Tíminn - 01.10.1967, Blaðsíða 7

Tíminn - 01.10.1967, Blaðsíða 7
SUNNTJDAGUR 1. október 1967 TÍMINN P MRNÍ Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þóráirinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur í Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifsofur: Bankastræti 7 Af- greiðslusími: 12323. Auglýsingasimi: 19523 Aðrar skrifstofur, simi 18300. Áskriftargjald kr. 105.00 á mán. innanlands. — í lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Sjónvarpið ársgamalt Hinn 30- september 1966 toK íslenzka sjonvarpiö til starfa og á því ársafmæli um þessi manaðamót. Raunar hófst starfsemin heldur seinna en ætlað var, en þó stóðst sú áætlun, að það yrði J september það ár. Þegar sjónvarpið hófst, var ráð fyrir þvi gert, að um tilrauna- sjónvarp tvo eða þrjá daga í viku yrði að ræða um sinn, en þó talið, að sá reynslutími yrði ekki nema nokkrar vikur, og þá yrði faMö að sjónvarpa sex daga í viku og um Ieið talið, að stofnunin væn að fullu tekin til starfa. Þetta dróst þó lengur, eða fast að ári. Enginn vafi er á því, að íslenzka sjónvarpið hefur þeg- ar hlotið góðan orðstír með þeim, sem þess geta notið. Byrjunin hefur tekizt vel af hendi starfsfólks sjónvarps- ins og annarra þeirra, er þar hafa lagt hönd á plóg, meira að segja ótrúlega vel við þær örðugu aðstæður, sem hér eru. Vafalaust hefur sjónvarpsfólkið átt við mikla örðug- leika að etja og meiri en þeir, sem horfa á sjónvarpið gera sér ljóst og oft lagt saman daga og nætur. En það hefur sigrað, á því er enginn vafi, og þetta fólk á öðrum fremur skildar þakkir og heiður a þessum fyrsta afmælis- degi sjónvarpsins. Að liðnu þessu fyrsta sjónvarpsári okkar ber þó einn skugga á. Að dreifingu sjónvarosins hefur hvergi nærri verið unnið af þeim dugnaði, sem þurfti og augljóst virð- ist nú, að það dragist lengur en menn gerðu sér vonir um, að sjónvarpsnetið nái til Vestfjarða, Norðurlands og Austfjarða, nema sérstakar ráðstafanir verði nú gerðar af Alþingi og stjórnarvöldum til þess að taka fastar á því máli. Töluvert hefur verið unmð að því að bæta sjón- varpsnetið hér á Suður- og Vesturlandi, og er það góðra gjalda vert. Hins vegar er bygging aðalsjónvarpssendisins á Skálafelli enn á mælingastigi, hvað þá að minnzt sé á sendistöðvar á Vaðlaheiði eða a Vestfiörðum og Aust- fjörðum. Dreifingu sjónvarpsins um landið verður nú að hraða og taka fastar á því máh. Því verður að fylgja eftir, því að stjórnarvöld hafa au.gsýnilega tilhneigingu til að fara þar hægar en haft var á orði fyrir kosningar. Stærri kaupfélög í athyglisverðri grem hér í oiaðinu i gær ræðir Erlend ur Einarsson, forstjóri SÍS, um athugun á skipulags- breytingu samvinnufélaganna hér á landi til samræmis við breytta þjóðfélagshætti og þróun mála og aðlögun við ný viðhorf og verkefni. Erlendur segir m. a.: „Og í hverju er þá þessi aðlögun fólgin? í stuttu máli má svara þessan spurningu á þann veg, að skipulagsbreytingarnar miðisr við það að byggja upp stærri heildir, til þess að unnt se að þjóna betur þörfum fólksins í viðskiptum og framleiðslu Hér á landi verða samvinnuféiogin að taka þessi mál til rækilegrar athugunar. Segja má. að athuganir og rann- sóknar standi nú yfir. Augljóst. er að hverju stefna beri. Stærri kauþfélög með sem stærstar verzlunarmiðstöðvar og