Alþýðublaðið - 12.04.1990, Qupperneq 10
10
Fimmtudagur 12. apríl 1990
RAÐAUGLÝSINGAR
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur, óskar eftir tilboöum í aðfærsluæðar og
dreifikerfi.
Verkið nefnist „Hafnarfjörður 14. áfangi, Fjárhús-
holt". Heildarlengd lagnaerum 2.160 m. Pípustærð-
ir eru 0 20—0 200.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 10.
apríl, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn
25. apríl 1990 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGA'R
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39 — 108 Reykjavík — Sími 678500
Aðstoð við aldraða í
heimahúsum
Okkur vantar duglegt fólk til starfa í fjórum af 6
hverfum borgarinnar. Starfið er fólgið í hvers kyns
aðstoð við aldraða í heimahúsum sem nú verður
skipulagt út frá félags- og þjónustumiðstöðvum
aldraðra í borginni.
Nánari upplýsingar veita forstöðumenn og verk-
stjórar heimaþjónustu á eftirtöldum stöðum.
Bólstaðarhlíð 43
Aflagranda 40
Vesturgata 7
Norðurbrún 1
Sími: 685053 milli kl. 10-12
Sími: 622571 milli kl. 10—12
Sími: 627077 milli kl. 10—12
Sími: 686960 milli 10—12
FÉLAGSRÁÐGJAFI
Félagsráðgjafa vantar til sumarafleysinga í 3 mán-
uði á Öldrunarþjónustudeild Félagsmálastofnunar,
Síðumúla 39.
Starfið er fólgið í persónulegri ráðgjöf og aðstoð við
ellilífeyrisþega og aðstandendur þeirra og mati á
þjónustu- og vistunarþörf.
Upplýsingar veitir Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, yfir-
maður öldrunarþjónustudeildar, í síma 678500.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og
fyrri störf skal skila til Starfsmannahalds Reykjavík-
urborgar á umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 30. maí nk.
Auglýsing um framlagningu
kjörskrár við kosningu
til kirkjuþings
Kjörstjóm við kosningu til kirkjuþings hefur sam-
kvæmt lögum um kirkjuþing og kirkjuráð íslensku
þjóðkirkjunnarnr. 48 frá 11. maí 1982 samið kjörskrá
vegna kosningar til kirkjuþings, sem fram fer í maí
og júní nk.
Kjörskráin liggur frammi til sýnis á biskupsstofu,
Suðurgötu 22, Reykjavík, og dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu, Arnarhvoli, Reykjavík til 9. maí 1990.
Jafnframt verður próföstum landsins sent eintak
kjörskrárinnar að því er tekur til kjósenda úr við-
komandi kjördæmi.
Kærur til breytinga á kjörskránni þurfa að hafa bor-
ist formanni kjörstjórnar í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu fyrir 10. maí 1990.
Reykjavík, 10. apríl 1990,
Þorsteinn Sveinsson,
Guðmundur Þorsteinsson,
Ragnhildur Benediktsdóttir.
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
Staða rektors Tækniskóla íslands er laus til um-
sóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil, skulu hafa borist menntamálaráðuneyt-
inu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. maí nk.
Menntamálaráðuneytið, 3. apríl 1990.
Menntamálaráöuneytiö
Laus staða
Staða dósents í eðlisfræði við efnafræðiskor raun-
vísindadeildar Háskóla íslands er laus til umsóknar.
Kennsla dósentsins verði m.a. í tilraunaeðlisefna-
fræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsókn fylgi rækileg skýrsla um vísindastörf um-
sækjanda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil
og störf. Ennfremur er óskað eftir greinargerð um
rannsóknir, sem umsækjandi hyggst stunda, verði
honum veitt staðan.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 7. maí nk.
Menntamálaráðuneytið, 9. apríl 1990.
Menntamálaráðuneytið
Styrkir til háskólanáms í
Grikklandi
Grísk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í
löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu allt að 20
styrki til háskólanáms í Grikklandi skólaárið
1990—91.
Ekki er vitað fyrirf ram, hvort einhver þessara styrkja
komi í hlut íslendinga.
Styrkirnir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms
við háskóla.
Umsækjendur skulu hafa gott vald á ensku eða
frönsku.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, og skulu umsóknir berast þangað fyrir
26. apríl nk.
Menntamálaráöuneytið, 9. apríl 1990.
Útboð
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í gerð gatna og hol-
ræsa á Hvaleyrarholti ásamt útrás.
Helstu magntölur: Holræsi 2.800 m
Götur 350 m
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverk-
fræðings, Strandgötu 6, gegn 10.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 24.
apríl kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingur.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
Staða tryggingatannlæknis
Samkvæmt 44. gr. laga um almannatryggingar skal
tryggingaráð ráða tannlækni, sem hafi eftirlit með
framkvæmd ákvæða laganna, er lúta að tannlækn-
ingum.
Hér með er nefnd staða auglýst laus til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir skulu berast skrifstofu forstjóra Trygg-
ingastofnunar ríkisins fyrir 21. apríl nk.
Tryggingastofnun ríkisins.
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ
Alþýðubankinn hf
Framhaldsaðalfundur
í samræmi við ákvörðun aðalfundar Eignarhaldsfé-
lagsins Alþýðubankinn hf. sem haldinn var hinn 27.
janúar sl. er hér með boðað til framhaldsaðalfundar
í félaginu, sem haldinn verður í Átthagasal Hótel
Sögu, Reykjavík, sunnudaginn 29. apríl nk. og hefst
kl. 15.00.
Dagskrár:
Aðalfundarstörf skv. ákvæðum greinar 4.06 í sam-
þykktum félagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka
hf. Laugavegi 31,3. hæð frá 25. apríl nk. og á fundar-
stað.
Ársreikningar félagsins ásamt tillögum þeim sem
fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á
sama stað.
Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fundinn,
þurfa að hafa borist stjórn félagsins í síðasta lagi 20.
apríl nk.
Reykjavík, 3. apríl 1990,
Stjórn Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf.
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra í þjónustu-
deild almennrar skrifstofu menntmálaráðuneytis-
ins.
Verksvið hans er umsjón með rekstri, starfsmanna-
málum og afgreiðslu ráðuneytisins.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
starfsferil, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir 7. maí nk.
Menntamálaráðuneytið, 11. apríl 1990.
''//VA
V
Utboð
Yfirlagnir 1990
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í eftirtalin tvö
verk:
1. Yfirlagnir 1990 — malbikun í Reykjanesumdæmi
2. Yfirlagnir 1990 — klæðning í Reykjanesumdæmi
Verkunum skal lokið 1. ágúst 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 17. þ.e.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann
30. apríl 1990.
Vegamálastjóri.