Alþýðublaðið - 16.06.1990, Qupperneq 6
6
Laugardagur 16. júní 1990
íþrótiafélag í sviðsljósi
Valsvöllurinn vigöur. Síra Friörik Friöriksson spyrnir fyrstu spyrnuna, en Ulfar Þóröarson, hinn mikli athafna- og framkvæmdamaöur, fylgist með, glaöur
á svipinn, enda merkum áfanga náö.
Stofnað:
11. maí 1911
Formaður:
Jón Zoéga
íþróttagreinar á
stefnuskrá:
Knattspyrna,
handknattleikur,
körfuknattleikur,
badminton og
skíðaíþróttir
Knattspyrnufélagid Valur:
Ævintýri KFUM-strákan na varð
að traustu og sterku félagi
Knattspyrnufélagið Valur er eitt af þeim félögum,
sem stofnuð voru snemma á öldinni, en undanfari
Vals má segja að hafi verið sérstök unglingadeild
innan KFUM i Reykjavík, þar sem sira Friðrik Frið-
riksson var leiðtogi, en hann naut óskoraðrar virð-
ingar og trausts allra drengjanna, sem i henni voru.
Linn þessara drengja var Guð-
björn Guðmundsson og hann var
potturinn og pannan í stofnun
knattspyrnufélags KFUM-manna.
Hann fékk nokkra félaga sína í lið
með sér og 11. maí 1911 var hald-
inn fundur á lesstofu KFUM, þar
sem rætt var um ,,hvort ekki væri
hægt að stofna knattspyrnufélag
innan KFUM" eins og Guðbjörn
segir í grein, sem hann skrifaði í 25
ára afmælisblað Vals. Um þessa fé-
lagsstofnun segir Guðbjörn svo í
grein sinni:
Loftur Ijósmyndari var
fyrsti formaður Vals
,,Uti var glampandi sölskin, logn
og hiti — einn af þessum dásam-
legu fögru vördögum, þegar allt
iðar af lífi og fjöri. Eg man ekki fyr-
ir víst hve margir voru boðaðir, en
mig minnir að þeir væru 12. Að-
eins tveir þriðju hlutar komu og af
þeim, sem mættu vildu 6 taka þátt
í slíku félagi." Þessir sex piltar, sem
stofnuðu knattspyrnufélagið Val
voru Filippus Guðmundsson,
Guðbjörn Guðmundssson, Hallur
Þorleifsson, Jóhannes Sigurðsson,
Páll Sigurðsson og Stefán Ólafs-
son. Stofnendurnir voru þó fleiri,
því nokkrir í viðbót mættu á fram-
haldsaðalfund 28. maí og þá var
formlega kosin stjórn félagsins. A
þessum fundi bættust eftirtaldir fé-
lagar í hópinn: Guðmundur Guð-
jónsson, Kristján Gíslason, Loftur
Guðmundsson, Ottó Jónsson,
Sveinn Þorkelsson, Björn Bene-
diktsson, Helgi Bjarnason og Ein-
ar Einarsson. Fyrstu stjórn Vals
skipuðu: Loftur Guðmundsson for-
maður, Hallur Þorleifsson gjald-
keri og Jóhannes Sigurðsson rit-
ari.
Valur varð fyrst
Íslandsmeistari 1930
Valsmenn tóku fyrst þátt í ís-
landsmótinu 1915, en þá sem gest-
ir. Það var ekki fyrr en 1930, 19 ár-
um eftir stofnun félagsins, sem
Valur varð íslandsmeistari eftir
geysispennandi úrslitaleik við KR,
sem Valur vann með 2 mörkum
gegn 1. Mikil gleði ríkti meðal
félagsmanna með þennan sigur,
en þetta var aðeins upphafið að
fjömörgum sigrum, sem félaginu
hefur hlotnast á liðnum áratugum.
Peildaskipting tekin
upp hjá Val 1959
Fyrstu áratugi Vals iðkuðu fé-
lagsmenn eingöngu knattspyrnu,
en það átti eftir að breytast og á
fyrsta íslandsmeistaramótinu í
handknattleik 1940 varð Valur ís-
landsmeistari í karlaflokki. Síðan
voru fleiri íþróttagreinar teknar á
stefnuskrá Vals og nú eru þær
fimm, auk knattspyrnunnar og
handknattleiksins eru það körfu-
knattleikur, skíðaíþróttir og bad-
minton.
Sú nýjung var tekin upp hjá Val
árið 1959, að skipta félaginu upp í
deildir, það auðveldar starfið og
dreifir því á fleiri heröar. Reynsla
Valsmanna af þessu hefur a.m.k.
verið góð.
