Tíminn - 02.04.1968, Page 1
Erlendar fréttir
JOHNSON: GEF EKKI KOST
Á MÉR TIL ENDURKJÖRS!
New York Times: Þetta getur verið kænskubragð hjá forsetanum
Þessi mynd var tekin af Lyndon Johnson. Bandaríkjaforseta, fyrir nokkrum dögum, er hann hélt rœöu í Minneapolis um efnahags-
mál og Vietnam-styrjöldina.
Loftárásir á Norður-Víetnam stöðvaðar að mestu:
Talið af flestum stórt
skref í átt til friðar
l
NTB-Washington, London og
Moskva.
Ákvörðun Johnsons um að
hætta loftárásunum á Norður-
Vietnam að vcrulegu leyti, og
gefa ekki kost á sér til endur
kjörs, hefur vakið gífurlega
athygli um allan heim. Margar
ríkisstjórnir hafa fagnað fregn
inni um stöðvun loftárásanna,
og talið það stórt skref í frið
arátt. Brezka stjórnin hafði
samband við Sovétstjórnina í
morgun, og sendiherra Sovét-
ríkjanna í London, til þess að
kanna hvernig stjórnir ríkj-
anna tveggja gætu orðið við
beiðni Bandaríkjastjórnar um
að stuðla að friði í Vietnam.
Harold Wilson, forsætisráð-
herra Breta, sendi Kosygin,
forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, bréf í dag, en Kosygin er
nú í opinberri heimsókn f
íran. Michael Stcwart, utanrík
isráðherra Breta ræddi við
Smirnovsky. sendiherra Sovét-
ríkjanna í morgun, og tjáði
honum að brezka stjórnin
myndi leita samstarfs við Sovét
stjórnina um friðarumleitanir.
en utanríkisráðherrar Bret-
lands og Sovétríkjanna voru
formenn Genfaráðstefnunnar
sem fjallaði um Indó-Kína
1954. Síðar í dag ítrckaði
Stewart þetta í þingræðu
Japanska stjórnin ákvað í
kvöld, að fara þess á leit við
stjórnir Sovétríkjanna og
Bretlands, að þær beiti sér
fyrir friðarumleitunum, á
þeim forsendum að þær höfðu
forsæti á Genfarráðstefnunni
um Indo-Kína: Ákvörðun þessi
var tekin á fundi æðstu manttv
japanska utanríkisráðuneytis-
ins.
Sovézka fréttastofan Tass,
sakaði Johnson í dag um að
láta enti samningsskilyrði Harn
oistjórnarinnar seni vind um
eyrun þjóta, með því að stöðva
ekki loftárásirnar með öllu,
heldur aðeins beina þeim frá
þéttbýlum svæðum. Tass kall-
aði yfirlýsiingu Johnsons „John
son beitir brögðum". Hvað á-
kvörðun forsetans um að bjóða
sig ekki fram á ný snertir,
sagði fréttastofan, að enn væri
of snemmt að spá nokkru um
það, hvort þetta væri herbragð
til að ná endurkjöri, eða skip-
brot Vietnamstefnunnar. Það
hefði oftar en einu sinni gerzt
fyrr í bandariskum stjórnmál-
um, að forseti þættist ekki
ætla að gefa fcost á sér, aðeiins
til að safna kröftum og kasta
sér inn í kosningabaráttuna á
Framhald á bls. 22.
NTB-Washington, mánudag.
★ Yfirlýsing Lyndon John-
sons, Bandaríkjaforseta, nm
að hann gefi ekki kost á sér
til endurkjörs í haust, kom
Bandaríkjamönnum gersam-
lega á óvart, og hún varpar
nýju ljósi á fjölmörg mál, bæði
í Bandaríkjunum og erlendis.
Mikill fögnuður ríkir í herbúð
um frjálslyndra Demokrata, og
þeir gera sér góðar vonir um
að annar hvor þeirra Robert
Kennedys eða Eugene McCart-
hys muni vinna forsetakosning
arnar í nóvember. f ræðu sinni
snerist Johnson algerlega á
sveif með þeim tvímenningun
um, hvað stefnuna í Vietnam
áhrærir, með því að hann fyrir
skipaði að loftárásunum á Norð
ur-Vietnam skyldi hætt að
mestu leyti. í ræðu sinni í nótt
sagði forsetinn, að hann
myndi einbeita sér að friðar-
umleitunum í Vietnam i þá
níu mánuði, sem eftir eru af
kjörtímabilinu.
★ Áhangendur Johnsons halda
þvf fram, að hann sé staðráð-
inn í að ávinna sér sess í sög-
unni fyrir að hafa komið friði
á i þeirri styyjöld, sem hefur
eyðilagt draum hans ’*ti „The
Great Society" — eða „Hið
mikla þjóðfélag" í Báhdaríkjun
um.
★ Aðrir eru efins um tilgang
hans, og telja þetta aðeins her
bragð hans til að sitja áfram
í forsetastólnum. Þannig segir
stórblaðið „The New York
Times" að hugsanlegt sé a®
Johnson hafi skipulaet þetta á
þann veg, að þegar flokír*tó»g
Demokrata kemur saman í
Chicago þann 2G. ágúst, til að
útnefna forsetaefni flokksins.
þá muni Johnson standa
frammi fyrir þinginu sem sá
er hafi komið á friði, og geta
þannig þvingað það i gegn, að
hann verði tilnefndur. Sem
forseti er Johnson óneitanlega
í mjög sterkri aðstöðu á þing-
inu.
Athygli manna beinist nú að
þeim Robert Kennedy og Eue-
ene McCarthy, sem nú standa
einir á sviðinu. með bókstaf-
lega nákvæmlega eims stefnu-
skrár um frið í Vietnam og
réttlæti í félagsmálum heima
fyrir. Það gefur auga leið, að
nú stendur ekkert f vegi fyrir
þvi að Kennedy bjóði sia fram
til forseta og McCart.hy til vara
forseta, svo fremi Johnson
grípi ekki inn í gang mála,
með því að berjast fyrir að
Hubert Humphrey, núverandi
varaforseti. verði tilnefndur for
setaefni. Stjórnmálafréttaritar
ar telja ekki ósennilegt að svo
Framhald á bls. 22.
I