Tíminn - 11.06.1968, Page 5

Tíminn - 11.06.1968, Page 5
> MUÐJUDAGTO 11. júní 1968. ----------— TIMINN H-dagur liðinn Fynst er bréf frá Þórarni Þorleifssyni frá Skúfi: „Sæll og blessaðnr, Land- fari góður! Ég vænti þess að þú takir af mér lítinn póst og þakka þéT fyrirfram. Nú er sá mifcli- H-dagur lið- inn og aHír hafa þvi snúið til hægri og fjarlægzt þá hlið- ina, sem talin' er hj artanu nær. Mér virðist þessi dýra fram- kvæmd vera helzt það, sem stundum eT kallað „snobb“. Þetta er auðvitað engin ís- lenzka, en þótt „íslenzkan sé orðafrjósöm móðir“, kann ég hana ekki svo vel, að ég hafi ftmdið alveg fullnægjandi orð yfir hugtakið. Orð, sem sé nógu lítafprlegt og auvirðilegt yf- ir þennan hégóma. Verknáður inn er nú samt engan veginn tteinn hégómi, því hann er' í fyrsta lagi lífi og limum hættu legur. Hann er í öðru lagi dýr og í þriðja lagi náttúrlega alveg óþarfur, nema hann hafi verið rekiíjn sem atvinnuhjálp. — Líklega þó ekki klakahögg í gamalli merkingu. En þarna vÍTðist mér al- almenna skoðunin vera. Sem sé, þetta var gert af „fordild“ og til þess að koma nokkrum góðum mönnum að jötunni. Það er slæmt þegar einhver framkvæmd nýtur ekki betra álits eða trausts almennings. Vegirnir eru víða slæmir, því neitar enginn, og mjög brýn þörf á umbótum. Fé því, sem fór í umferðarbreytinguna hefði verið þar full þörf. Veg- irnir batna vist ekki þó menn snúi á hægri kantinn. Vonandi gengur þetta vel Náttúrlega yona allir að vel takist og slysalaust. Enginn velviljaður maður óskar afglap anum ófara, þó sýnilegt sé að hann fari rasanda ráði. En um margt virðist fólki fara sem afglöpum. Ekki er hægt að neita því, þegar hlutlaust er skoðað, að furðulegur af- glapaháttur er það, til dæmis, að snúa bréfsnepli utanum eitraða tóbaksjurtarmylsnu, stinga síðan öðrum endanum á vindlingi þessum upp í sig, kveikja þar næst á hinum end- anum og sjúga eitraðan reyk- inn ofan í lungun. Þetta er, eins og allir vita, almennur háttUT og þykir vist fínt. Mað- ur sér tíðum í blöðum myndir af fínum mönnum á ráðstefn- um og eru þá gjarnast margir með bréfvindlinga milli vara eða fingra, nema um sé að ræða fínni og dýrari tegundir vind'la fyrir ennþá fínni og háttsettari menn. Það er sem betur fer búið að útrýma lúsinni úr landinu, að minnsta kosti að mestu leyti. Hún hafði fylgt mann- kindinni frá órofi alda. Verið eins konar merki um vanmátt manna til þess að h-rista af sér dýrshaminn, sem þeir vildu þó ógjarnan kannast við. En það, að vera lúsalaus jafngilti því að vera heilagur og var vitanlega nálega ómögulegt. — Aldrei hef ég séð myndir af reykjandi englum. Það er lík- lega erfitt að hætta að reykja — hætta afgrapahættinum —- og að verða heilagur." , Sauðbú sandgræðsl- unnar í Gunnarsholti Helgi Hannesson, Strönd, skrifar: „Eitt bú á íslandi er hneyksl unarhella allra, sem til þess þekkja — og þó einkum þeirra sem næst þvf sitja. Þetta er Sandgræðslubúið í Gunnars- holti. Það var upphaf að þessu búi, að þar var stofnað til smá- búskapar, um það leyti sem Sa-ndgræðsla íslands flutti þangað aðalstöðvar sínar. Það sandgræðslubú stóð í fimm ár fyrst (1928—33). — Gunnlaugi heitnum Kristmundssyni sý-nd ist sá búskapur ekki bera sig. Hann fékk þá í sínaT hendur 30 þúsund krónur á ári, i þarf ir Sandgræðslunnar — og þótti réttara að verja fénu til betri nota, e-n tapreksturs á búi. — Hann seldi búið og leigði jörð ina næstu 13 árin (1933—46). Þá hóf Sandgræðslan búskap að nýju og hafði um tíma 15 kýr í fjósi. — Svo komu „holda naut“ til sögu — og nokkru