Tíminn - 28.09.1967, Qupperneq 6

Tíminn - 28.09.1967, Qupperneq 6
TÍMINN FIMMTUDAGUR 28. sept. 1967. TOYOTA LANDCRUSIER Traustur og kraftmikill Tryggið yður TOYOTA JAPANSKA BIFREIÐASALAN H.F. Ármúla 7. — Sími 34470. Reykjavík — Norðfjörður Vetraráætlun Frá 1 .október, mánudaga, mið'vikudaga, föstu- daga og laugardaga, frá Reykjavík kl. 10,00 árd., frá Norðfirði kl 13,00. Aukaferðir eftir þörfum. F L U G S Ý N H.F. — Sími 18823 og 18410. ieöi | í 150 kúbikmetra af steypumöl, sem afhendast skulu við Radíóstöðina á Skálafelli í Mosfellssveit. \ Tilboð sendist Póst- og símamálastjórninni fyrir 30. september n.k. TÆKNISKÓLI ÍSLANDS verður settur í hátíðasal Sjómannaskólans, laug- ardaginn 7. október kl. 14,00. SKÓLASTJÓRI Auglýslng frá Berklavörn í Reykjavík Hin árlega kaffisala til styrktar fyrir Hlífarsjóð verður eins og undanfarin ár, sunnudaginn 1. okt. að þessu sinni Sigtúni kl. 3- Þær konur, sem ætla að gefa kökur eru túnsamiega beðnar að hafa samband við skrifstofu S.I.B.S. í síma 22150, eða hringja í síma 20343 og 32044 Einnig að koma þeim í Sigtún á sunnudagsmorgun. $ • t <.. STJÓRNIN AUGLÝSIÐ í TÍMANUM GRÓÐUR OG GARÐAR NORÐUR I LANDI Eomið var í réttir á Árskógs- strönd 18. septemib-er. Féð kem ur fallegt af fjalli og sögðu gangnamenn, að óvenju margt fé hefði verið í efstu gröisum, uppi við eggjar og fram undir Háls dalsjökul. Sumarið var mjög kalt lengi fram eftir. Það spratt því seint og var enn hvanngrænt gras til fjalla og þar hélt féð sig í nýgræðingnum. Iíálsdals- jökull hefur verið á undanhaldi síðustu áratugi og sjást nokkr- ir urðargarðar neð^ln við hann, er sýna, hvernig hann hefur dreg- ið sig til baka. Eru mosar og flétt ur farnar að nema þar land og vingultoppar á stangli. En í ár virðist jökullinn hafa gehgið held ur fram. — Tún eru alLvíða talsvert kal in, einkum á marflötu landi, þ. e. framræstum mýrum, þótt einn ig sé kal til í halla. Sumir bænd- ur sáðu strax um vorið höfr- um í verstu blettina, en slógu hitt snemma, þótt Mtið væri sprottið og báru strax á að því loknu — og þeir fengu að lok- um talsverða háarsprettu og björguðust bezt. Ofurlítið var heyjað á engi og sumir keyptu hey úr betri sveitum þegar á slætti. Eleifartún Petersens hins danska kom að góðum notum. — Jarðvegur á Árskógsströnd kvað víða vera tiltölulega auðugur af kali. Getur verið, að nálægð hafs- ins valdi þar einhverju um? Ströndin liggur opin fyrir köld um hafvindum og í kulda virðist særok ganga lengst á land. Á ströhdihrii nagar fénáður ekki salta rekaviðarstaura, en ef þeir eru fluttir inn' til dala er fé oft sólgið í að sleikja þá. „Flest er hey í harðindum.“ Hrafnar sækja ekki í gras að jafnaði, en sl. vor brá svo við, að þeir hópuðust í nýræktar- flög, einkum hafrasáð — og það til töluverðra skemmda að sögn. Einstaka hrafnar kom- ast líka á lagið með að grafa upp og éta kartöflur í görðum, en það virðist meira einstaklings- bundið atferli. Eartöfluuppskera er mjög lítil í útsveitum Eyja- fjarðar, bæði vegna vorkulda og síðsumarsnæturfrosta. — Undirritaður brá sér nýju Múlaleiðina til Ólafsfjarðar og þótti hún i senn fögur og stórkostleg. Skafl sást enn í gili . við veginn. Mun löngum v\ira sólarUtið í því gili. Vegur ira<i er hin mesta samgöngubót að sumrinu, en verður sennilega oft 'ófær á vetrum og mun vera varasamur í mikilli rign- Við rétfirnar á Stóru-Hámundarstöðum 18. sept s. I. Ólafsfjarðarmúli og 'Hrísey í baksýn. — Ljósm.: Ing. Davíðsson. ingu vegna grjóthruns úr brött- um skriðum. Umferð hefur verið mikil um Múlaveginn í sumar, áætlunarbílar ganga milli Akur eyrar, Ólafsfjarðar og Siglufjarð- ár. Leiðarlýsing fer hér á eftir: Ef hrellir þig ekki hrikaleið þá haltu til Ólafsfjarða.r Bfll fyrir Múlann skopar skeið skágötur veðurbarðar. Auganu mæta upp á við urðir með bríkum grettum. Fyrir neðán á hina hlið hafið freyðir á klettum. 111 er á vetrum Ófærugjá, alræmt svellrunnið Flagið. Tröllvaxnar hengjur tumba í sjá tekur Vámúli lagið — kallast hann á við Bvann- dalabjörg, konan í berginu er stundum örg og yglir sig annað slagið. Þú sérð vart fegurri sumarleið er sól gyllir Eyjafjörðinn. Þá opnar þér faðminn byggð- in breið og blómgast ilmandi jörðin. í hillingum Grímsey úr hafi ris, Hrísey sér margur að ból- stað kýs en náfjöllin halda vörðinn. Undir hlíðum hárra fjalla hlær við byggð Árskógsströnd. Sólarfjöll á Ealdbak kalla — komin í eyði Látraströnd. Sæmundur yzt á eyjarenda unir sér vel og ræktar skóg. Þrestir og rjúpur þakkir senda, það er höldinum hvatning nóg. TRULOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstbröfu. Guðm. Þorsteinsson ' gullsmiður Bankastræti 12. ROYAL ávaxtahlaup Góður eftírmatur LeysiS upp ínni- hald pakkans í 1 bolla af sjóð- andi vafni. og bœtið í 1 bolla af köldu vatni. Helii.ð í mót. RIP8292

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.