Alþýðublaðið - 16.06.1990, Page 13
Laugardagur 16. júní 1990
GÓÐA HELGi
13
Myndlistar- og
aðrar
myndsýningar
Tove Ólafsson í Gallerí Borg. Nú
stendur yfir sýning á verkum
dönsku listakonunnar Tove ólafs-
son í Gallerí Borg. Á sýningunni
eru 18 verk sem öll eru til sölu.
Sýningin er í tengslum viö Lista-
hátíö og stendur til 19. júní. Sýn-
ingin verður opin um helgina frá
14 til 18.
Gunnar I. Guðjónsson, listmál-
ari, opnar sýningu á verkum sín-
um í nýjum sýningarsal aö Þernu-
nesi 4, Arnarnesi í Garöabæ, í dag
laugardaginn 16. júní kl. 16. Á sýn-
ingunni verða olíumálverk, bæöi
ný af nálinni og frá ýmsum tímum
á ferli Gunnars.
Að Kjarvalsstöðum stendur yf-
ir í öllu húsinu yfirlitssýning á ís-
lenskri höggmyndalist fram til árs-
ins 1950. A sýningunni eru verk
eftir: Einar Jónsson, Ásmund
Sveinsson, Sigurjón Ólafsson,
Gunnfríði Jónsdóttur, Guðmund
frá Miödal, Ríkarð Jónsson, Magn-
ús Á. Árnason, Nínu Sæmunds-
son og Martein Guömundsson.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega
frá 11 til 18.
í menningamiðstöðinni
Gerðubergi verður opnuö í dag kl.
14 sýning á starfi listsmiðjunnar
„Gagn og gaman". Starf lista-
smiðjunnar hefur verið atriði á
Listahátíð í Reykjavik 1990 og
tuttugu börn á aldrinum sex til ell-
efu ára tóku þátt í því að þessu
sinni. Meginviðfangsefni smiðj-
unnar var hafið sem umlykur okk-
ur íslendinga, hafið með sínum
furðum og litum, ógnum og lífi.
Við opnun sýningarinnar verður
fluttur leikþáttur sem börn hafa
samið og nefnist „í hafsins djúpi",
Sýningin mun standa í menning-
armiðstöðinni Gerðubergi til 22.
júní og er öllum opin alla daga frá
9 til 21. Aðgangur er frír.
í Listasafninu stendur yfir sýn-
ing á 52 málverkum og teikning-
um franska myndlistamannsins
André Masson, sem ereinn þekkt-
asti súrrealisti Frakka, sýningunni
lýkur þann 15. júlí. Aðgangseyrir
að sýningunni er kr. 250,- ókeypis
aðgangurerfyrirbörn undir 12 ára
aldri. Listasafn íslands er opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 12 til
18.
,,Palli og Palli"
íslenski dansflokkurinn frum-
sýndi sl. fimmtudagskvöld „Palla
og Palla" nýjan ballett fyrir börn.
Verkið byggir á hinni þekktu
barnasögu „Þegar Palli var einn i
heiminum" Danshöfundur er
Sylvía von Kospoth, en hún er
Hollendingur sem starfað hefur
hér á landi í vetur. Leikmynd og
búningar eru í höndum Hlínar
Gunnarsdóttur. Tónlistin er eftir
Tjækovski. Allir dansarar íslenska
dansflokksins taka þátt í þessari
sýningu. Sýningin tekur um
klukkustund í flutningi. Síðustu
sýningar eru í dag laugardaginn
16. júní kl. 14.30 og 17. Miðasala
fer fram í miðasölu Listahátíðar i
Reykjavík og er miðaverð kr.800.
,,í gegnum
grinmúrinn "
Spaugstofan heldur þjóðhátíð-
ardaginn í ár hátíðlegan í Borgar-
nesi með því að frumsýna á Hótel
Borgarnesi gamanleikin „I gegn-
um grínmúrinn" Jafnframt fer þar
fram fyrsti hluti keppninpar „Leit-
in að léttustu lundinni". í næstu
viku munu Spaugstofumenn svo
verða í Ólafsvík, Stykkishólmi,
Búðardal, Patreksfirði, Bolunarvík,
ísafirði og á Hvammstanga.
Stuðmenn
Stuðmenn hafa nýlokið við gerð
hljómplötu sem ber nafnið „Hve
glöð er vor æska". Hljómsveitin
mun fylgja plötunni úr hlaði með
26 miðnæturhljómleikum víös
vegar um landið. Fyrstu tónleik-
arnir voru í Stapa í gaer, en síðan
leikur hljómsveitin i Ólafsvík en
kemur fram í Reykjavík og í Hafn-
arfirði 17. júní. Miðnæturhljóm-
leikarnir hefjast kl. 23.30 og
standa til kl. 3 e.m. með tveimur
15 mínúta hléum. Á hljómleikun-
um verður fáanleg efnisskrá með
lögum þeim sem flutt eru hverju
sinni, en þau lög sem Stuðmenn
hafa samið og flutt á sínum langa
ferli nema nú hundruðum.
Stórtónleikar
Stórtónleikar verða í Laugar-
dalshöll laugardaginn 16. júní á
vegum Rokkskóga. Flytjendur eru
m.a. SYKURMOLARNIR, SÁLIN
HANS JÓNS MÍNS, SÍÐAN SKEIÐ
SÓL, BUBBI MORTEINS, RiSA-
EÐLAN, BOOTLEGS og TODMO-
BIL. Tónleikarnir verða frá 20 til 03.
Risarokk á heimsmælikvarða.
Einnig munu verða tónleikar á 18
stöðum vítt og breitt um landið.
