Tíminn - 21.10.1967, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 31. október 1967
7
staklega hjá emkaaðilu'm. Hins
vegar eru m,argar byggingar
nú í smíðum og sumar stórar,
svo sem við Menntaskólann,
Fiorðungssjúkrahúsið, fjðl-
býlishús o.fl. Framundan er
svo mjög mikil stækkun Fjórð
nngssjúkrahússms, sem bær
og ríki verða að leysa sam-
eiginlega. Þetta er fram-
kvæmd, sem Hefur seinkað,
en væntanlega kveða ný lög
á um slíka framkvæmd sem
þessa.
Hvað segirðu um atvinnu-
horfur?
Atvinna hefur mn langt
skeið verið sæmileg og oft
mjög góð hér á Akureyri. í
sumar veiddist ekki smásíld
hér eins og venjulega og er
það áfall fyrir eitt fyrirtæki
í bænum og atvinna brást
mörgum af þeim sökum. Þetta
fyrirtæki, Niðursuðuverk-
smiðja Kr. Jónssonar & Oo. hef
ur verið í gangi í haust, en
um framlhaMið veltur á smá-
síldarveiðum nú í haust og
vetur. Þá' er óVíst uyn starf-
rækslu Tunnuverksmiðjunnar.
Við Hiraiðfrystihús Útgerðarfé-
lags Akureyringa hefur vant-
að fólk fremur en hitt, a.m.k.
nú í haust., Hvort togararnir
sigla með afla sinn í vetur,
mun stjóm Ú.A. taka ákvörð-
un um. En sé það mögulegt,
verður ^ aflinn unninn hér
heima. Áherzla verður lögð á
það, að togararnir landi í
Iheimaihöfn. Samvinnuiðnaður-
inn hefur verið £ fullum gangi
fram á þennan dag. Samdrátt-
ur varð hjá Saumastofunni,
eins og kunnugt er, en vinnu-
fatagerðin hefur aftur á móti
fengið aukin verkefni og fólki
verið fjölgað við hana. En
ýmsir hlutir eru óleystir í
sambanffli við rekstur sam-
vinnuiverksmiðjanna. Þau mál
eru í athugun hjá rikisstjórn-
inni og bæjaryfirvöMin munu
beita sér fyrir því eftir föng-
um, að viðunandi lausn fáist.
Verksmiðjurnar verða að
njóta sama réttar í útflutn-
s>_~
frá Akureyri
iugi og önnur fyrirtæki og
svo hagræðingarlána til fend-
urnýjunar á vélum og þvíum-
llíkt, sem í raun og veru eru
sjálfsagðir hlutir. Maður trú-
ir ekki aö órey.ndu, að iðn-
rekstur samvinnumanna, svo
stórkostlega þýðingarmikill
sem hann er fyrir íbúa þessa
bæjar og landið í heild,) fái
ekki hina nauðsynlegustu fyr-
irframgreiðslu opinberra aðila
Hér mun heppilegt að setja
upp iðnfyrirtæki?
í iðnaði er það þýðingar-
meira en flest annað, að fólk-
ið alist upp og þjálfist sem
iðnaðarfólk, ennfremur, að
það sé nægilega stór hópur
fólks við þennan iðnað, sem
ekki hleypur í síld eða aðra
atvinnu, þegar svo ber undir,
heldur stundi hin þýðingar-
miklu iðnaðarstörf. Akureyri
er sá staður á landinu, sem
á þennan kjarna fólks. Akur-
eyrarvörurnar sýna hæfni
þessa fólks, svo ekki fer neitt
milli mála. í hinum ýmsu út-
gerðarstöðum er þetta ekki
fyrir hendi og verður naum-
ast. í sambandi við staðsetn-
ingu iðnfyrirtækja er þetta
mjög veigamikið atriði.
Hvað gerir bærinn til örv-
unar atvimnulífsins?
Atvinnumálanefnd bæjarins
var stofnuð í sumar, skipuð
áhugasömum og kunnugum
mönnum. Hún liefur starfað í
haust af miklu kappi við að
kynna .sér hina ýmsu þætti at-
vinnulífsins og erfiðleikana.