síðar sauðfjárbúskapu-r. 1958 voru á búinu um 300 fjár og 200 „holdanauta“-kynblending- ar. Næstu ár missti Sandgræðslu s-tjóri stjórn á oflæti sínu. — Fyrr en varði varð fé þar á fóðrum, hátt á annað þúsund — og upp undir fjögur þús- und að sumri til. — Nú hefur sauðfénu fækkað aftur. Mun þó e-nn vera nokkuð á annað þúsund framgengið. Þessi búskapur Sandgræðslu stjóra sýnist flestum hafa tvær vandræðahliðar. Snýr önnur hlið að Sandgræðslu íslands, hin að bændum landsins. Sandgræðslusjóður of smár Sandgræöslan er ríkisstofn- un, og starfsfé henna-r allt úr ríkissjóði. Milljónatugur eða meira á ári. En þótt það fé væri tvöfalt meira, veit alþjóð, að það væri of 1-ítið, til þess að afstýra uppfoki og græða sanda. Það á því að vera öllum ljós nauðsyn. að vel sé haldið á Sandgræðslusjóði, — ekki síður nú en á dögum Gunnl. Kristmundssonar. Hi-ns vegar vita Rangvellingar, hvað sem búreikningar segja, að þarf- laus og lánlaus stórbúskapur hefur á liðnum árum orðið Sand-græðslunni hörmulega dýr. Þetta má rökstyðja síðar, ef krafizt verður. Ekki veit sá, er þetta ritar, hve mikið kindakjöt Gunnars- h-oltsbúið hefur framleitt næst liðinn áratug. — Trúl-ega er það nokkuð hátt á annað hundrað tonn. Allt var það u-m fram innlenda neyzluþörf! Við ekkert af því var annað að gera en selj-a það erlendis fyrir sáralítið verð. Ríkissjóður hefur greitt stór fé i verðbætur fyrir Gunnars- holtsbúið, — ef til vill 4—5 milljónir alls. — Því fé h-efði mátt verja bet-ur á margan annan hátt. Enn er þó ekki bitið úr þes-sari nál. Nú liggja í geymslum þrjú þúsund tonn af lítt seljanlegu kindakjöti, af framleiðslu tveggja síðast- liðinna ára. Af því má segja, að 50 smálestir séu frá Gunn arshol-ti. — í haust er svo von ASBEST ASBEST á 20 tonnurn þaðan, en 40 tonn ef farga skal ærstofninum! Þrefaldur þyngslaómagi Nú blasir það við, að verð- bætur ríki-ssjóð-s nægðu ekki að þessu sinni, til þess að full- borga útflut-ningskjöt af fra-m- leiðslu síðas-ta árs. Því sem á vantar verður því að jafna nið-ur á bændur. Hcfur nú ver- ið ákveðið, að 50 krónum af hverju dilksverði skuli varið þannig. Það lætur nærri, að sá sjóður borgi um 40 þúsund dilkaskrokka. Það er sá hluti offramleiðslu. sem bændur sjálfir verða að taka á si-g. — Þessa raun eiga þeir að þakkn: Gu n n a-rshol t-s-bú i n u, rí k isbúum og 400 stórefnabændum, se-m hver um 'sig átti á næstliðn-u hausti um 100 lömbum meira en hóflegt var! Verstur er orðstír stærsta búsins, sem aldrei hefði átt að E vera til. Það er nú orðið þre- Bf faldur þyngslaómagi. Frá upp- 6 hafi var það óma-gi Sandgræðsl | unnar. í öðru lagi þungur h' landsóm-agi í þriðja la-gi er það orðið ómagi allra, sem eiga kindur á íslandi! Gloppa á Land- græðslulögum Sandgræðslan er í orði kveðnu háð yfirstjórn ráðherra landbúnaðarmála. Gunnars- holtsbúið var líklega stofnað með ráðherravitund og vild. Um hrið hafa margir menn átalið Ingólf fyrir að um-bera fj-árbú Sand-græðslunnar. Hann mun nú kominn á þá skoðun, að sá búskapur ei-gi engan rétt á sér. Sumarið 1966 lét hann skrifa Landgræðslustjóra, og | skipa svo fyrir, að sauðbúið g skyldi stórlega minnkað í H næstu sláturtíð. Land-græðslu- g stjóri hló að þvi bréfi, og setti S um haustið hundrað lörnb á B wtur! — Hann heyrði, en Sj þótti hafa að litlu ráðherraboð 3 skapinn. » Me-rkur rangæskur íh-alds- £ bóndi atyrti Ingólf á nýliðn- | um vetri, fyrir að vera ekki I búinn að afmá Gunnarsholts- | ærnar. — Ingólfur sagði að S sér væri óh-ægt um vik. Sig vantaði smágrein í Land- ,J? græðslulögi-n, svo að hann hefði leyfi til að vinna það þa-rfaverk. .