Alþýðublaðið - 23.07.1988, Síða 14

Alþýðublaðið - 23.07.1988, Síða 14
14 Laugardagur 23. júlí 1988 FRETTASKYRING Haukur Holm skrifar Bttainnflutningur SAMDRÁTTUR FRAMUNDAN HEFUR ÞÚ VITAO PAÐ BETR/ Utl HIIIIAIIB nEbiviinuun ÚT OG RESTII AN VAXTA OG VERÐTRYGGINGAF A12 MANUDUM lOYOTA-BlLASALAN byöur einstQk greiösUiiðr i notuöum bllum umboösins 50% af kaupverði greiöast vlð samnrng en eftirstöðvar 112 manjði. vaxta- og verðtryggingartaustl Og ekkl núg meö það... Peir sem staðgreiöa li 15% afslitt. /j H|1 TOYOTA-BllASÖLUNNI er gott úrval notaöra bila / tferlö veBtomin I Skeifuna og skeggrzöið viö sökh // mem okkar Petur, JOn Ragnar. JOham eöa EgH. // Opiö rnlll kl. 9-19 virka daga og kl. 10-17 taugaröaga. TOYOTA flÐ RÁÐUMST GEGN VAXTAOKRI 9,9% ÁRSVEXIM ENGIN VERÐTRYGGING Bílaumboðin bjóða nú hvert um annað þvert, alls kyns kostakjör á bilum, bæði notuðum sem teknir hafa ver- ið upp i nýja, og eins 1988 ár- gerðinni til aö rýma fyrir 1989 árgerðinni. Eftir gífurlegan bilainnflutning er nú séð fram á rólegri tíma. Bilainn- flytjendur sem Alþýðublaðið ræddi við spáðu þvi að ekki kæmu öll umboðin til með að standa af sér þann magra tima sem framundan er. Eins og kunnugt er hefur mikið bílaflóð dunið yfir land- ið undanfarið. Hámarki náði það árið 1987, þegar rúmlega 24 þúsund bllar voru fluttir hingað til lands. Samkvæmt upplýsingum frá Bifreiðaeftir- liti ríkisins voru 15.939 bílar nýskráðir þar árið 1986, árið 1987 voru þeir 23.469, og fyrstu 6 mánuði þessa árs voru þeir 9.589. Þetta segir ekki alla söguna, þvi þarna er aðeins um að ræða bíla sem búið var að selja, og þar með skrá hjá Bifreiðaeftirlitinu. Hjá Hagstofunni fengust þær upplýsingar, aö áriö 1987 hafi verið fluttir inn 24.485 bílar. Inni í þeirri tölu eru fólksbíl- ar, sendibílar, vörubílar og fjórhjól. K0STAB0Ð BÍLAUMBOÐANNA Að undanförnu hafa bíla- innflutningsfyrirtækin hvert á fætur öðru birt heilsíðuaug- lýsingar í blöðunum, þar sem boðin eru kostakjör á bílum bæöi notuðum og nýjum. Sem dæmi má nefna, að Bílaborg býður vænan afslátt af Mazda bílum. T.d. lækkar Mazda 121 úr 537.000 í 464.000 eða um 73.000 krón- ur, Mazda 626 LX 4 dyra 1.8 I lækkar úr 871.000 i 731.000 eða um 140.000 krónur og Mazda 626 GTI úr 1.225.000 i 1.088.000 eða um 137.000 krónur. Skýringar á þessu eru sagðar vera að 1989 árgerð- irnar séu væntanlegar og því þurfi að rýma fyrir þeim. Framtíö við Skeifuna seg- ist ráðast gegn vaxtaokri, og býður allt að 50% af kaup- verði bílsins til láns á 9,9% ársvöxtum án verðtryggingar. í dæmi sem þeir birta í aug- lýsingunni er tekiö dæmi af 400.000 króna bil, sem myndi kosta á þessum kjörum 411.926. Þar er um að ræða Fiat, Ford, Suzuki og Hyundai bíla. Þórir Jónsson fram- kvæmdastjóri Sveins Egils- sonar h.f. innflutningsaðila þessara bíla, segir í samtali við Alþýðublaðið, að þetta sé liður í starfseminni, þaö þurfi að koma á móts við fólkið. Þarna geti fólk séð svart á hvítu hvað þurfi að borga, og því sé engin óvissa í þessu, en þetta séu einnig liður í því að rýma fyrir nýjum árgerðum bíla. Það er athyglisvert að skoða auglýsingu frá Jöfri h.f., þar sem fólki er boðið að þrífa bilinn sem þaö er aö kaupa sjálft, og að skrá hann, en á móti komi að bíllinn fæst á verksmiðjuverði með tollum og söluskatti, en án álagningar. Þar að auki er boðið upp áverksmiðju- afslátt í sumum tilfellum. Lækkar þetta bílverð um allt að 131.100 krónur. Eyjólfur Brynjólfsson fram- kvæmdastjóri