Alþýðublaðið - 12.05.1990, Blaðsíða 3
INNLENDAR FRÉTTIR
i
3
FRÉTTIR
IHNOTSKURN
FRJÁLST HUMARVERÐ: Verðlagsráð ákvað í gær að
gefa verðlagningu á humri frjálsa á humarvertíðinni sem
nú er framundan.
VELKOMINN, UNGI
GRÍMSEYINGUR: í sj«
ár hefur Grímseyingum
ekki tekist að eignast stelp-
ur — þar hefur heilmikið
strákastóð verið að vaxa úr
grasi, efnilegustu piltar að
sjálfsögðu — 15 drengir á 8
árum. Litla Grímseyjar-
daman fæddist á Akureyri
«g er dóttir Þorgerðar
Einarsdóttur og Óttars
Jóhannssonar. — Mynd:
Kristján Logason, Dagur.
GIRNILEG PRESTAKÖLL í BOÐI: Prestar landsins
renna yfirleitt hýru auga til prestakalla í höfuðborginni eða
í næsta nágrenni hennar. Nú hefur Biskup íslands auglýst
fimm prestaköll laus, — þar af eru tvö í nánd við Reykjavík,
— Kársnesprestakall i Kópavogi og Grindavíkurprestakall.
Hin eru Setbergsprestakall á Snæfellsnesi, Staðarpresta-
kall í Súgandafirði og Arnesprestakall í Húnavatnssýslu.
Umsóknarfrestur er til 5. júní. Sr. Arni Pálsson í Kópavogi
er að fara til þjónustu í Borgarnesi, tekur við af syni sínum,
sr. Þorbirni Hlyni Arnasyni, sem verður nú biskupsrit-
ari. Sr. Örn Bárður Jónsson í Grindavík fer til starfa á
biskupsstofu. Séra Jón Þorsteinsson á Setbergi tekur við
Mosfellsprestakalli.
H C ANDcRSEN
SNÆLDUR í STAÐ BÓKA: oft er.aiað um að tækni
nútímans muni útrýma bókum og blöðum. Ekkert bendir
hinsvegar til þess. Börn í dag hlusta hinsvegar stöðugt
meira á tónsnældur eða kassettur, með ævintýrum og
öðru barnaefni. Hörpuútgáfan er iðin við slíka útgáfu auk
þess að gefa út bækur. Nú síðast komu Ævintýri H.C. And-
ersen út á snældu, ennfremur ævintýri úr þjóösögum Jóns
Árnasonar og Ævintýri Zacharias Topeiius, alls 8 snældur.
Nútímabarnið fer inn í rúmiö sitt meö segulbandstæki og
Heiödís Norðfjörð segir barninu sögur, pabbi og mamma
horfa á sjónvarpiö.
ÁLFUR LAND-
GRÆÐSLU OG
MANNRÆKTAR: Eftir
rúma viku kemur þessi litli
kall — sjá mynd — fyrir
augu landsmanna. Álfur
heitir hann, gulur kall meö
litskrúðugan fjaðrahatt.
Hann er tákn fyrir tvöfalt
átak Landgræðslunnar og
SÁÁ, sem báðir vilja byggja
upp land og lýð. Álfur slær
þannig tvær flugur í einu
böggi og því munu menn
taka því vel að fá sér einn
slíkan fyrir 300 krónur.
GOLFARAR Á FLEYGIFERÐ: í Vestmannaeyjum eru
golfarar farnir að munda kylfur sínar, — búið að bera á
völlinn og hann að verða iðjagrænn. Golfmót hafa veriö
haldin þar frá'páskum og verða um hverja helgi héðan í
frá.
Morðvopnið melspira
Morðvopnid sem talið er
að hafi orðið bensínaf-
greiðslumanninum í
Stóragerði að bana er
fundið. Það fannst í
Reykjavíkurhöfn eftir
ábendingu Snorra Snorra-
sonar sem hefur játað að
hafa verið viðstaddur þeg-
ar morðið var framið. Um
er að ræða melspíra sem
er notuð við að splæsa
saman vír.
Á blaöamannafundi sem
rannsóknarlögreglan hélt í
gær kom fram að mjög sterk-
ar vísbendingar lægju fyrir
um hver tildrög morðsins
væru. Auk Snorra hefur unn-
usta hans og unnusta Guð-
mundar Svavarssonar, sem er
grunaður um aðild að morð-
inu en neitað sakagiftum.
báðar staðfest að hafa vitað
um ferð þeirra á bensínstöö-
ina morðmorguninn.
Helgi Daníelsson hjá rann-
sóknarlögreglunni vildi ekki
tjá sig um hvernig staöiö
liefði verið aö morðinu í smá-
atriðum. Ljóst væri hins veg-
ar aö annar hinna grunuöu
heföi opnað peningaskáp á
staðnum með lykli og hinir
grunuðu haft féð á brott með
sér. Báðir mennirnir og önn-
ur konan sitja nú í gærslu-
varðhaldi en hin konan er
undirsérstöku eftirliti fram til
18. maí.
Helgi Daníelsson rannsóknarlögreglumaður skýrði blaðamönn-
um frá gangi morðmálsins i gær.
