Alþýðublaðið - 12.04.1990, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 12.04.1990, Qupperneq 12
ALÞYÐUBLAÐIÐ PRESSAN FAX 82019 MMinmimini Fimmtudagur 12. apríl 1990 ALÞÝÐUBLAÐIÐ RITSTJÓRN O 681866-83320 Góöar fregnir af umhverfismálum okkur: Súrt regn á undanhaldi — Veröum samt aö halda vöku okkar, segir Hreinn Hjart- arson veöurfrœöingur Dregið hefur úr áhrif- um súrs regns á Isiandi á þessum áratug að sögn Hreins Hjartarsonar veðurfræðings hjá Veð- urstofu Islands. Ástæð- una segir hann vera hertar mengunarvarnir í löndum V-Evrópu en þaðan kemur 95% af þeirri mengun sem veld- ur súru regni hér á landi. Á árunum 1959—1979 virtist úrkoma fara heldur súrnandi í Reykjavík. Þá iækkaði ph-tala, sýrustigið, úr 5,4 í 5,1 en á þessum ára- tug hefur ph-talan hækkað aftur í 5,4. Reyndar verður að taka tillit til þess að þetta er ekki mikið frávik og einnig var mælistaðurinn færður árið 1980 frá Reykjavík að írafossi. „Þetta er samt sem áður skref í rétta átt,“ sagði Hreinn. Súrt regn hefur verið mikið vandamál í iðn- væddu löndum Evrópu og N-Ameríku á undanförnum tveimur áratugum. Þó var gert stórátak á síðasta ára- tug í V-Evrópu og N-Amer- íku að tilstuðlan OECD og hefur því dregið mjög úr mengun frá verksmiðjum í þessum löndum. En verk- smiðjur í A-Evrópu hafa haldið áfram að eitra loftið í Evrópu þannig að ekki hefur dregið hlutfallslega jafn mikið úr menguninni á meginlandinu eins og hér á landi. Hreinn segir að við þurf- um hins vegar að vera vak- andi á verðinum því súrt regn valdi tjóni hér landi þó það sé ekki á jafn áberandi hátt og í öðrum löndum þ.e. með föllnum skógum og fiskidauða í vötnum. Veð- urfræðingurinn nefndi sem dæmi tæringu á mannvirkj- um og bifreiðum. Hreinn segir að hug- myndir um nýtt álver hér á landi verði að skoðast með hliðsjón af mengunarmál- um því það sé ekki spurn- ing að nýju 200 þúsund tonna álveri fylgi nokkur brennisteinsmengun. „Við verðum að byrgja brunninn Þannig eru skógar í Tékkóslóvakíu útleiknir eftir súrt regn sem þar hefur falliö. áður en barnið er dottið of- við íslendingar að halda an í hann og því verðum vöku okkar.“ Mikiö um aö vera á Keflauíkurflugvelli: Þrjár nýjar vélar Það var mikið um að vera á Keflavíkurflugvelli í fyrradag. Fyrst kom splunkuný 757 flugvél Einfaldlega Allanfsól ATLANTSÁL skal fyrir- tæki Atlantal-hópsins heita. Þetta var ákveðið í síðustu viku á fundi full- trúa fyrirtækjanna sem hópinn mynda. Hefur nafnið nú verið skráð með fyrirhugaðan rekstur ál- vers á Islandi í huga. Fulltrúar Atlantsáls hittust í Reykjavík í siðustu viku og ræddu við fulltrúa stjórn- valda. Á fundum aðilanna var farið yfir alla þætti sem til viðræðu hafa verið milli þeirra: Orkuverð, skatta, um- hverfismál og staðsetningu nýs álvers, segir í frétt frá Iðn- aðarráðuneytinu í gær. Flugleiða til landsins, þá ný leiguþota Arnarflugs af Boeing 727 gerð og loks vél frá spænska leiguflug- félaginu Osias til að flytja farþega frá ferðaskrifstof- unni Veröld-Pólaris til Spánar. Það var fjölmenni í Leifs- stöð á Keflavíkurflugvelli í fyrradag þegar hin nýja vél Flugleiða kom til landsins. Það var Ástríður Thoraren- sen, borgarstjórafrú, sem gaf hinni nýju vél nafnið Hafdís. Síðar um daginn kom vél frá spænska flugfélaginu Oas- is til að ferja farþega ferða- skrifstofunnar Veraldar-Póla- ris til sólarstranda. Þar tóku