróðri í Hafnar-
hreppi fyrr á öldum, og Guð-
leifur Sigurjónsson, garð-
yrkjumaður, lýsir ástandi
gróðurs síðustu árin. í Njarð-
víkurfitjum, kl. 14.00 fjallar
Helga Ingimundardóttir um
Njarðvíkurfitjar fyrr á tlmum
og Jóhann Guðjónsson, líf-
fræðingur um llfrfki þeirra í
dag. Fimmti staöurinn verður
Hafnargata 32, Keflavlk kl.
15.00. Þar mun Jóhann Berg-
mann bæjarverkfræðingur
fjalla um skipulagsmál og
byggöaþróun Keflavíkur.
Sjötti staðurinn verður í
Grunnskólanum f Sandgerði
kl. 16.45. Guðjón Kristjáns-
son skólastjóri ræðir hug-
myndir NVSV um uppsetn-
ingar á sýningu á náttúrufari
og mannvist heimabyggðar.
Að lokum verður farið f
Blómaskálann í Leifsstöð kl.
17.30. Þar er ætlast til að
þátttakendur hefji umræður
um umhverfi í kringum flug-
brautina.
Miðinn á nafn
konunnar
Vegna misskilnings sem
gætt hefur varðandi frétt um
útsendingu miða í Happ-
drætti Krabbameinsfélags ís-
lands vill Krabbameinsfélag-
ið að það komi fram að miðar
eru sendir inn á heimilin á
nafn konunnar, í hjónabandi
eða sambúð. En auk þess
fær allt einhleypt fólk og fólk
utan sambúðar miða eins og
áður.
Bresk
minningarathöfn
Hin árlega athöfn um
fallna hermenn Breska sam-
veldisins verður haldin á
morgun, sunnudag, við her-
mannagrafreitinn í Fossvogs-
kirkjugarði og hefst hún kl.
10.50. Sr. Arngrimur Jóns-
son stjórnar athöfninni og
eru allir velkomnir
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f. h. Iðnskólans f
Reykjavík, óskar eftir tilboðum í eftirfarandi búnað:
10 — 16 PC tölvur með 2 disklingadrifum, a. m. k. 512 KB
vinnsluminni, hlið og raðtengli. Jafnframt er óskað eftir
þvf að tölvunum fylgi grafískt skjákort, með fullkominni
teiknigetu.
Ennfremur er óskað eftir upplýsingum um verömismun ef
4 tölvum fylgir 20 Mb harður diskur.
Óskað er eftir því að tölvurnar séu til afgreiðslu fyrir 1.
janúar n. k.
Tilboð skulu hafa borist til Innkaupastofnunar Reykjavfk-
urborgar í síðasta lagi mánudaginn 30. nóvember n. k.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGA
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholt 878 — 101 Reykjavik
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Hjúkrunarfræðinga vantar
á handlækningadeild
Landakotsspítali býður ykkur ákjósanlegan vinnu-
stað í hjarta borgarinnar. Góðar strætisvagnaferðir í
allaráttir. Þar geta hæfileikarykkar notið sín, því við
erum opin fyrir öllum nýjungum og viljum að starfs-
fólk okkar fái tækifæri til þess að vinna að þeim með
okkur. Við reynum að gera öllum kleift að sækja
námskeið og ráðstefnur. Við bjóðum aðlögunar-
kennslu áður en starfsmenn fara á sjálfstæðar vakt-
ir.
Hafið samband við skrifstofu hjúkrunarstjórnar sem
veitir nánari upplýsingar f síma 19600-220-300 alla
virka daga milli kl. 08:00-16:00.
Reykavík 13. 11. 1987.
ST. JÓSEFSSPÍTALI
Landakoti
Seltjarnarnes hlutastörf
Þvottahús Landakotsspítala, Látraströnd 6, Seltjar-
narnesi óskar að ráða starfsfólk í hlutastörf. —
Vinnutími eftir samkomulagi.
Upplýsingar veittar í síma 611860 frá kl. 9.00—13.30.
Reykjavík 13. 11. 1987
Heimllístæki
sem bíða ekki!
4S8k;ipiir
|3\ottavól
þurikari
eldavól -
frystikista
Nú er ekki eftir neinu að bíða, þú verslar í Rafbúð
Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt
öll heimilistækin í einu, valið sjálfur hvert tæki af
ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki
eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á
24 mánuði. Engin útborgun og fyrstagreiðsla eftir
einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur
boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam-
band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki
eftir neinu að bíða.
TAKMARKAÐ
EMAGN
„ , i Mfm
a þessum kjorumB 0SAMBANDSINS
ÁRM0LA3 Slmi-687910
• •
• • oooooo