Salan á SÝN hf, fyrír dómstóla?
Hluthafafundur í Sýn hf.,
sem haldinn verður 18.
þessa mánaðar á að af-
nema forkaupsrétt hlut-
hafanna og tryggja þannig
að af sameiningunni við
Stöð tvö geti orðið. For-
svarsmenn Frjálsrar fjöl-
miðlunar sem gefið hafa til
kynna að þeir hyggist
neyta forkaupsréttar síns,
segja á hinn bóginn að of
seint sé að breyta sam-
þykktum eftir að kaupin
eru gerð og útiloka ekki
máiaferli verði ákvörðun
um afnám forkaupsréttar
keyrð í gegn.
Á vegum Sýnar voru lög-
fræðingar fengnir til að finna
leiðir til að koma í veg fyrir
að forkaupsréttarákvæðið í
samþykktum Sýnar hf. kæmi
í veg fyrir sölu fyrirtækisins
til Stöðvar 2. Urræði lög-
mannanna var að boða til
hluthafafundar til að afnema
forkaupsréttarákvæðið. Þetta
töldu lögmennirnir að væri
unnt að gera með tveim
þriðju hlutum atkvæða.
Hjá Frjálsri fjölmiðlun álíta
menn hins vegar aö þessu
ákvæði sé ekki unnt aö
breyta án samþykkis allra
hluthafa. Auk þess sé of seint
aö afnema forkaupsréttar-
ákvæðið eftir að samningur-
inn hefur verið gerður. Allt
virðist þó benda til þess að
meirihlutamenn í Sýn hf.
hyggist keyra þessa breytingu
í gegn á hluthafafundinum
18. maí.
Hörður Einarsson, annar af
framkvæmdstjórum Frjálsrar
fjölmiðlunar, sagði í samtali
við Alþýðublaðið í gær aö
menn væru ekki farnir að
hugsa fyrir því í smáatriöum
hvað gert yrði undir slíkum
kringumstæðum, en örugg-
Úflutningsverðlaun For-
seta Islands voru veitt í
annað skipti í gær og féllu
í hlut iðnfyrirtækisins
Marels hf. Geir Gunn-
laugsson, framkvæmda-
stjóri Marels, tók við við-
urkenningunni frá Forseta
íslands, Vigdisi Finnboga-
dóttur, við hátíðlega at-
höfn en þau eru veitt í sam-
ráði og samvinnu við Út-
flutningsráð Islands.
Verðlaunin eru veitt í við-
urkenningarskyni fyrir mark-
vert framlag til eflingar út-
flutningsverslunar Islend-
inga. Utflutningsnefndin leit-
aði í upphafi eftir hugmynd-
um um verðlaunahafa í sam-
ræmi við úthlutunareglur,
safnaði upplýsingum um
vöruþróun og markaðsstarf
þeirra sem komu helst til
greina og valdi síðan Marel úr
þeirra hópi.
í greinargerð nefndarinnar
segir meðal c\:nnars að Marel
lega yrðu einhver viðbrögð
og útilokaöi ekki málssókn í
því sambandi. Hörður sagði
heldur ekkert ákveðiö um
það hvort reynt yrði að ná
samningum um hærra verö
við Stöö 2 ef Frjáls íjölmiölun
nýti íslenskt hugvit og þekk-
ingu og reynslu í fiskvinnslu
til að þróa, hanna og fram-
leiða hugbúnað og tæki, sem
auka hagkvæmni fiskvinnslu
og annars matvælaiönaðar
og selja þessa vöru um allan
heim. Marel sé leiðandi á
heimsmarkaöi í framleiðslu á
hugbúnaði og tækjum sem
auki framleiðni og hag-
kvæmni í fiskvinnslu á sjó og
landi og megi þar sérstaklega
nefna skipavogir. Frá 1983 til
1989 hafi útflutningur Marels
meira en 100 faldast að raun-
virði. Vægi útflutnings í veltu
Marels hafi vaxið ört og verið
tæp 80% á árinu 1989.
Marel fékk í hendur sér-
hannaðan verðlaunagrip
sem var gerður af Erni Þor-
steinssyni, myndlistarmanni.
Auk þess fékk Marel heiðurs-
skjal og merki sem fyrirtækið
má nota á kynningarefni sitt
næstu fimm árin.
eignaðist hlutabréfin í Sýn
hf., eða hvort haldiö yrði
áfram samkvæmt fyrri áætl-
unum og Sýn rekin sem sjálf-
stæö sjónvarpsstöð í sam-
keppni við Stöö 2.
Geir Gunnlaugsson, forstjóri
Marels hf.
Útflutningsverdlaun Forseta Islands 1990:
Marel hrepptí hnossið
Norðanmenn i sumarskapi
Akureyringar eru komnir í sumarskap — veörið nyröra er hlýtt og lofar góöu um framhaldið. Snjór, sem var meö almesta móti i
vetur, hverfur nú óöum, og miöbæjarlifiö hefur tekið á sig þetta skemmtilega sérnorölenska svipmót. Þaö fer varla á milli mála þegar
þessi mynd frá í fyrradag er skoðuð. — Ljósmynd Kristján Logason, Dagur.