Alþýðublaðið - 01.05.1990, Page 11

Alþýðublaðið - 01.05.1990, Page 11
Þriðjudagur 1. maí 1990 11 Hátíðarhöldin 1950 /,Fólkið streymdi i burtu ú meðan á ræðu hans stéð" — gluggaö í Alþýöubladið fyrir 40 árum Það var heldur betur annað hljóð í strokknum hjá Alþýðu- blaðinu áratug síðar, 1950. Þar stendur í stórri fyrirsögn á for- síðu „Margar þúsundir mót- mæltu gengislækkun, kaupráni og kjaraskerðingu á Lækjar- torgi 1. maí.“ Það þarf ekki að taka það fram að þá var við völd samstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins undir forystu Steingríms Steinþórs- sonar, en Alþýðuflokkurinn í harðri stjórnarandstöðu. Þó svo að ríkisstjórnin væri höf- uðandstæðingurinn þá var grunnt á því góða milli Alþýðuflokksmanna og kommúnista. Helgi Hannesson forseti ASÍ gagnrýndi málflutning kommúnista harðlega, auk þess sem hann skaut föstum skotum að ríkisstjórninni. Ræðumenn Sósíalistaflokksins voru þeir Eðvarð Sigurðsson, Tryggvi Sveinbjörnsson og Eggert Þorbjarnarson en sá síðastnefndi var formaður fulltrúarráðs verka- lýðsfélaganna. Alþýðublaðinu fannst tilefni til þess að segja að „fundarfólkið streymdi í burtu á meðan á ræðu hans stóð." Þess má geta að Eggert var síðastur í röðinni af ræðumönnum þannig að deila má um hvort fólki líkaði ekki mál- flutningur hans eða hvort menn voru búnir að fá nóg af fundahöld- um. Reykjavikurhöfn var iöngum ein af lífæöum þjóöarinnar og hafnarverkamenn voru oft í fararbroddi fyrir hátíöarhöldunum á 1. maí. 'VWUiltStf! Svipmynd af Bernhöftstorfunni á sjötta áratugnum. Ilmsögnin ekki lengur á forsíðu Emil uardi efnahagsaögeröir ríkisstjórnarinnar Það er greinilegt að nokkuð hefur dregið úr mikilvægi 1. maí á sjötta áratugnum. Alþýðublað- ið sá ekki ástæðu til að geta um hátíðarhöldin á forsíðu eins og áratugina á undan heldur var umsögnin færð inn á blaðsíðu 5. Reyndar voru hátíðarhöldin á vegum Sósíalistaflokksins eða kommúnista, eins og blaðið kaus að kalla forsvarsmenn hátíðarhald- anna, það árið og það gæti hafa spil- að inni í staðarval fréttarinnar. í stað þess að vitna í ræður fundarmanna var nokkuð löng tilvitnun í ræðu Emils Jónssonar, þáverandi félags- málaráðherra, sem flutt var í út- varpinu að kvöldi 1. maí. Þar varði Emil efnahagaðgerðir ríkistjórnar- innar en þá var við völd viðreisnar- stjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks. Hátíðarhöldin 1970 Komin i fast- mótað form Árið 1970 voru hátíðarhöldin komin í nokkuð hefðbundið form. Safnast var saman á Hlemmtorgi og gengið niður á Lækjartorg þar sem fundurinn fór fram. Þar töluðu Sigurjón Pétursson, varaformaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, Jón Sigurðsson, for- maður Sjómannafélags Reykjavík- ur, Sverrir Hermannsson, formaður Landssambands verslunarmanna og Sigurður Magnússon rafvéla- virki. Það hefur löngum verið fjölmennt á Lækjartorgi á 1. maí. Mikil þensla hefur veriö á byggingarmarkaði hér á landi undanfarna áratugi. Byggingaverkamenn hafa þvi veriö nokkuö fjölmenn stétt á íslandi. Myndin sýnir Þjóðarbókhlööuna i smíóum. Slagorðin orðin frekar fúin Það var Fulltrúaráð verkalýðs- félaganna, BSRB og Iðnnema- sambandið sem sá um hátíðar- höldin arið 1980. Baráttumál dagsins báru þess giögglega vitni að kjaradeilur stóðu yfir en heldur voru slagorðin frekar fú- in.: „Reykvísk alþýða. Fram til sigurs í kjarabaráttunni. Fram fyrir hug- sjón verkaiýðs alira landa. Frelsi-jafnrétti-bræðralag."

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.