Alþýðublaðið - 12.04.1990, Page 9

Alþýðublaðið - 12.04.1990, Page 9
Fimmtudagur 12. apríl 1990 9 Börnin undirbúa páskahaldið á Nesinu „Páskarnir eru líka svolítið u Það var mikill páskahugur í börnunum á barnaheimilinu Fögrubrekku á Seltjarnarnesi þegar blaðamaður Alþýðu- blaðsins leit inn. Verið var að leggja síðustu hönd á páska- föndrið og nokkrir fengust við kókóskúlubakstur. Það leyndi sér ekki að þessir ungu Islend- inga voru áhugasamir við und- irbúninginn og talaði hver í kapp við annan um páskaung- ana og eggin sem voru nú óð- um að taka á sig endanlega mynd. Hörður Kristinn og Karlotta, bæði 5 ára voru ekki í nokkrum vafa hvert tilefni hátíðahaldanna væri ,,þá dó Jesú á krossinum," var svarið þegar blaðamaður spurði. Nokkur barnanna sögðu að ef til vill myndu þau fara í kirkju en Bjarni Jakob Gunnarsson, 4 ára fullyrti hins vegar að ekki kæmi annað til greina en að fara í kirkju á páskum. Þegar páskaeggin bárust í tal leyndi spenningurinn sér ekki. Flest sögðu börnin að búið væri að kaupa eggin og mörg töldu að von væri á fleiru en einu. Hörður Kristinn Heiðarsson, 5 ára, hafði brugðið út af hefðinni og hafði spila-strump í stað unga á páskaegginu sinu. „Páskarnir eru líka svo lítið sorg- legir vegna þess að þá dó Jesú á krossinum," benti hann blaða- manni á þegar rætt var um páska- hátíðina. „Mest gaman er að fá páskaegg, en það er líka gaman að vera heima með mömmu og pabba þegar allir eiga frí," sagði Halldór Ragnar Halldorsson Halldór sagð- ist ekki bara föndra í leikskólan- um heldur sagðist hann halda áfram eftir aö heim kæmi. Auglýsing frá Orlofssjóði VR ORLOFSHUS VR Dvalarleyfi Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumarið 1990. Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum þurfa aö berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 9. hæð í síðasta lagi 20. apríl 1990. Orlofshús eru á eftirtöldum stöðum: Ölfusborgum Husafelli í Borgarfirði Svignaskarði í Borgarfirði lllugastöðum í Fnjóskadal Vatnsfirði, Barðaströnd Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu íbúðir á Akureyri Flúðum Miðhúsum, Biskupstungum Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvaliö sl. 5 ár í orlofshúsum á tíma- bilinu 28. maí til 17. september sitja fyrir dvalarleyfum. Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir 18. maí n.k. fellur úthlutun úr gildi. Dregið veröurmilli umsækjenda ef fleiri umsóknir berast en hægt er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 5. maí n.k. kl. 14 og hafa umsækj- endur rétt til að vera viðstaddir. Sérstök athygli er vakin á því að umsókinir veröa að berast skrifstofu VR í síðasta lagi föstudaginn 20. apríl n.k. Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 9. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis. Karlotta Einarsdóttir, 5 ára, var að Ijúka við þetta myndarlega pappaegg. Hún sagðist þó ekki ætla að láta það duga því búiö væri að kaupa mikið og stórt egg handa henni. Henni fannst til- heyra að mömmur fengju aö narta í páskaeggin. „Ég er búinn að búa til páska- unga, hana og margt, margt, fleira," sagði Bjarni Jakob Gunn- arsson, 4ára. Júlianna, ný orðin 3 ára sagði aö sér þætti gaman á páskunum. Hún ætlaði hins vegar að vara sig á aö borða of mikið af páskaeggj- um því þau væru óholl.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.