Alþýðublaðið - 01.05.1990, Side 28
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
PRESSAN
FAX 82019
MMIIIIRHIIIH
Þriðjudagur 1. maí 1990
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRN
Q
681866-83320
Starfsmönnum ísal verður
fækkað um rúmlega 100
— segir dr. Roth,
Starfsmönnum í Alver-
inu í Straumsvík verdur
fækkad um rúmlega 100
á næstu árum. Fækkun
um 22 menn í fram-
leiðsludeildum, kemur
til framkvæmda nú ■
sumar og verður að
mestu lokið í september.
Þá hefur Dr. Christian
Roth, forstjóri ísal lýst
því yfir að auka verði af-
köst og sjálfsaga starfs-
forstjóri Isal
manna samhliða aukinni
íhlutun yfirmanna í dag-
leg störf þeirra og að
efla verði stjórnun fyrir-
tækisins. Þetta kemur
fram í leiðara Dr. Roths,
forstjóra ísal í síðasta
tölublaði Isal-tíðinda.
Bundið er í yfirlýsingum
Isal að fastráðnum starfs-
mönnum verður ekki sagt
upp vegna þessara hagræð-
ingaaðgerða og fjárfest-
inga. Nauðsynlegt verður
hins vegar að flytja starfs-
menn til innan fyrirtækis-
ins, en stjórn þess er reiðu-
búin að sögn Dr. Roth til
þess að vera með of mikinn
mannafla í nokkurn tíma til
þess að ná fram heildar-
markmiðum um fram-
leiðniaukningu þegar til
lengri tíma er litið.
Þá lýsir Dr. Roth yfir ósk
um að allir kaffitímar verði
lagðir niður en á móti komi
um það bil 2% launahækk-
anir. Telur forstjórinn að
þetta geti leitt til mikils
sparnaðar fyrir fyrirtækið
og skilað sér í styttri við-
verutíma starfsmanna eða
hærri reglulegum greiðsl-
um.
í grein forstjórans kemur
fram aö hann telur breyt-
ingar þegar hafa orðið til
þess betra hvað stjórnun
fyrirtækisins og afstöðu
starfsmanna viðkemur.
Hann bendir þó á að á ýms-
um stöðum innan fyrirtæk-
isins hafi vinnubrögð ekki
fylgt tímanum, stjórnun
hafi brugðist og afköst ekki
verið í samræmi við það
sem nauðsynlegt er í iðnaði
þar sem mikil samkeppni
ríkir. Dr. Roth bendir jafn-
framt á þá staðreynd að
framfarir í öðrum sambæri-
legum verksmiðjum hafi
orðið miklu meiri en í Al-
verinu í Straumsvík.
Karvel Pálmason:
Alþýðublaðið hehir
i raun rekið mig
úr þingflokknum
Ónýttir möguleikar í Japan:
Opna islendingar
verksmiðju i Asiu?
— tel þaö vel koma til greina, “ segir Helgi Þórhallsson framkvœmda-
stjóri skrifstofu SH í Japan
Karvel Pálmason alþing-
ismaður lítur svo á að
hann hafi verið rekinn úr
þingfiokki Alþýðuflokks-
ins vegna leiðaraskrifa Al-
þýðubiaðsins. I bréfi til
þingflokksins segir Kar-
vel eftirfarandi: „í Ijósi
þeirrar ritstjórnargreinar,
sem birtist í Alþýðublað-
inu þann 27, apríl sl. og
fjaí'.ar um stjórn fiskveiða,
er Ijóst að leiðarahöfund-
ur og þar með málgagn Al-
þýðuflokksins hefur í
reynd rekið undirritaðan
úr þingflokki Alþýðu-
flokksins.“
Eiður Guðnason formaður
þingflokks Alþýðuflokksins
hafði þetta um málið að
segja: ,,Eg mun svara þessu
bréfi Karvels skriflega en
ekki í fjölmiðlum. Mér finnst
gæta í því nokkurs misskiln-
ings. Þeir sem skrifa leiðara í
Alþýðublaðið gera það á eig-
in ábyrð en ekki þingflokks-
ins. Sjónarmið Alþýðublaðs-
ins fara ekki alltaf í öllum at-
riðum saman við sjónarmiö
forystu flokksins eða þing-
flokksins. Hér er því um ein-
hvern misskilning að ræða
sem þarf að leiðrétta."
Ingólfur Margeirsson rit-
stjóri Alþýðublaðsins lýsir yf-
ir furðu sinni með bréf Karv-
els til formanns þingflokks
Alþýðuflokksins: ,,í bréfinu
gætir mikils misskilnings hjá
Karvel. 1 fyrsta lagi fjallar um-
ræddur leiðari um samkomu-
lag formanna stjórnarflokk-
anna um breytingartillögur á
svonefndu kvótafrumvarpi.
Hvergi er minnst einu orði á
Karvel í leiðaranum. í öðru
lagi eru ritstjórnargreinar Al-
þýðublaðsins á ábyrgð rit-
stjóra Alþýðublaðsins og ekki
skrifaðar eða fyrirskipaðar af
þingflokki Alþýðuflokksins
eða forystu flokksins. Al-
þýðublaðið hefur fullt rit-
stjórnarlegt frelsi í skrifum.