— Rang-æingi brá í brún og trúði því t-æplega, % að ráðherravaldið væri ekki meira en svona! í Nú biðja Rangæingár Ingólf jl að bæta úr þessu lagaleysi i með nýjum bráðabirgðalögum ;• fyrir næsta haust!" PLÖTUR - PLÖTUR 5 Á VÍÐAVANGI Nýja brúin á Þjórsá og samgöngumála- ráðherrann Þjóðviljinn vekur athygli á því á sunnudaginn með birt- ingu tveggja mynda, að um- mæli og heitstrengingar sam- göngumálaráðherrans séu ekki haldbetri í brúargerðinni en vegagerðinni á íslandi. Önnur myndin er tekin 3. apríl, er Ingólfur Jónsson, samgöngu- málaráðherra, opnar með við- höfn að viðstöddum nær öllum alþingismönnum, nýja brú yfir Þjórsá, nálægt virkjunaretað við Búrfell, ofan við svonefnt Bjarnalón. Við brúarvígsluna flutti samgöngumálaráðherr- ann ræðu. Sagði ráðherrann m.a. samkv. frásögn MbL: „Þegar ég opna þessa brú, sem er önnur brúin á Þjórsá, vil ég segja það, að það er ánægjulegt að hún er hér kom in, og hún tengir sýslurnar saman, og það er merki þess, að það er aukin samvinna og samstarf milli þessara sýslna. Og það er annað. Hún skapar möguleika fyrir hringakstri um fallegt landslag og gerir fólki hægara að k.vnnast land- inu. Því segi ég um leið og ég opna brúna: Þessi brú verð ur ekki rifin“. Réttum tveimur mánuðum siðar voru ráðherrar og alþing ismenn aftur við Þjórsá í boði Landsvirkjunar. Stórt skarð var þá komið í hina nýju velvígðu brú, sem aldrei skyldi rífa. Þegar starfsmenn Landsvirkj- unar voru inntir nánar eftir þessu, svöruðu þeir því til, að brúin hafi aldrei verið ætl uð til frambúðarnota, hvað sem öllum ummælum, yfirlýs- ingum og heitstrengingum ráð herrans liði! Samt er Ingólfur Jónsson bæði ráðherra raforkumála og samgöngumála. Hægri aksturinn gengur vel Engin meiriháttar óhöpp hafa enn orðið í hægri umferð inni og má það þakka því fyrst og fremst að menn fara enn gætilega og allur þorri öku- manna virðir þær hraðatak- markanir, sem settar hafa verið. Nokkrir sýna þó sam- borgurum sínum hið mesta til- litsleysi með því að sinna ekki hraðatakmörkunum og aka á óleyfilegum hraða. Þessir menn eiga enga afsökun og almenningur styður eindregið aðgerðir löggæzlunnar til að hafa hendur í hári þessara ökumanna og láta þá sæta á- byrgð og refsingu. íslendingar og hafið Sýningin fslendingar og haf- ið, hefur vakið mikla athygli og verið afar fjölsótt, enda er sýn ingin sennilega sú fjölþættasta og yfirgripsmesta er hér hefur verið haldin. Tala sýningar- gesta mun nú nálgast 30 þiis. sem er há tala í okkar fá- menni. Þessi sýning, sem er svo sannarlega hafsjór af fróð leik, er þeim sem að henni standa tii hins mesta sóma og sýningargestum öllum til mik- ils fróðleiks og skemmtunar. Tíminn vill hvetja fólk til að sækja þessa merku sýningu um undirstöðuatvinnugrein fs- lendinga. Aðalfund ur Sálarrannsóknarfélags íslands verður haldinn í Sigtúni (við Austurvöll), mið- vikudaginn 12. júní kl. 3,30 e.h. D A G S K R Á : 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tónleikar. 3. Skyggnilýsingar: Hafsteinn Björnsson miðill., Aðgöngumiðar verða afhentir félagsfólki ókeypis á skrifstofunni Garðastræti 8, þriðjudaginn 11. júní og miðvikudaginn 12. júní kl. 5<—7 e.h. — Aðeins fyrir félagsmenn á meðan húsrúm leyfir. STJÓRNIN Innan- og utanhúss ASBEST fyrirliggjandi. HÚSPRÝÐI H.F., Laugavegi 176. VÉLALEIGA / Símonar Símonarsonar. Sími 33544. önnumst múrbrot, og flesta loftpressuvinnu. — Einnig skurðgröft. /

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.