Alþýðublaðið - 01.05.1990, Page 10

Alþýðublaðið - 01.05.1990, Page 10
1Ö Þriðjudagur 1. maí 1990 Enga nætur- og heigidagavinnu — var krafan fyrir tœpum 70 árum Fyrsta 1. maí ganga verkalýðs- félaganna fór fram í Reykjavík árið 1923. Þetta var þar að auki fyrsta kröfugangan sem farin var hér á landi. Verkamenn söfnuðust saman við Báruhúsið, en það hús stóð við Tjörnina á sama stað og nú er verið að reisa Ráðhús Reykjavíkur. Þaðan var gengið undir rauðum fána um ýmsar götur bæjarins og Lúðrasveit Reykjavíkur gekk í broddi fylkingar. í kröfugöngunni voru borin 28 hvít merki með ýmiss konar áletrunum. Að lokum var staðnæmst á lóð á horninu á Ingólfsstræti og Hverfis- götu, þar sem nú stendur Alþýðu- húsið, og hófust þar ræðuhöld. Aðalræðumaður var Hallgrímur Jónasson kennari en einnig töluðu þeir Héðinn Valdimarsson og Ólafur Friðriksson. Lúðrasveitin lék „Sko roðann i austri" og „International- inn". Það er athyglisvert fyrir nútíma- manninn að velta fyrir sér þeim slagorðum sem letruð voru á kröfu- spjöldin. Það stóð m.a. „Fram- leiðslutækin þjóðareign", „Einka- sala á afurðum landsins", „algert bann á áfengi", „Niður með vínsal- ann“, og síðast en ekki síst „Enga nætur og helgidagavinnu!" Það myndi lítið þýða að koma með þessa síðastnefndu kröfu nú á tímum. Héðinn Valdimarsson var einn af ræðumönnum á fyrstu 1. maí hátíðinni á ls- landi. Hátídarhöldin 1930 Skafti Guðjónsson Ijósmyndari tók þessa mynd af 1. maí göngu árið 1937. En nein var ei öld við alþýðu kennd — orti séra Siguröur Einarsson fyrir 60 árum Það var sól og fallegt veður 1. maí 1930. Þá fóru hátíðarhöldin fram á Austurvelli og ríkti þar mikil eining meðal fundar- manna. Jón Baldvinsson hélt að- alræðuna en einnig töluðu þeir Stefán Jóhann Stefánsson, Har- aldur Guðmundsson, Sigurjón Á. Ólafsson, Ólafur Friðriksson og Brynjólfur Bjarnason. Ekki er víst að almenningur í dag myndi nenna að hlusta á svona marga ræðumenn en Alþýðu- blaðið sagði frá því að Lúðra- sveit Reykjavíkur hefði „á milli ræðanna leikið jafnaðarmanna- lög.“ Um kvöldið var haldin skemmtun í Iðnó og var þar uppselt. Þar flutti m.a. séra Sigurður Einarsson frum- samið kvæði. Alþýðublaðið birti hluta af því: Menn kendu hér aldir við konung og prest við kúgun og raunahag. En nein var ei öld við alþýðu kend nú er hún að hefjast í dag. Og þessi nýja, náttgamla öld fær nýjan hreim í sitt mál nýjan himin og nýja jörð nýja hugsun og nýja sál. Karpað við ihaldið um fjölda fundarmaitna „Áhrifarík hátíðarhöld verka- lýðsins hér í Reykjavík 1. maí.“ sagði Alþýðublaðið eftir 1. maí árið 1940 með flennifyrirsögn á forsíðu. Hátíðarhöldin voru haldin í skugga styrjaldarinnar en menn létu það ekki aftra sér í því að karpa við íhaldið. Alþýðublaðið gagn- rýndi Morgunblaðið fyrir að Ijúga um fjölda fundarmanna á fundinum og sagði að á skemmtun sjálfstæðis- manna í Gamla Bíói hefðu verið 75 manns, þar með taldir söngvarar og aðrir skemmtikraftar! Skafti tók einnig þessa mynd á 1. maí 1940 í Austurstræti.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.