Tíminn - 19.11.1967, Page 3
SUNNUDAGUR 19. nóvember 1967,
3
TÍMINN
Edouard Rasyk og eiginkona
hans hafa lengi starfað saman
en (hann hefur haft þann starfa
að kasta hnífum umhverfis
konu sína í kabarett. Nú er
samstarfinu lokið, því að eigin
konam hefur kvartað yfir vax
andi drykkju eiginmannsins og
segir að það hafi í för með
sér, að það sé of ha&ttulegt að
taka þátt í þessu starfi þeirra.
En eiginmaðurinn gerði samn
ing við konuna um það, að þau
reyndu að halda áfram og í
hvert sinn sem hann kastaði
hnífum að henni fengi hún að
kasta þeim til baka. Eiginkon
an samþykkti það, með því
skilyrði, að hún mætti fá
sér að drekka í hvert sinn sem
hann fengi sér að drekka.
★
Ræningi nokkur réðist inn í
banka á ítalíu og heimtaði þar
150 þúsund krónur í lírum, ell
egar sprengdi hann bankann i
loft upp. Hann fékk pening-
ana og skildi eftir sprengjuna.
Þegar hún var athuguð, kom í
Ijós.'að hún var búin til úr
vekjaraklukku og einni flösku
af vatmi.
•k
Verzluinarhús nokkurt í Suð
ur-Afríku setti upp mikla aug-
lýsingu um málningu, en í setn
ingunni varð allmeinleg prent
villa. Þar stóð: Our Pants stay
ou for years and have to be
bumed off. En það þýðir: Næ.r
buxurnar okkar endast árum
samian og það verður að
brenna þær burtu. Hafði stafur
inn i fallið úr orðinu Paint,
sem þýðir málning.
★
Málarinn Salvor Dali hefur
löngum verið þekktur fyrir
unppátæki sín. Það nýjasta er
að nú hefur hann femgið sér
hjól og er orðinn leiður á að
reyna að komast áfram í um-
ferð Parísarborgar á Rolls Royc
inum sínum. Kemur hann nú
hjólandi til máliverkasala og
afhendir sjálfur málverk sín
til kaupemdanna.
★
★
★
Biandarískar húsmæður þurfa
nú ekki lengur að hafa fyrir
því að skera kringlótta tómata
á samlokurnar sínar, því að nú
eru bandarísklr vísindamenn á
góðri leið með að rækta fer-
kantaða tómata
★
Á mannslíkamamum vaxa um
það bil hálf mjlljón hára. Iljar
og lófar eru einu hlutar líkam
ans þar sem ekki vaxa nein
hár.
★
Stjörnurannsóknir, sem hóf
ust í Kaliforníu fyrir tuttugu
árum síðan, mun Ijúka fimm-
tíu árum á undan áætlun. Er
það vegna hinnar nýtízkulegu
tækja, sem mæla með ná-
kvæmni, sem er fjörutíu úr
milljónustu úr þumlungi.
★
Nú hefur verið bannað að
hafa konur, sem leiðsögumenn
um forna hella í Sitanton í Miss
ouri og eru þær konur, sem
þar önnuðust leiðsögn nú farn-
ar að vimna í minjagripabúð-
um. Porstjórinn, sem annaðist
þetta lét svo ummælt, að ferða
menn hefðu meiri áhuga á stúlk
unum heldur en klettamyndun
um.
★
Yfirvöld í Nepal handtóku
eitt sinn mann og konu, sem
þeim fannst ekki hegða sér sið
samlega á alm'annafæri. Þau
komu fyrir rétt og voru gefnir
tveir kostir: Annað hvort yrðu
þau að ganga í hjónaband eða
fara í fangelsi. Þau völdu hjóna
bandið og rétturinn sá þeim fyr
ir presti og svaramönnum og
síðan var framkvæmd hjóna-
vígsla.
★
Japanskur kennari, Zenhach-
iro Niizaki hefur krafizt 120
þúsund króna í skaðabætur af
fyrrveramdi nemanda sínum.
Hann heldur því fram að hann
hafi brotið í sér þrjár tennur
og það orsaki það, að nú er
hann smámæltur og allir nem
endur hans gera grín að hon-
um.
Þesisi klæðnaður hentar að
vísu eikki hér ó íslandi, en
þetta ku vera væntanleig vor-
tízka 1968. Hann virðist ekki
vera ýkja dýr en nokkiurt ósam
ræmis gætir í honum. Til fót-
anma er ætlazt til þess aö kon-
an sé í leðurstíigvélum, sem nó
U'PP undir hné, á höfðinu eiga
þær að hafa Ijósa hárkollu, þar
á miflli er klœðnaðurinn nokk-
uð fótækleg'ur eins og sjá má
á myndinni.
★
Norðmaður nokkur hefur
fengið skilnað frá konu sinni.
Ástæðan var grimmd eiginkon
unnar, sem fólst í því, að hún
faldi hluta úr jússluspilinu
hans.
★
Oharlie Smith er 125 ára
gamall og er sagður elzh íbúi
Bandaríkjanna, og hann hætti
starfi sínu fyrir tólf arum síð-
an, en hann hafði þann starfa
að tína ávexti af trjám Hann
man enn eftir dögum þrælanna
og minnist þess, þegar hann
var fluttur borð í skip í Líberiu
og fluttur til Bandarikjanna.
★
Eims og kunnugt er, var
Shirley Temple í framboði fyrir
skemmstu. Hún beið að sögn
sumra herfilegan ósigur og er
hann talinn eiga rök sín að
rekja til stefnu frúarinnar í
Vietnam-málinu. Þessi mynd
var tekin af fjölskyldu Shirley,
þegar hún var að fylgjast með
kosningaúrslitunum í sjónvarp
inu.