Hún hefur líka haft samband
við ýmsa opimbera aðila og
rætt við þá um hugsanlegar
leiðir til að létta fyrirtækjum
róðurinn. jafnframt því sem
nefndin reyniir að gera sér
ljóst, hvernig beri að leggja
trausta hornsteina, sem fram-
tíðin getur byggt á.
Hvernig er fjái-liagur bæj-
arine?
Fjárhagur bæjarins er traust
ur þegar á lengri tíma er lit-
ið, en hefur átt í tímahundn-
um greiðsluörðugleikum, eins
og flest eða öll bæjar- og
sveitarfélög hér á landi þetta
ár. Sam.a gildir um fjölda op-
inberra aðila og einkafyrir-
tækja, sem kunnugt er.
Hlutverk Akureyrar í jafn-
vægisátt?
Vissir hlutir í atvinnuupp-
byggingu' og ýmis konar fram
kvæmdum standa yfir á Suð- •
vesturlandi, með aðstoð er-
lends fjármagns. Þess' utan
má nefna stórátak í húsnæðis-
vandamálum í höfuðborginni.
Mikið hefur verið rætt um þá
;iá»kalegu þróun, að ísland
verði i fr;:mtíðinm 1 iki.
en landið að öðru leyti
eyðimörk. Þeir, sem um þessi
mál nafa hugsað í alvöru, hafa
komizt að þeirri niðurstöðu,
að efling Akureyrar sé alveg
nauðsynleg til að skapa jafn-
vægi í þessum málum. Hér á
Akureyri þurfa menn ekki að
biðja um eitt eða neitt, sem
er ekki 'hagkvæmt frá þjóð-
hagslegu sjónarmiði. Það mun
þjóðarnauðsyn, að þessi bær
eflist og hann þarf ekki að
gera þaðxá kostnað eins eða
neins. Skilningur stjórnarvalda
á þessu máii virðist vera fyrir
hendi, að mokkru leyti a.m.k.
Hinar miklu framkvæmdir
syðra krefjast aðgerða hér, í
jafnvægisátt.
Að síðustu, bæjarstjóri:
Akureyri verður að
sækja fram á öllum vígstöðv-
um í einu, til þess að rækja
hlutverk sitt sem höfuðstaður
Norðurlands. Bærinn sém s>ík
ur, verður að sækja fram að
sínum hluta með sínar fram-
kvæmdir og ríkisvaMið verð-
ur að veita atvinnuUfinu eðli-
legan stuðning að sínum hluta
Á Akureyri er dugmikið fólk,
verkefnin eru ótæmándi. Það
er ekki ástæða til svartsýni, f
þótt nokkrir tímabundnir erf
iðleikar steðji nú að og séu
yfirvofandi, eins og annars
staðar á landinu, segir Bjarni
Éinarsson, bæjarstjóri að lok-
um, og þakka ég svör hans.
E. D.
Nú
er hver
síðastur
Þessa árs framleiðsla á MASSEY-FERGUSON-
dráttarvélum er nú að mostu uppseld. Eigum þó
enn örfáar MF130, MF135 og ?ömuleiðis óupp-
gerðar Ferguson og Massey Ferguson dráttarvélar.
Það eru því síðustu forvöð á að kaupa Massey
Ferguson dráttarvélar á þessa árs verði.
Gerið því pöntun strax.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í endurnýjun hitaröra í olíugeymum
M.s. „Kyndils".
- , ! - ' '
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu vora, Sóleyjar-
götu 17.
H.F. ÚTBOÐ OG SAMNINGAR
Þvottamaður óskast
Þvottahús Landspítalans vill ráða aðstoðarmann
í þvottasal nú þegar. Lauri samkvæmt kjaradómi.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri
störf sendist Skrifstofu ríkisspítalanna, Klappar-
stíg 29, fyrir 27. október n.k.
Reykjavík 19. október 1967.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA
Sniðkennsla
Næsta kvöidnámskeið hefst þriðjudagkin 24. okt.
Innritun í síma 19178-
SiGRÚN Á. SIGURÐARDÓTTIR.
Drápuhlíð 48, II. hæð.
J