Tíminn - 02.04.1968, Side 4
16
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 2. aprfl 1968.
MINNING
Victoría Margrét Helgadóttir
„Vertu lj'ós á vegum hinna
vafin hrósi mærin svinn
indiæl rós sem allir hlynna
að og kjósa í garðinn sinn.“
Victoria M. Jónsdóttir húsfrú
og frv. kennslukona á Selfossi
airdaðist 8. jan. s.l., 63 ára að
aldri. „Þeir sem guðirnir elska,
deyja ungir“.
Því er þannig varið, að ég get
ékki áttað mig á því, að bún
hafi ekki dáið ung,
Victoria útskrifaðist úr Kenn-
araskóla fslands vorið 1026 rúml.
tvitug að aldri í blóma lífsins í
þéss orðs fyllstu merkingu. Lífið
brosti sannarlega við hinni ungu
stúlku. Guð hafði gefið henni flest
ef ekki allt það, sem unga konu
mátti prýða. Óvenjulegan fríðleik
og höfðinglegt fas. góðar gáfur
og eindæma samvizkusemi ásamt
fágaðri sk’apgerð.
Haustið 1926 réðist Victoria
sem heimiliskennari að Holti til
frændfólks míns og tók þar að
séi kennslu bæði barna og ung-
linga um veturinn
Við tveir yngstu bræðurnir í
Laxárdal vorum svo heppnir að
fá að njóta kennslu hennar í þrjá
tíma á dag alkan veturinn, ásamt
fimm öðrum ungmennum. Það tel
ég beztu og árangursríkustu skóla
vist, sem ég hefi notið.
Mér er það mjög , minnisstætt,
hvað kennslukonan lagði sig fram
til að búa sig sem bezt undir tím
ana og þó að sjálf kennslan tæki
aldrei minna en sjö tínva á dag,
var oftast tími afgangs til að
deila kjörum með okkur í námi
eða leik.
Ég sagði áðan, að ég gæti ekki
sætt mig við annað en að Victoría
hefði dáið ung. Það mun stafa
JÖRD
Jörðin Garpsdalur í Geiradalshreppi fæst til
ábúðar í næstu fardögum.
Þeir sem hafa áhuga á að sinna þessu, snúi sér
til undirritaðs fyrir lok aprílmánaðar n.k.
Vélar og bú fæst keypt eða leigt eftir samkomu-
lagi. Kaup gætu komið til greina.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er
og hafna öllum.
Garpsdal 27. marz 1968.
JÚLÍUS BJÖRNSSON
í
SAMKEPPNI
Frestur til að skila tillögum í samkeppni um
merki fyrir BSRB, rennur út föstudaginn 5. apríl.
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja.
Frá Byggingarsam vinnufélagi
atvinnubifreiðastjöra
Áformað er að stofna 5. byggingarflokk félagsins
um byggingu fjölbýlishúss í Breiðholtshverfi
Þeir félagsmeijn sem óska að komast í þennan
byggingarflokk. leggi umsóknir sínar inn á skrif-
stofu byggingarsamvinnufélagsins, Fellsmúla 22,
fyrir kl. 18,00, laugardaginn 20. apríl n.k.
at því að ég kynntisf henni að-
eins á meðan hún var ung og
yfir þeirri kynningu hvílir enn
morguntoirta æskunnar. Mér
finnst svo stutt sáðan að hún lék
sér með okkur á skautum og skíð-
um, fór með okkur ríðandi á
skemmtanir eðá las með okkur
uppi á bæjarþaki í útmánaðar-
blíðunni.
Ég átti þess kost að hitta þessa
vinkonu mína nokkrum sinnum
eftir það að hún var horfin suður,
bæði á. heimili hennar á Selfossi
og á sjúkrahúsum. Victoria fór
ek'ki varhluta af Mfsins and-
streymi, þó að hún væri ávallt
ljós á vegum sinna. Með byltu
af hestbaki hófst hennar sjúk-
dómsferill, þó ekki samfelldur svo
að húin gat þess á milli notið heim
ilisihamingju með manni sínum
og dóttur.
Þrátt fyrir margar og erfiðar
sjúkdómslegur, hélzt henni enn
vel á sínum dæmafáa glæsileik.
Að endingu vil ég þakka þér
Victoría, fyrir ógleymanleg kynni
og þá fyrir hönd okkar allra, sem
þú kallaðir „fyrstu og minnis-
stæðustu nemendurna þína“.
Innilegustu samúðarkveðjur
sendi ég til nánustu ástvina þinna,
sem mest hafa misst við fráfall
iþitt.
Eggert Ólafsson.
HÚSEIGNIR
til sölu
2ja herb. íbúðir við Ásbraut,
Baldurgötu, Kárastág, Hraun
teig, Kleppsveg, Langholts-
veg, Lyngbrekku.
/
3ja herb. ibúðir við Básenda,
Fögrubrekku, Grettisgötu, —
Hofteig, Hrauntoæ, Kapla-
skjól, Víðimel (bílskúr), —
Njálsgötu, Kleppsveg, Nýbýla
veg (bílskúr), Leifsgötu (bíl
skúr), Þinghólstoraut og
víðar.
4ra herb. endaíbúðir við Álf-
heima, Eskihlíð, Ljósheima.
(Sér hæð), Háteigsveg (bíl
skúr).
5 herb. endaíbúð við Bogá’hlíð,
3 svefnherb. og sér herb. í
kjallara.
