Tíminn - 22.12.1967, Page 5
FÖSTUDAGUR 22. desember 1967.
TÍMINN
5
I SPEGLITIMANS
i
i
i
i
i
v
\
i
i
t
i
t
t
v
\
Sean Oonnery, sem er betur
þekiktur undir nafninu James
Biond, er nú að reyna að fá
Brigitte Bardot til þess að fara
til Mexikó og leika þar í kvik
mynd, sem Sean hyggst sjálfur
framleiða. Kvikmyndin á að
vera sannkölluð „westem“-
kvikmynd í anda 007. Og það er
hægt að geta þess að fyrir
skömmu var sett upp vaxmynd
aif Brigitte í vaxmyndasafni
Madame Tussauds.
★
Á meðan Harold Wilson stóð
í sem ströngustu út af fellingu
gengi sterlingspundsins, var
bifreið hans stolið fyrir fram
an augun á varðmönnum við
Downing Street 10. Sootland
Yard hóf þegar í stað afskipti
af málinu og billinn fannst ó-
skemmdur á Lundúnarflugvelli.
★
Karl Gústaf krónprins Svía
mun fara á vetrarólympíuleik-
ana í Grenotole^ með sænsku
skíðasveitinni. Áður en hann
fer mun hann fylgjast með æf
igum sænska landsliðsins og
meira að segja taka þátt í að
velja þá skiðamenn, sem sendir
verða.
•k
Það hefur löngum þótt fínt
að klœðast fötum frá tízkukóng
unum í París og hafa allar fræg
ar konur keppzt við það að
kaupa sér sem dýrust og fínust
föt þaðan. En það virðist ekki
eiga við eiginkonu Ringo Star.
Hún hefur fram að þessu ekki
verið sérlega dýrt eða vel
klædd og nú fyrir skömmu birt
ist hún klædd sem blómastúlka
á flugvellinum í Róm á leið
sinni til London. Eiginmaður
hennar var í fylgd með henni,
klæddur nærri skósíðri loð-
kápu.
★
★
Milljónamæringurinn Paul
Getty getur nú talizt örugglega
ríkasti maður heims. Þar til fyr
ir nokkrum vikum hefur hann
átt í harðri samkeppni við
Nubar Gulbenkian um titilinn
ríkasti maður heims. Báðir
þessir menn hafa safnað auði
sínum á olíuauðlindum og lengi
staðið nofckurn veginn jafnfæt
is. En nú hefur það skyndilega
komið í ljós að á olíusvæði
Pauil Gettys í Wyoming í Banda
ríkjunum er mikið af úraníum
oig á einum degi auðgaðist hann
um 20 milljarða. — Og ég finn
ekki fyrir því, sagði auðjöfur
inn bljúgur.
★
Sálfræðilegar rannsóknir í
Bandaríkjunum hafa leitt það
í ljós, að fólk getur orðið veikt
af vissri gerð hinnar svoköll-
uðu POP tónlistar. Ekki fylgir
þó með, hvaða grein hafi verst
áhrif.
★
Handrit og safn listaverka úr
húsi Somerset Maugtoams í
Suður-Frakklandi voru seld á
uppboði i London fyrir
skömmu. Maugham var þefckt-
ur fyrir að hafa eytt miklum
fjármunum til listaverkakaupa.
Handrit hans og listaverk fóru
þó fyrir lægra verð en búizt var
við 31.778 pund og vakti það
talsverða athygli, að enginn
þeirra, frægu manna og
kvenna, sem eitt sinn umgeng
ust hann voru viðstödd upp-
boðið.
/
★
Andre Courreges, hinn
franski tízkukóngur, sem mest
hefur gert í sambandi við stutta
móðinn í Frakklandi hélt sýn-
ingu á tízkufatnaði sínum í
Hollywood. Margar frægar
Hollywood-stjörnur voru við-
staddar, svo sem Shirley Mc
★
Laine, Barbara Streisand, Jack
Lemon, Gene Kelly, Dvid Nev
en, Natalia Wood og um það
bil fjögur hundruð í viðbót.
Allir gestir borga 125 dollara í
inngangseyri og var Courreges
mjög ánægður með þær viðtök
ur, sem hann fékk þama. Þó
gat hann ekki stillt sig um það,
að hafa orð á því, að aðeins
tvær konur af öllum þeim, sem
þar vom viðstaddar, vom í fatn
aði, sem hann hafði sjálfur
teiknað.
★
Nú um jólin verður sýndur
þáttur í brezka sjónvarpinu um
bítlana og skömmu eftir nýárið
hyggjast þeir gefa út nýja
plötu, og verða á henni þau
lög sem þeir syngja í þættin-
um, sem er tekin að miklu
leyti í Grikklandi. Það var
Ringo Starr, sem gaf þessar
upplýsingar á blaðamanna-
fundi, sem bítlarnir héldu og
við sama tækifæri gerði hann
það kunnugt, að þeir hyggist
setja á stofn bítlasafn í London.
