Alþýðublaðið - 07.10.1989, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 07.10.1989, Qupperneq 7
Laugardagur 7. okt. 1989 7 Fréttaskýring eftir Tryggva Harðarson og Friðrik Þór Guðmundsson Myndir E.ÓI. I gær tilkynnti Davíð Oddson, borgarstjóri, á landsfundi Sjálf: stæðisflokksins í Laugardagshöli að hann gæfi kost á sér í varafor- mannsembætti flokksins. Mikil óvissa hafði ríkt um hvort hann kynni að gefa kost á sér sem vara- formaður eða jafnvel sem formað- ur seinustu dagana fyrir fundinn. Lágværar en öflugar raddir höfðu verið upp um nauðsyn þess að endurnýjun ætti sér stað innan forystu flokksins. Davíð kynnti á landsfundinum í gær drög „aldamótanefndar" um nokkra þætti sjálfstæðisstefnunn ar sem er hugsuð sem grunnurinn að framtíðarstefnu flokksins. í lok ræðu sinnar tilkynnti hann síðan að hann gæfi kost á sér í sæti vara- formanns með eftirfarandi orðum: „Ég vil nota tækifærið hér í lok þessarar ræðu til að gefa hér smá yfirlýsingu frá mér persónulega til ykkar. Ég hef sem sagt afráðið að gangast við kjöri til varaformanns flokksins ef landsfundurinnn kýs svo. Þessi ákvörðun beinist á eng- an hátt að persónu Friðriks Sop- hussonar sem gegnt hefur starfi varaformanns síðastliðin 8 ár og ég haft mjög góð samskipti við á þeim vettvangi og eins í sambandi við störf hans á Aiþingi í þágu Reykjavíkur. Með ákvörðun minni vil ég bregðast við mjög ákveðn- um og ítrekuðum óskum um það að á þessum fundi verði gerðar breytingar á forystu flokksins í því skyni að styrkja hann og efla." Af orðum Davíðs má ráða að framboð hans er til komið af" óánægju með forystu flokksins frekar en að Friðrik Sophusson hafi ekki staðið sig sem skyldi. Hann vegur í orðum sínum engu síður að formanni flokksins en varaformanni og vaknar sú spurn- ing hvort nú skuli hengja bakara fyrir smið. Margir telja að Davíð eigi varaformannssætið víst og svo kunni að fara að Friðrik dragi sitt framboð til baka. Þegar þetta er skrifað (á föstudegi) eru línur þó ekki farnar að skýrast en ekki verður kosið í forystusæti flokks- ins fyrr en á sunnudag. Styður Moggaveldið Davíð? Mikla athygli vakti þegar Morg- unblaðið birti á miðvikudaginn mikla fréttaskýringu á leiðara- opnu undir fyrirsögninni „Hávær- ar raddir um Davíð í forystuhlut- verk.“ Var þar á ferðinni fyrsta ótvíræða vísbendinginn um að til stæði að skipta um menn í æðstu forystu Sjálfstæðisflokksins. Mikið hafði þó verið rætt um hugsanlegt framboð Davíðs en margir voru orðnir þeirrar skoðunar að tíminn til að tilkynna það væri orðinn of naumur. Það var samt orðið Ijóst á síðasta degi fyrir landsfundinn að í kjölfar kosningaósigursins 1987 var Valhöll Ifkt viö dauðs manns gröf. Og stundum hefur Sjálfstæðisflokknum veríð líkt við flokk að hætti landa austan jámtjalds. Þessi mynd ber með sór ótvíræðan Kremlarkeiml stuðningsmenn Davíðs voru komnir á fullt að afla honum stuðnings. Alþjóð er kunnugt að undanfar- ið hefur Morgunblaðið og Þor- steinn Pálsson deilt hart um hug- myndir um að koma á svokölluð- um auðlindaskatti á fiskveiðar. Af því tilefni lýsti Þorsteinn því yfir að Styrmir Gunnarsson ritstjóri blaðsins nyti einskis trúnaðar inn- an Sjálfstæðisflokksins. Aftur á móti fóru saman í höfuðdráttum skoðanir blaðsins og Friðriks Sophussonar, varaformanns, sem gengu þvert á stefnu formannsins. Það kann að hljóma hálf kald- hæðnislegt, að Morgunblaðið stuðli að því að koma Friðrik frá með því að hampa Davíð en sjálf- sagt hefur blaðið ekki lagt í slag við formann flokksins á þessum tímapunkti. Óvíst er að íhaldssam- ir landsfundarfulltrúar hefðu get- að kyngt því að skipta um for- mann fyrirvaralaust. Því hefur mönnum þótt vænlegra að freista þess að gera Davíð að varafor- manni og hann þá talinn líklegur að mynda sterkt mótvægi við Þor- stein Pálsson og áhrif hans. Eins líta margir til Davíðs sem framtíð- arformanns Sjálfstæðisflokksins og vilja færa hann nær því sæti með því að opna honum dyrnar inn í landsmálapólitíkina, sem hlýtur að gerast, fari svo að hann verði kosinn varaformaður. Óllkar ræður Þorsteing og Davíös Við setningu landsfundar Sjálf- stæðisflokksins