Alþýðublaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 07.10.1989, Blaðsíða 1
Teikn á lofti á landsfundi Sjálfstæðisflokksins Nokkur titringur er í Sjálf- stæðisflokknum eftir að Ijóst var að Davíð Oddsson borgar- stjóri gefur kost á sér í sæti var- formans flokksins gegn sitj- andi varaformanni Friðriki Sophussyni. Davíð vill styrkja forsystu flokksins eða eins og hann sagði: „Með ákvörðum minni vil ég bregðast við mjög ákveðnum og ítrekuðum ósk- um um að á þessum fundi verði gerðar breytingar á for- ystu flokksins í því skyni að styrkja hann og efla." Nánari umfjöllum um lands- fundinn og Sjálfstæðistlokkinn er í miöopnu blaösins í dag. „Perestrojkan er verkfæri Sov- étleiðtogans til að kaupa sér tíma í vopnakapphlaupi og öðr- um knýjandi utanríkismálum til að koma lagi á hlutina heima fyr- ir og koma Sovótríkjunum úr stöðnun og framleiðslulömun og setja landiö almennilega inn í 20. öldina. Með öðrum oröum: Styrkja stöðuna. I utanríkismálum hefur um- bótastefnan því lagt megin- áherslu á gagnkvæma afvopnun stórveldanna. Til aö ná árangri á því sviði hefur Gorbatsjov þurft að færa ýmsar fómir til að vinna sannfæringu Vesturlanda. Meira um það síðar. En engu að síður: Perestrojkan hefur haft mjög já- kvæðar afleiðingar fyrir sam- skipti stórveldanna og stórbætt samskipti austurs og vesturs." — Sjá nánar á bls. 9. Dagsbrúnarmenn úr miöstjórn ASÍ: Halldór segir Örn segja að Guðmundur J. ófrægi Asmund! Halldór Björnsson varafor- maður Dagsbrúnar telur Örn Friðriksson varaforseta ASÍ vera á þeirri skoðun að Guð- mundur J. Guðmundsson for- maður Dagsbrúnar vilji ófrægja Ásmund Stefánsson forseta ASÍ. „Við sættum okkur ekki við að vera bomir þeim sökum, að við séum að ganga erinda ein- hverra annarra aðila. — Að við megum ekki hafa okkar skoð- un innan miðstjómar. Við hefð- um aö sjálfsögðu ekki gengið út, þótt þessi tillaga hefði verið felld. En þegar svona er borið á menn, þá er erfitt að sitja leng- ur, að minnsta kosti í einhvern tíma," segir Halldór. Sjá nánar Skotmark á bls. & Umhverfismálin skrautfjöður stjórnarinnar? „Ég hef þá persónulegu trú að stofnun umhverfisráðuneytis og endurskipulagning á stjórn- arráðinu verði skrautfjaðrir þessarar ríkisstjómar þegar til lengri tíma verður litið. Það hafa margir efast um að rétt sé að stofna sérstakt umhverfis- ráðuneyti en trú mín er sú að innan fárra ára snúist alheims- stjórnmálin að verulegu leyti um þennan málaflokk og því er nauðsynlegt fyrir okkur Tslend- inga að huga að þessum mála- flokki í tíma." — Sjá Króníku Guðmundar Ágústssonar á bls. 3.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.