svo útibú, þar sem ekki verður hjá því komizt. Litlu kaupfélögin eru að verða eins og kotbændurnir. Hjá þeim . flestum ríkir umkomuleysi og hætta á, að þau verði fyrr eða síðar þróun tímans að bráð. FVrir sveitirnar og areif- býlið er það lífsnauðsyn, að komið sé upp byggðakjörn- um: viðskipta- og framleiðslustöðvum, þar sem fullkomna verzlunarþjónustu er unnt að veita. Þessar miðstöðvar eiga að vera bakhjarl sveitanna.5' The Sunday Times: Blaöaútgefandi í Grikklandi óhlýönast einræðisstjórninni Herforingjastjórnin í Aþenu tók Helen Vlacos höndum í byrjun vikunnar, en hefur nú látið hana lausa eftir langar yfirheyrslur SLOKKJNAð er fyrir fullt og allt á einu af ljósaskiltun- um, sem áður ljómuðu .yfir húsaþökunum við Stjórnar- skrártorgið í Aþenu. Þetta var mjög stórt skilti þrískipt og þar var auglýst útgáfa í- haldsblaða. Yfirvöldin hafa ekki óskað eftir myrkvun þessa skiltis, enda býður eig- andinn þeim byrginn með henni, og segja má raunar, að hún beri vott um einu virku andstöðuna, sem hern- aðareinræðið hefir átt að mæta þessa fimm mánuði, sem það hefir setið að völdum í Grikklandi. Eigandi skiltisins, Heien VLachos, gaf út dagblöðin Kat himerini og Messimvrini, auk myndablaðsins Eikones, sem kom út einu sinni í viku. Hún lét slökkva á skiltinu eftir byltinguna, þar sem hún kaus heldur að hætta útgáfu blaða sinna, en að þurfa að lúta ritskoðuninni. Helen Vlachos er 55 ára að aldri, en alls ódeig. Hún hefir boðið hershöf ðingj astj órninni byrginn og komist hjá refs- ingiu, og í vikunni sem leið áréttaði hún andstöðu sína. Þ>á birti hún erlendum frétta- mönnum í Aþeu ögrandd *rá- sögn, þar sem hún bar ríkis- stjórninni opinskátt á brýn, að hún hafi svikið loforð sín um endurreisn prentfrelsisins í iandinu, beitti kúgun við ó- hlýðna blaðamenn og gerði í- trekaðar tilraunir til þess að brjóta andstöðu sína á bak aftur með þungum fjárhags- legum álögum. NÝJU stjórnarherrarnir í Grikklandi eru ákafir and- stæðingar kommúnista. en vinstri-dagblöðiin, sem áður voru hvað orðhvötust, halda áfram að koma út undir strangri ritskoðun. Þau verða enn að fylgja hinum ströng- ustu f>TÍrmælum, meira að segja um leturstærð fyrirsagna, sem ávallt eru fyrirferðarlitl- ar. Af þessum sökum var enn tilfinnanlegra áfall fyrir hers höfðingjastjórnina, að þessi bitri íhaldsblaðaútgefandi skyldi bjóða henni byrginn. í fyrstu reyndu hershöfð- ingjarnir í stjórnarstólnum að fara vel að Helen Vlachos og lofuðu statt og stöðugt, að prentfrelsdð yrði endurvakið innan skamms. En hún sat við sinn keip og neitaði að gefa blöð sín út. í júlí í sumar gerði hershöfðingjastjórnin Theophylaktos Papaoon- stantincu að blaðamálaráð- herra, en hann hafði áður ver- ið einn snjallastd blaðamaður inn, sem skrifaði í Messim- vrini, annað dagblað Helen Vlachos. Papaconstantinou tjáði fyrr verandi vinnuveitanda sínum, að fyrir lagi frumvarp að lög- um um frjáislega skipan, sem ætti að koma í stað hinnar ströngu ritskoðunar. En hún yrði að hefja útgáfu að minnsta kosti hálfum mánuði áður en þessi nýju lög kæmu til framkvæmda, ef hún ætti að verða aðnjótandi þessa aukna frelsis. Hann kvað það vera metnaðarmál fýrir ríkis- stjórniina að ekki liti út fyrir að Ihún hefði orðið að láita undan. En Helen Vlachos neit aði enn. Að fenginni þessarri neit- un