Frábær dugnaður
Valsmanna við
vallargerð
Fljótlega eftir stofnun Vals var
farið að huga aö því að finna nægj-
anlega stóra flöt, til að geta leikið
knattspyrnu. Ymsir staöir voru
skoðaðir, en að lokum staðnæmst
á Melunum. Strákarnir úr Val
sýndu ótrúlegan dugnað og þolin-
mæði við framkvæmdir eftir aö
leyfi var fengið hjá bæjarstjóran-
um í Reykjavík, Páli Einarssyni. Að
sjálfsögðu fengu þeir síra Friörik
til að ganga á fund bæjarstjórans,
sem tók málaleitan þeirra vel. Það
var ekki auðvelt verk að ryðja
Melavöllinn og skapa sér þar að-
stöðu. Melarnir voru stórgrýttir og
illir yfirferðar, en kröfurnar voru
ekki miklar og áhuginn í fyrir-
rúmi. Kvöld eftir kvöld mættu
drengirnir á Melunum, báru burt
grjót, rökuðu og sléttuðu.
Glæsimannvirkin á
Hliðarenda__________________
Vallaraðstaða Valsmanna var á
Melavelli til 1925, þegar Reykja-
víkurborg ákvað að reisa fullkom-
inn íþróttavöll á Melunum. Áður
höfðu þeir orðið að flytja völlinn
til á Melunum. Árið 1947 var
ákveðið að kaupa jörðina Hlíðar-
enda við Öskjuhlíð. Áhugi Vals-
manna var strax mikill og trúlega
hefur þetta verið eitt mesta gæfu-
spor félagsins frá upphafi til þessa
dags.
Félagið hefur byggt glæsileg
íþróttamannvirki að Hlíðarenda,
bæði grasvelli og malarvelli svo
og íþróttahús og aðstöðu fyrir fé-
lagslegt starf. — Ég held að það sé
ekki á neinn hallað, þó að hér sé
fullyrt, aö heilinn og hjartað í
framkvæmdum Valsmanna að
Hlíðarenda hafi verið Úlfar Þórð-
arson hinn mikli athafna- og fram-
kvæmdamaður. Bjartsýni hans og
dugnaður var með ólíkindum.
Fyrsti malarvöllurinn að Hlíðar-
enda var vígöur 3. september
1949 og þá athöfn annaðist síra
Friðrik Friðriksson.
Afrek og litlar_____________
Valsmanna eru_______________
fjölmargir__________________
Eins og áður hefur verið sagt
unnu Valsmenn sinn fyrsta stórsig-
ur, er félagið varð Islandsmeistari
í knattspyrnu áriö 1930. Síöan
hafa margir sigrar fallið þessu
ágæta félagi í skaut, sem of langt
mál yrði að telja upp í stuttri frá-
sögn. Valur hefur tekið þátt í Evr-
ópukeppni félagsliða, bæði í
knattspyrnu og handknattleik og
unnið markverða sigra. Það vakti
athygli, þegar þeir komust í úrslit
í Evrópukeppni í handknattieik.
þó að úrslitaleikurinn tapaðist.
Jafnteflisleikurinn gegn Benfica
frá Portúgal er ekki eingöngu
frægur fyrir árangur Valsmanna,
heldur og ekki síður fyrir aðsókn-
ina, en opinber tala áhorfenda var
18.243. Flestir eru þó á því aö
áhorfendafjöldinn hafi verið ná-
lægt 20 þúsund eða um 10. hver ís-
lendingur! Ætli það sé ekki heims-
met?
Framtið félagsins_______________
er björt
Framtíð Vals, sem verður 80 ára
á næsta ári er svo sannarlega
björt. Aðstaðan til íþrótta er með
því besta sem þekkist, góðir vellir
og íþróttahús. Starfsemin í besta
lagi og unnin af áhuga og þekk-
ingu. Ekki má gleyma góðu ungl-
ingastarfi, sem hverju íþróttafélagi
er nauðsyn, enda er Valur í
fremstu röð í öllum þeim greinum,
sem félagið leggur stund á. Áfram
á sömu braut Valsmenn.
Örn Eiðsson
skrifar
Valsmennirnir sem léku til úrslita i Evrópukeppninni við þýska liðið Gross-
wallstadt. Frá vinstri: Brynjar Harðarson, Gunnar Lúövíksson, Bjarni Guð-
mundsson, Þorbjörn Jensson, Stefán Gunnarsson, Þorbjörn Guðmunds-
son, Jón H. Karlsson, Steindór Gunnarsson, Hilmar Björnsson þjálfari, Þór-
arinn Eyþórsson, Bergur Guönason, formaður Vals, Stefán Halldórsson,
Björn Björnsson, Pétur Guðmundsson aöstoöarmaður, Gunnsteinn Skúla-
son liðsstjóri, Hermann Gunnarsson útvarpsmaður og Jón Pétur Jónsson.