hélt Þorsteinn Pálsson langa og mikla ræðu. Það sem einkenndi hana voru vand- ræði iiðinnar tíðar, lélegt gengi Sjálfstæðisflokksins og hrakfarir í kosningum og ríkisstjórn. Ræða Davíðs sem hann flutti í nafni „aldamótanefndar" horfði hins vegar til framtíðar, gaf glæstar vonir og lagði línuna fyrir það sem koma skal. Davíð gaf sér góðan tíma til að fjalla um landbúnaðar- mál og byggðamái og greinilegt að hann var að fiska eftir stuðningi landsbyggðarfulltrúa þingsins. Kom fram í máli Davíðs að vandi landbúnaðarins væri aifarið á ábyrgð stjórnvalda fyrr og nú, svo og milliliða. Verður það eflaust erfiður biti að kyngja fyrir ýmsa sjálfstæðismenn sem hafa átt drjúgan þátt í að koma á núver- andi skipan landbúnaðar og varið það með oddi og egg. Af þeim umræðum sem þegar hafa átt sér á landsfundinum bendir allt til að málefnalega verði hvað mestur ágreiningur um stefnu flokksins í fiskveiðimálum. Þó Davíð Oddson hafi farið af var- kárni í þau mál er ljóst að hug- myndir hans fara nær hugmynd- um Friðriks Sophussonar en Þor- steins Pálssonar. Þá mátti ráða af tölu Davíðs að hann aðhyllist einskonar sósíal- isma sveitarfélaganna, það er að færa hin félagslegu verkefni frá ríkisvaldinu til sveitarfélaganna. Hann lagði áherslu á að til að svo megi fara þurfi að fækka sveitarfé- lögum og stækka þau. Davíð ætti að vita hvað hann er að tala um þegar hann fjallar um sveitar- stjórnarmál enda stýrir hann lang umfangsmesta rekstri opinbera geirans ef frá er talið ríkið. En til að átta sig betur á þeim at- burðum sem nú eru að gerast á landsfundi Sjálfstæðisflokksins er rétt að líta aðeins á sögu flokksins síðustu árin. Allir þekkja svikin sagði Davíö Það er ekki beinlínis hægt að segja að ríkisstjórnarþátttaka Sjálfstæðisflokksins síðastliðinn hálfan annan áratuginn hafi ein- kennst af velgengni, með öðrum orðum var hún engin „blúndu- braut“. Eftir nær 12 ára viðreisnar- stjórnarsetu fór flokkurinn í „helmingaskiptastjórn" með Framsóknarflokknum 1974—1978 og í kjölfarið galt hann afhroð í sveitarstjórnarkosningunum um vorið 1978 og í þingkosningunum um sumarið sama ár. Eftir þessa ósigra var blásið til fundar sjálf- stæðismanna til að kryfja ástæður ósigranna og þá mælti Davíð Oddsson, síðar borgarstjóri og nú- verandi varaformannskandídat: ‘Sjálfstæðisflokkurinn stóð ekki gegn gegndarlausri opinberri fjár- festingu í síðustu ríkisstjórn. Öðru nær. Hann stóð að henni. Sjálf- stæðisflokkurinn beitti sér ekki fyrir samdrætti ríkisbáknsins. Oðru nær. Nefnd var skipuð til að svæfa þetta baráttumál ungra sjálfstæðismanna ... Sjálfstæðis- fólk í Reykjavík lagði á það áherslu í skoðanakönnun, að það vildi frjálst útvarp. Enginn forystumað- ur Sjálfstæðisflokksins gerði það mál að sínu. Öðru nær .. . Allir þekkja svik sjálfstæðismanna í Framkvæmdastofnunarmálinu á síðasta kjörtímabili. Allir þekkja glórulausa framkvæmd og fjár- festingu við Kröflu undir stjórn sjálfstæðismanna ... “ Morgunverðarfundir____________ Loftleiðahópsins______________ Um sömu mundir ákváðu Frið- rik Sophusson, núverandi varafor- maður, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son að kalla saman morgunverð- arhóp til að hittast reglulega. Ásamt þeim voru í hópnum ungir og áhyggjufullir menn: Davíð Oddsson, Þorsteinn Pálsson, Kjart- an Gunnarsson, Birgir ísleifur Gunnarsson, Markús Órn Antons- son, Jón Magnússon, Ellert B. Schram og Hafskipsmennirnir Ragnar Kjartansson og Björgólfur Guðmundsson. Þeir gengu undir nafninu „Loftleiðahópurinn" eftir samkomustaðnum. Þeir gengu svo langt að kalla til fundar við sig þáverandi formann og varafor- mann, Geir og Gunnar. Skilaboð þessara manna til Geirs voru að hann hefði ekki haft nógu afdráttarlausa forystu í ríkis- stjórninni, hann væri einangraður, hann hefði ekki trúnaðarsamband við aðra forystumenn flokksins, skorti frumkvæði innan flokksins Sjá nœstu síöu O/f 'Ns 9 Vœntanlegt forystupar? Flestir telja aö Davíö veröi ekki skota- skuld úr því að sigra Friðrik. En hvenœr kemur aö því aö Davíð rúllar yfir Þorstein? Á næsta landsfundi?

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.