Helen Vlachos, var laga- frumvarpinu nýja stungið und ir stól og giripið til anniarra ráða, sem betur skyldu duga. húin þarf engu að kvíða. Á- ætlanir hennar gamga að ósk- um. Eigur mínar verða fljót- ar að ganga tii þurrðar." Fyrr þessa sömu viku hafði fjörutíu manna hópur úr leynilögreglunni gert húsrann sókn í íbúðarhúsi Helen Vla chos við Penteli, norðan Aþenu. Mennirnir leituðu í garðinum umhverfis húsið og í húsinu sjálfu hátt og lágt. Þeir skyggndust meira að segja undir rúmin. Eftir nokk urra klukkustunda leit gáfust þeir upp. „Okkur var sagt, að frú Vlachos héldi hættulegian Þessi mynd var tekin af Heien Vlacos fyrir fjórum árum er hún var ásamt Churchill um borð í einni af snekkjum Onassis. 140 blaðamenn höfðu misist atvinnu sína þegar frúin hætti útgáfu blaða sinna. 24 af þeim tóksit að fá tál að brefja hana bóta með lögsókn, og meðal þeirra var Papaoon- stantinou, hinn nýji blaða- málaráðherra. Aðrir fyrrver- andi starfsmenn frúarinnar voru samþykkir viðbrögðum hennar og ófáanlegir til að kref jast bóta. Verkamannadómur gaf síð- ar út þann úrskurð, /áð um 40 prentarar ættu enn kröfu á að fá laun sin greidd. Og fiúin galt þau. Annar dómur var upp kveðinn og úrskurð- að þar, að biaðamennirnir 24, sem kröfðust bóta, yrðu ehn að teljast starfsmenn Helen Vlachos, þar sem hún hefði ekki greitt bæturnar, og bæri þeim því að fá laun sín greidd. Frúin áfrýjaði. Um fyrri helgi samiþykkti blaðamannasambandið að svipta þá blaðamenn atvinnu- leysisstyrk, sem hefðu neitað að krefja frúna bóta með lög- sókn. Þessi samþykkt blaða- mannasambandsins var byggð á lögum, sem voru alveg ný af nálinni. \ í VIKUNNI sem leið boð- aði Helen Vlachos erlenda blaðamenn i Aþenu á sinn fund á sjöttu haeð hússins, þar sem ritsitjómarskrifstofur blaðsins Kathimerini höfðu áður inni, en nú stendur aut't. Þar sagði frúin meðal ann- ars: „Ég ætla sjálf að greiða atvinnuleysisstyrk blaðamann anna frá og með deginum í dag að telja. Riíkisstjórnin ætlar sér að koma mér á kné og kommúnista á laun,“ sögðu þeir. Þetta var vitaskuld hrein- asta firra. Frúin var lands- kunn sem staðfastur hægri- sinni áður en hershöfðingjarn ir, sem nú sitja í stjómar stólnum í Grikklandi, voru farnir að öðlast nokkum frama í hernum. HEIiEiN Vlachos erfði blaða útgáfuna. Hún tók hörkuna einnig í arf eftir föður sinn, George Vlachos. Hann stofn- aði blaðið Kathimerini fyrir fjörutiu og átta árum og sat oft í' fangelsi af stjórnmála- ástæðum, eða fyrir að lýsa skoðunum sínum á prenti í blaðinu. Helen Vlaohos stundaði nám erlendis til 16 ára ald- urs, en fór þá að starfa við bókhald hjá blaðaútgáfu föður síns. Árið 1934 giftist hún. Hún hafði farið í ferðalag og ritað í blaðið nokkrar greín- ar frá ferð sinni. Vegna þeirra var hún ráðin blaðamaður við Kathimerini. Þegar innrásin var gerð i Grikkland árið 1941 skipuðu Þjóðverjar nefnd blaðamanna til þess að stjórna blaðinu Kathimerini, en George Vla- ehos var hrakinn á burt. Blað- ið fór aftur að koma út sem frjálst blað í febrúar árið 1945, og þá hóf Helen Vlachos að rita greinar í það reglu- lega. Hún birti greinar sínar á forsíiu blaðsins og þar sagði hún Grikkjum ýmislegt um þá sjálfa, sem ekfcert blað hafði áður þorað að birta. Pramhald á bto. J.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.