Mexikanskur
hundur
De Mexicaanse Hond, nefnist
hópur leikara, myndlistamanna,
tónlistarmanna og hugvitsmanna
frá Amsterdam í Hollandi sem
flytja mun leiksýninguna Norður-
bærinn, þar blandast saman rokk-
tónlist, leikur, sviðsmynd einstæð
lýsing og alls kyns uppátæki í eina
æsilega og frumlega heild. Leikið
er á ensku. Sýning verður í Borgar-
leikhúsinu 16. júní.
Óperutónleikar
Óperutónleikar verða í Háskóla-
bíó laugardaginn 16. júní, þar sem
hin efnilega ítalska sópransöng-
kona Fiamma Izzo d Amico kemur
fram ásamt Sinfóníuhljómsveit ís-
lands og kór íslensku óperunnar.
Á efnisskrá eru óperuaríur og -kór-
ar.
Útivist um helgina
Dagsferðir verða farnar sunnu-
daginn 17. júní á vegum Útivistar.
Nesjar-Hagavík, gengið verður
eftir gamalli slóð frá Nesjum á
suðurbakka Þingvallavatns í
Hagavík. Létt ganga fyrir alla fjöl-
skylduna, lagt verður af stað kl.
10.30.
Fjallganga, önnur fjallganga árs-
ins. Gengið verður á Búrfell í
Grímsnesi, 536 m.y.s., frekar auð-
veld ganga. Lagt verður af stað
kl.13. Brottför í báðar ferðirnar frá
BSÍ-bensínsölu. Stansað við Ár-
bæjarsafn.
17. júni
hátíðarhöld
Hafnarfírði
Dagskráin hefst kl. 8 með því að
skátar draga fána að húni. Skrúð-
gangan hefst kl. 14.30, gengiö
verður frá Hellisgötu um Reykja-
víkurveg, Arnarhraun, Tjarnar-
braut, Lækjargötu og Fjarðargötu
að Thorsplani. Hátíðarsamkoman
verðurá Thorsplani og hefst kl. 15
og verður með hefðbundnum
hætti. Um kvöldið verður svo
kvöldskemmtun sem fram fer á
Thorsplani.
17. júni
hátíðarhöld
Reykjavík
Dagskrá þjóðhátíðarinnar verð-
ur með hefðbundnum hætti fram
að hádegi. Forseti borgarstjórnar
leggur blómsveig frá Reykvíking-
um að leiði Jóns Sigurðssonar í
kirkjugarðinum við Suðurgötu og
hefst athöfin kl. 10. Síðan hefst há-
tíðardagskrá við Austurvöll kl
10.40. Skemmtidagskrá hefst kl.
// Úr myndabók
Jónasar
Hallgrimssonar"
Þjóðleikhúsið frumsýnir leik-
gerð eftir Halldór Laxness sem
hefur verið týnd í 45 ár. Á laugar-
dagskvöldið 16. júní frumsýnir
Þjóðleikhúsið á Kjarvalsstöðum
leikgerð Halldórs Laxness á sög-
um og kvæðum Jónasar Hall-
grímssonar við tónlist eftir Pál
Isólfsson. Leiksýningin er einkum
byggð upp á leikgerð af ævintýr-
um Jónasar, en i sýninguna
tvinnast Ijóð, söngur, ballettar og
látbragðsleikur. Guðrún Þ. Steph-
ensen er leikstjóri sýningarinnar
og Þuríður Pálsdóttir er tónlistar-
stjóri. I sýningunni leika þau Katrín
Sigurðardóttir, óperusöngkona,
sem leikur stúlkuna og Torfi F. Ól-
afsson, 15 ára, sem teikur piltinn
14 í miðbænum á fjórum leiksvið-
um, í Lækjargötu, Lækjartorgi, í
Hallargarðinum og í Hljómskóla-
garði. Þar munu koma fram ýmsir
skemmtikraftar, m.a. Valgeir Guð-
jónsson, Hjalti Úrsus, Tóti trúður,
Brúðubíllinn og Grétar Örvarson
og Sigríður Beinteinsdóttir munu
syngja.
Um kvöldið verður skemmtun
og tónleikar í miðbænum, Hljóm-
sveitin Sálin hans Jóns míns og
Stjórnin ásamt Grétari Orvarssyni
og Sigríði Beinteinsdóttur.
og Þjóðleikhúsleikararnir Gunnar
Eyjólfsson, Jón Símon Gunnars-
son, Hákon Waage, Þóra Friðriks-
dóttir og Þórunn Magnea Magn-
úsdóttir. Listdansarar í sýningunni
eru Sigurður Gunnarsson, Lilja
ívarsdóttir, Margrét Gísladóttir og
Pálína Jónsdóttir og hljóðfæra-
leikarar eru úr Kammersveit
Reykjavíkur. Þjóðleikhúsið tók að
sér að setja sýningunna á svið, en
frumsýningin verður á vegum
Jónasarþings, sem er Félag
áhugamanna um bókmenntir.
Frumsýningin hefst kl. 21 og tekur
rúman klukkutima í flutningi.
Miðasala á sýninguna verður á
Kjarvalsstöðum frá kl 9.30 um
morguninn, en Jónasarþing hefst
kl 10. Önnur sýning verður á Kjar-
valsstöðum á þjóðhátíðardaginn
kl. 16.30 og verður hún á vegum
Þjóðhátíðarnefndar.
uW
Vitastofnun íslands og
Hafnamálastofnun ríkisins
hafa nú flutt í nýtt aðsetur og fengið
nýtt símanúmer.
Nýja heimilisfangið er:
Vesturvör 2 - pósthólf 120
202 KÓPAVOGUR
Sími: 60 00 00 - Telefax: 60 00 60
VITA-OG HAFNAMÁLA
SKRIFSTOFAN
n