m.a. Andri Már Ingólfsson framkvæmdastjóri Verald- ar-Pólaris og Halldór Sigurðs- son umboðsmaður spænska flugfélagsins á móti vélinni. „Það er brotið blað í íslenskri flugsögu að Islendingum sé boðið upp á beint leiguflug með erlendu flugfélagi," sagði Andri við þetta tæki- færi. Þokkalegt páskaveður Utlit er fyrir batnandi veður næstu daga og geta landsmenn búist við þokkalegasta veðri yfir páskahelgina að sögn Eyj- ólfs Þorbjörnsson, veður- fræðings. Á skírdag og föstudaginn langa verður frekar hæg breytileg átt, úrkomulítið og að sögn Eyjólfs má búast við einhverri sólarglætu. Hiti verður nálægt frostmarki. Laugardag og páskasunnu- dag verður suðvestanátt, strekkingsvindur og senni- lega einhver úrkoma um suð- vestanvert landið. Norðlend- ingar hafa heppnina með sér því norðan og austanlands verður úrkomulaust og bjart veður. A myndinni má greina að Reykvíkingar máttu gæta hatta sinna í gær, þeir sem höfuðföt nota. Það var með allra hvassasta móti, sæmi- lega hlýtt og rigning á köfl- um. Kosturinn við veðrið var sá helstur að mikið tók upp af snjó og klaka, sem víða er til vandræða í borginni. Fólk Gudmundur Einarsson, lífeðlisfræðingur og fyrr- um alþingismaður hefur verið ráðinn aðstoðar- maður Jóns Sigurdssonar viðskipta- og iðnaðarráð- herra. Guðmundur tekur við starfi Birgis Arnason- ar, sem tekið hefur við starfi hjá EFTA í Genf. Guðmundur var fram- kvæmdastjóri Aiþýðu- flokksins árin 1983—87. Frá því í ársbyrjun 1989 hefur Guðmundur stund- að kennslu við Háskóla íslands. ★ Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri SIF, sölusamtaka saltfiskfram- leiðenda gerðist spámað- ur um árið 2000 nú ný- lega. Ekki spáir hann „minni spámönnum" framtíð í sölu fiskafurða frá íslandi um það leyti sem nýtt árþúsund sér dagsins Ijós, — öðru nær. „Skipting sölufyrirtækj- anna eftir vinnslustigi vörunnar, fryst, söltuð, hert, mun hverfa og sjáv- arútvegurinn mun eign- ast 2 til 3 sterk hlutafélög sem vinna saman að markaðssetningu á ís- lenskri merkjavöru í sjáv- arafurðum", segir Magn- ús. Við sem héldum að þjóðin ætti einmitt þessi 2—3 sterku fyrirtæki í þessari grein. ★ I framhaldi af spá Magn- úsar þetta: í fréttaskeyti frá Reuter í gær er haft eftir Hjálmari Hannes- syni, sem var fulltrúi á ráðstefnu um efnahags- lega samvinnu í Evrópu sem lauk í Bonn í gærdag, að það sem ísland vantaði í dag væri „betra alþjóð- legt „umhverfi" fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að vinna í“. VEÐRIÐ ÍDAG Hæg norðvestan og noröanátt og frost um allt land. Smóél á NA-landi en annars þurrt aö mestu. Horfur á vestlægri átt á föstudag, léttskýjuðu á norður og austurlandi, en þykknar upp á vestan- veröu landinu. Á laugar- dag suðvestlæg átt og skúrir eða slydduél á Suð- urog Suðvesturlandi, ann- ars þurrt að mestu. ★ Á fundi húsnæðismála- stjórnar í síðustu viku var samþykkt að veita 80 fé- lagslegum aðilum fram- kvæmdalán til að byggja alls 802 félagslegar íbúðir og almennar kaupleigu- íbúðir. Ekki leist fulltrúa Vinnuveitendasamband- ins, Pálma Kristinssyni, á þessa samþykkt. Hann lét bóka að híutfall lánveit- inga til félagslegra íbúða væri orðið allt of hátt, eða 55% af árlegri nýbygg- ingaþörf. Telur hann tímabært að endurskoða opinbera stefnu og skil- greiningu á þörfunum fyrir félagslegar íbúðir.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.