Það er auk þess ekki á valdi
Alþýðublaðsins að reka þing-
menn úr þingflokki Alþýðu-
flokksins," segir ingólfur.
Helgi Þórhallsson for-
stöðumaður Japansskrif-
stofu Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna telur
það vel koma tii greina að
opna verksmiðju í ein-
hverju landi Asíu til að
fulivinna íslenskan fisk.
Þar nefnir Helgi lönd eins
og Filipseyjar, Indónesíu
Thailand, eða jafnvel Kína
„Við getum ekki fullnægt
þörfinni fyrir óunninn fisk
í Asíu þannig að þetta er
spurning um að fá meira út
úr þeirri vöru sem við flyt-
um til þessarar heims-
álfu,“ sagði Helgi.
Forstöðumaðurinn segir að
aðalvandamálið með söluna i
Japan sé að íslendingar geti
ekki útvegað allan þann fisk
sem markaðurinn vilji. „Þar
kemur inn í lélegur loðnuafli,
kvótinn á grálúðunni og karf-
anum. A móti kemur að vísu
að við fáum hærra verð fyrir
það magn sem við getum
flutt til Japans."
Helgi hefur verið forstöðu-
maður skrifstofu SH í Japan
frá upphafi en hún var opnuð
í mai í fyrra. Hann segir að
reksturinn hafi gengið vel og
söluaukningin verið töluverð
á árinu. Þetta árið má hins
vegar búast við samdrætti í
sölu vegna þess að íslending-
ar geti ekki útvegað nægjan-
lega mikinn fisk. Ekki kvað
Helgi þetta skaða islenska
söluhagsmuni því fiskkaup-
menn skildu að sjávarsókn
Maður var handtekinn í
Reykjavík í gær fyrir að
hringja í bandaríska
sendiráðið og hóta að
sprengja það í loft upp.
Lögreglan hafði snarar
hendur og handtók
sprengjuhótunarmanninn
væri óútreiknanleg og gæti
ætíð brugðið til beggja vona
með afla.
Helgi er lærður viðskipta-
fræðingur frá HÍ en fór í fram-
haldsnám til Osaka í Japan.
Þaðan lauk hann mast-
er-prófi árið 1986. Helgi var
síðan jfirmaður Asíudeildar
SH á Islandi þar til hann tók
við starfinu í Japan í fyrra.
Hann kom til landsins í síð-
ustu viku til að sitja aðalfund
Sölumiðstöövarinnar.
í þann mund sem hann
gekk út úr símaklefa á
Lækjartorgi þaðan sem
hann hafði hringt.
Viðkomandi hefur áður
komið við sögu lögreglunnar
og hefur átt við andlegan las-
leika að stríða.
Fólk
Héöinn hafnaöi '/i milljón
frá Spáni.
Hédinn Gilsson, stórskytt-
an unga úr FH, hefur
ákveðið að ganga til liðs
við Dusseldorf í V-Þýska-
landi. Spænska liðið San
Antonio hafði boöið
Héðni tæplega /i milljón
í mánaðarlaun, auk þess
að sjá honum fyrir íbúð
og bíl. Héðinn hafnaði
þessu boði þannig að til-
boð Dusseldorf hefur
væntanlega verið bita-
stæðara.
Annars eru FH-ingar í
lausu lofti nú því Kristján
Arason var búinn að
ákveða að snúa aftur í
Fjörðinn en nú hefur
Teka boðið honum nýjan
og betri samning þannig
að endurkoma „týnda"
sonarins er enn í óvissu.
★
Samtök 1. deildarfélaga
knattspyrnu hafa verið
starfandi í nokkur ár og
unnið þarft starf fyrir fé-
lögin i þeirri deild. A síð-
asta vetri tóku 2. deildar-
félögin sig saman og
stofnuðu Samtök 2. deild-
arfélaga. Nú hafa 3. deild-
arfélögin ákveðið að sigla
í kjölfarið og á laugardag-
inn verða sem sagt stofn-
uð Samtök 3. deildarfé-
laga í knattspyrnu. Það
eru knattspyrnudeildir
Hauka í Hafnarfirði, ÍK í
Kópavogi og Þróttar í
Reykjavík sem eiga frum-
kvæðið að þessari stofn-
un.
★
Jónas Kristjánsson rit-
stjóri hefur misst stjórnar-
formannsstöðu í SYN, fyr-
irtækinu sem ætlar að
starta nýrri sjónvarpsstöð
næsta haust. Ástæðan er
sú að DV hefur ekki aukið
hlutafé sitt í fyrirtækinu
og þar með hafa áhrif
blaðsins minnkað. Hinn
nýi stjórnarformaður
verður Árni Samúelsson,
bíókóngur, en fyrirtæki
hans á stóran hlut í SYN.
★
Jón Sigurdsson, fram-
kvæmdastjóri Stöðvar 2,
hefur fengið reisupass-
ann hjá stjórn stöðvarinn-
ar. Ymsir aðrir starfs-
menn Stöðvar 2 hafa sagt
upp störfum í kjölfarið og
er greinilegt að miklar
sviptingar eru á þessum
vettvangi um þessar
mundir.
Sprengjuhótun i
bandariskn sendiráðinu