5—6 herb. sér hæðir við Holta
gerði, Hraunbraut. Þinghóls-
braut, Nýbýlaveg, Reyni-
hvamrn.
Raðhús og einbýlishús, í smíð-
um og fullgerð i Fossvog).
Smáítoúðahverfi og víðaT í
borginni, .Kópavogi og Garða
hreppi.
FASTE IGNASALAN
HÚS&EIGNIR
BANKAtTR/FTI A
Símar 16637 - 18828 —
40863 — 40396.
Pétur Jónsson,
læknir
Þeim fækkar nokkuð ört, sem
svip sinn áettu á bæinn ok'kar,
Akureyri. Fyrir skömmu síðan
lézt hér hinn mesti ágætismaður
og skólafrömuður, Þórarinn
Bjöfnsson, skólameistari, og nú
fyrir fáum dögum lézt hér hinn
rómaði ágætis læknir Pétur Jóns-
son. Já, sannarlega eru stór skörð
höggvin í þennan bæ. Ég er ekki
manneskja til að skrifa eins og
skyldi um minn elskulega vin og
lækni Pétur Jónsson, eflaust verða
mér meiri menn, sem gera það
'betur. Mig langar með þessum
linum að votta honum mitt hjart
ans þakklæti fyrir alla hans hjólp-
fýsi og vináttu um margra ára
skeið. Og hvað hjálpfýsina snert-
ir, ‘þó veit ég, að ég mæli fyrir
munn allra sjúklinga hams um
ágæti hans sem læknis, félaga og
vinar. Ég ætlá mér ekki þá dul
að fara út í æviatriði Péturs lækn
is, en ekki getur okkur öllum dul-
izt, að hann var saninur maður,
köllun sinni trúr til hinztu stund-
ar. Við, sjú'klingar hans, urðum
hressari, þegar við vorum komin
inn til hans á lækningastofuna.
Hinn hressandi blær, sem
streymdi frá honum, hafði slík
óhrif. Þá var lika hinn sami
hressandi andi á heimili þeirra
hjóna, Ástu, yinkonu miinnar, og
hans. Þar hefi ég oft verið og
við hjónin farið þaðan með bros
á vör og yl í hjarta. — Glæsi-
menni er horfið úr okkar hópi,
skilur eftir ógleymanlegar endur-
mininingar.:
Ásta rnin, kæra vinkon-a, ég bið
Guð að blessa þig og styrkja í
þínum mikla missi.
Ágætasta lián menn öðlast þar,
sem ættleg snilli og gáfnafar,
menntun og þekking mœta.
Þú virtir þá köllun og valdir þér
það vandastarfið, sem göfgast er,
meðþræðra mein að toæta.
Þú rannst þér hjiá öllum traust og
trú,
því trega þig margir vinir nú,
sem áttu þér gott að gjalda.
Því trúlega varstu verði á
vágestum þeim að tojarga frá,
sem meinum og mæðu valda.
Helga Jónsdóttir,
frá Öxl.
Sigurjðn Sigurðsson
Sigurjón Si'gurðsson frá Strýtu
í Bamarsfirði eystra, andaðist 10.
jan. s. 1. sextíu og sjö ára að
aldri.
Foreldrar hans voru hjónin Sig
urður Sigurðs'son O'g Viltoorg Gísla
dóttir, og ólst Sigurjón upp hjá
jþeim ásamt níu systkinum sínum.
j Ég kynntist Sigurjóni fyrst, er
ég var unglingur en þá unnum
við saman hjá sömu útgerð á
Seyðisfirði og Bornafirði. Síðan
áttum við margra ára sams'tarf við
fiskveiðar á sama toát.
Sigurjón Sigurðss'on var fyrir i
margra hluta sakir eftirminnileg I
ur maður. Hann var í meðallagi !
hár og grannvaxinn. Glaðlegur
var hann og hýr í bragði, eygður
vel og nefið stórt og svipmikið. í
framgöngu al'lri var hann mikill
ljúflingur. Störf sín vann Sig-ur
jón af samvizkusemi og snyrti-
mennska hans var einstök, enda
bar bátur okkar merki þess í
hreinlætí og góðri umgengni. og
eru slí'kir kóstir sjómanna mjög
mikilsverðir. Við öll veður og erf-
iðar aðstæður var Sigurjón allra
manna traustastur, úthaldsgóður
og attougull.
Sigurjón var maður hlédrægur
og yfirlætislaus, en sjálfstæður í
hugsun allri og voru skoðanir hans
einlægar og sanngjarnar.
Eftir að Sigurjón hætti sjó-
mennsku sat hann að toúi sínu á
Strýtu, með bræðrum sínum, Guð
mundi, Gísla og Stefáni. Mér
hafa sagt kunnugir menn. að af-
urðir frá búi þeirra bræðra hafi
verið með afbrigðum góðar og bor
ið vott uim hreinlæti og snyrti
mennsku.
Menn eins og Sigurjón eru holl-
ir þegnar vegna starfs og hegðun
ar, sem er til upptoyggingar og
styrks landi og þjóð-
Trygglyndi, iðjusemi, heiðar-
leiki og ljúf umgengni við menn
og málleysingja fannst mér ein-
kenna Sigurjón Sigurðsson.
Ég sakna þessa gamla vinar
míns og bátsfélaga og sendi sam
úðarkveðju fólki hans öllu.
VÚhjálmur Árnason, hrl.