Einhver hafði orð á því, að það
væri nú heldur snemmt, en
Ringo var því ebki alveg sam-
mála. — Það er til fólk, sem
skrifar endurminningar sínar,
þegar það er tuttugu og fimm
ára. Því skyldum við þá ekki
geta sett á stofn safn?
★
William Fulbright öldunga-
deildarþingmaður í Bandaríkj
unum réðst fyrir skömmu á
stefnu Johnsons Bandaríkjafor
seta í Vfetnam:
— Við eyðum 1700 miUjörð
um árlega í það að breyta
litlu landi í geysistórt líkhús,
sagði Fulbright i rœðu sinni
í öldungadeildinni.
*
Á þessari mynd sjáum við
grískan iþróttamann taka á
móti Ólympíueldinum í Olymp
íu. Síðan var farið með hann
upp á fjallið Olympus og eftir
það var hann fluttur flugleiðis
til Grenoble þar sem 10.
vetrarólympíuleikami-r verða
haldnir.
Á VÍÐAVANGl
Hinn nýi fasteigna-
skattur
Eitt af þeim málum, sem
hespað var af fyrir þingfrest-
unina var það að leggja nýja
skatta á alla íbúðareigendur í
landinu, til viðbótar við þær
álögur, sem af gengisfelling-
unni leiddu, og þar í ofan var
líka samþykkt á Alþingi að
stórhækka gjöld af síma, sem
snertir nær hverja fjölskyldu í
landinu. Þannig á að skófla inn
í ríkisstjórnina nýjum milljóna
fúlgum til viðbótar við þær
hundruð milljóna, sem ríkis-
sjóður hagnast af gengislækk-
uninni. Að vísu hefur fjármála
ráðherra lýst yfir, að tollar
verði lækkaðir um 200—250
milljónir króna og mjólkin
verði greidd niður, en eftir er
að sjá, hvernig þær toUalækk-
anir líta út og hvemig þær
verka á hag alþýðuheimilanna
í landinu, sem verða að greiða
nýja skatta í gjöldum af íbúð
sinni og súna og fl. Jafnframt
þessari hækkun á fasteigna-
gjöldum til rfkissjóðs hefur
verið boðað frumvarp um að
heimila stórhækkun fasteigna-
gjalda til sveitarfélaga og ýmis
legt fleira á efalaust eftir að
bætast á menn f álögum frá
sveitarsjóðunum og þarf vfst
ekki að minna t d. Reykvík-
inga á 18% hækkun hitaveitu-
gjaldanna.
Þarflausar álögur
Þvert ofan í samþykktir
þessara nýjn álaga á almenn-
ing, sem eru vegna afkomu
ríkissjóðs algerlega þarflausar,
segja stjórnarblöðin, að rfkis-
stjórnin beini fyrst og fremst
áhuga sínum á að draga úr
afleiðingum gengislækkunarinn
aL Eitthvað er nú brogað við
þetta allt og mörg og ný kurl
eiga eftir að koma til grafar,
hvað álögur á almenning snert-
ir, þegar líður á næsta ár.
Það er álit ábyrgra manna,
að það sé skynsamleg stefna að
láta sveitarfélögunum eftir fast
eignir sem tekjustofn, ef mönn
um þykir skynsamlegt eða rétt-
látt að leggja á þær skatta.
Samband sveitarfélaganna mót-
mælti mjög kröftuglega fast-
eignaskatti þeim, sem fram í
frumvarpinu sáluga, sem Iagt
var fram í haust. Þar var gert
ráð fyrir að tólffalda fasteigna
matið og ekki ráðgert að leyfa
sveitarfélögum að hækka sín
fasteignagjöld, en það var sam-
þykkt nífalt nú í vikunni og
boðuð s<ima heimild fyrir sveit-
arfélögin.
Mlsrétti
í rauninni er það fjarstæ?fa
að vera að fikta fram og aftur
við þetta fasteignamat og marg.
falda mat, sem er fyrir löngu
úrelt og ranglátt og efna þann-
ig til stórfellds misréttis þegn-
anna eftir búsetu þeirra í land
inu og aðstæðum. Upplýst hef-
ur verið aff aðalfasteignamat
samkvæmt lögum frá 1963 eigi
að koma á næsta ári og verður
að krefjast þess að eftir þeim
lögum verði farið, því að í þejm
segir, að á 5 ái'a fresti milli
aðalmata sknli yfirfasteigna-
nefnd kanna, bvort fasteigna-
verð hafi breytzt verulega á
tíniabilinu. Telji fasteignamats
nefnd að svo sé, getur fjármála
ráðherra ákveðið breytingu á
mati fasteigna í landinu í sam-
ræmi við það. Viturlega sýnist
Framhald á bls. 12.