Jöfurs sagði er Alþýðublaðið innti hann eftir því hvað þeir fengju þá fyrir sinn snúð, að það væri f rauninni ekkert annað en upplausn peninga. „Það er ekkert annað sem vakir fyrir okkur í þessu dæmi, en að leysa upp þá aura sem eru bundnir í dag í þessum bíl- um. Við erum búnir að selja alveg óhemju af bílum á ár- inu, þannig að það má segja að það hafi að minnsta kosti verið okkar álit, að það væri skynsamlegra að selja þessa bíla álagningarlaust, leysa upp það fé sem var bundið í þeim í erlenda verðinu, og koma þeim af okkur sem vandamáli. Þeir hlaða upp pakkhúsleigu, vöxtum o.þ.h.“. FÆRIST BÍLASALA Á FÆRRI HENDUR? Þeir aöilar sem Alþýöu- blaðið ræddi við, voru á einu máli um að bílainnflutningur- inn komi til með að færast á færri hendur í framtíðinni. Þess sjást þegar merki, t.d. er Jöfur með Peugeot, Chrysler og Skoda, sem þrír aðilar voru með áður. Sveinn Egilsson er með Fiat, Ford, Suzuki og Hyundai, sem var á fleiri höndum, og Glóbus Citroen umboðið er einnig komið með Saab bíla. Telja má nokkuð víst, að næsta ár verði meö allt öðru sniði í bilainnflutningnum en verið hefur undanfarin ár. Mun meira jafnvægi verði, og yfirbragð allt rólegra. Það var samdóma álit við- mælenda blaðsins, að óvíst væri hvort öll bifreiðaumboð- in kæmu til með að lifa þessa tíma af. Mörg þeirra hafa farið af stað af miklum krafti á velmegunartímum og fjárfest í miklum fasteignum, og séu nú ekki nógu vel í stakk búinn að standa við þær skuldbindingar. Fylgdi sögunni, að svo væri víðar farið en bara í bílaviðskiptun- um. METTUR MARKAÐUR? Bílaumboðin hafaeinnig auglýst vildakjör á notuðum bílum sem teknir hafa verið upp í nýja. Toyota bílasalan hefur auglýst, að sé helming- ur borgaður út í bil, fáist eft- irstöðvarnar lánaðar án vaxta eða verðtryggingar til eins árs. Sögðu fulltrúar bílaum- boða sem rætt var við, að betra væri að losna við bíl- ana á lægra verði, en að sitja uppi með þá til lengri tima. Bílasali sem rætt var við sagði, að þessi verðtilboð umboðanna hafi haft áhrif á söluna hjá þeim. Hjá þeim þyrfti yfirleitt að borga 40% vexti. Þeir væru að reyna að koma því inn núna hjá selj- endum notaðra bíla, að þeir verði að gefa eftir í kröfum sínum. Umboðin væru það sterkur samkeppnisaðili fyrir bílasölurnar, að það væri sí- fellt að færast í aukana að bilar séu seldir allir að láni. Það þykir nokkuð Ijóst að bílamarkaðurinn er að mett- ast en þó voru ekki allir alveg á því að hann væri orðinn fullmettaður. Einn bílasali sagði, að íslendingar væru sjúkir í bíla og gætu sumir hverjir ekki átt bílinn sinn lengur en í 2 til 3 mánuði, þá þyrftu þeir að skipta um bíl. Aðspurður sagði Eyjólfur Brynjólfsson hjá Jöfri, að kannski mætti segja að verð- fall hafi átt sér stað á notuð- um bílum, en hins vegar hafi verið umdeilanlegt hvað hafi verið eðlilegt verð. Verð á notuðum bílum hafi verið uppsprengt, og líklega sé verðið núna nær þvf sem eðlilegt megi teljast, þó vissulega hefði það mátt koma jafnar. Viðmælendur blaðsins voru sammála um, að sifellt nýrri bilum væri hent sem ónýtum á haugana, enda sé orðið það mikið af bílum að það sé vandamál. Eins og að framan greinir, má búast við að einhver bifreiðaumboðanna sleppi ekki í gegnum þá þrengingar- tima sem framundan eru. Svo mikið er víst, að bílaleiknum er lokið, í bili a.m.k. D' *«««ii i>#»* I KVIEUI EH VHV9MI I f00.000 kr. verðlækkun á NISSAN PRAIRIE 2.0 awo

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.